Dagblaðið - 28.12.1978, Qupperneq 24
Tollalækkanir um áramót:
Tilbúinn fatnaður ætti
að lækka um ein 6%
komi hann frá EFTA- eða EBE-löndunum
Tilbúinn fatnaður, sem er fluttur
inn frá löndunum i EFTA og Efna-
hagsbandalaginu, ætti að lækka um
nálægt sex prósent út úr búð við tolla-
lækkanir sem ganga í gildi um áramót.
Margar fleiri vörur eiga að lækka. Þó
ber að athuga að ekki er útséð um
hvers konar gjöld ríkisstjórnin kann að
leggja á innfluttar vörur, sem eru i
samkeppni við vörur framleiddar hér.
Þau gjöld mundu þá draga úr verð-
lækkuninni.
Yfirleitt lækka tollar á tilbúnum
fatnaði og skófatnaði frá þessum lönd-
um úr 13% i 6% nú um áramótin.
Þá lækka tollar á gosdrykkjum og
bjór frá þessum löndum yfirleitt úr
20% í 10% og úr 20% í 10% á sykur-
vörum og sælgæti. Þetta ætti að öðru
jöfnu að valda um 8% verðlækkun.
Tollar á húsgögnum lækka ýmist úr
18% í 9% eða úr 12% i 6%. Á kex- og
brauðvörum lækka tollar að jafnaði úr
16% í 8%. Á málningu verður lækk-
unin úr 12% 1 6% frá þessum löndum.
Margs konar aðrar vörur eiga að
lækka vegna lækkunar tolla, svo sem
bón, rammar, speglar, sópar, burstar
og penslar.
Slíkar tollalækkanir hófust árið
1970 gagnvart innfluttum vörum frá
EFTA-ríkjunum og árið 1973 gagn-
vart vörum frá löndum EBE, sem fóru
þá í sama far og EFTA vörurnar, svo
að tollar urðu hinir sömu. Þær vörur,
sem fyrir áramót bera 20% toll, báru
upphaflega 100% toll og hann lækkar
nú í 10%.
- HH
Glöggt má sjá hvernig btllinn skarst í tvennt og þannig er t.d. ökumannshurðin áföst framendanum, sem sneri svo skyndilega við. DB-mynd: Oddur Vifilsson.
Bfll skarst í tvennt í árekstri:
BÁÐIR ENDARNIR í SÖIMU ÁniNA
— ungur maður steig ómeiddur úr flakinu
Það er ótrúlegt en satt, að ungur
Akurnesingur steig ómeiddur út úr
bílflaki sínu eftir árekstur á mótum
Langholtsvegar og Kleppsvegar I gær-
kvöldi eftir að bíll hans fór bókstaflega í
tvennt, þannig að aftur- og framendi
sneru báðir í söm.u áttina.
Fólk í hinum bilnum slapp einnig vel
nema hvað farþegi var fluttur á slysa-
deild lítið slasaður. Vakti útlit Fiatbils
Akurnesingsins að vonum mikla undrun
vegfarenda, er þeir sáu báða enda bílsins
snúa i sömu átt, en sömu skrásetningar-
númer á báðum endum tóku af öll
tvímæli um að þar fór einn og sami
bíllinn. -G.S.
| Norðurbrúnl: □ Eldur í íbúðum aldraðra
Um kl. 20.50 í gærkvöldi var slökkvi-
liðið kallað að Norðurbrún 1, en þar eru
ibúðir aldraðra. Hafði komið upp eldur i
herbergi á annarri hæð út frá kerti sem
stóð þar á borði. Gömul kona var í her-
Þrátt fyrir áframhaldandi fundar-
höld í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins i dag um fiskverð, sem taka á
gildi um áramótin, virðist nú ljóst aö
samkomulag muni ekki nást fyrir ára-
mót.
Eins og DB skýrði frá fyrir
skömmu, beindi kjaramálaráðstefna
Sjómannasambandsins því til félags-
manna sinna að ráða sig ekki í skips-
rúm eftir áramótin fyrr en viðunandi
fiskverð lægi fyrir. Kæmu viðbrögð
við þeirri áskorun fyrst og fremst
niður á vertíðarflotanum.
berginu og reyndi hún að slökkva eldinn
með því að breiða dúk yfir hann. En
eldurinn komst i gardínurnar þannig að
hún náði ekki að slökkva. Mikill reykur
barst um alla hæðina og forðaði gamla
Þá hefur Óskar Vigfússon, for-
maður Sjómannasambandsins, sagt í
viðtali við DB að sjómenn telji sig
þurfa 14% launahækkanir til að ná
jöfnuði við landverkafólk miðað við
stöðuna eftir sólstöðusamningana í
fyrra.
Hugsanleg breyting á verðflokka-
skiptingu hefur tekið verulegan tíma á
samningafundunum. Byggist hún á að
leggja niður verðflokka eftir lengd
fiskjar, en miða þess i stað við
meðalþyngd fiskjar í farmi þannig að
verðið breytist eftir því hve stór meðal-
fólkið sér niður. Fjórir unglingspiltar er
áttu leið þarna framhjá sáu eldinn i
glugganum og brugðu við skjótt, hlupu
inn og náðu í vatnsslöngu og höfðu nær
lokið við að slökkva þegar slökkviliðið
fiskurinn er I farmi, þ.e. hve marga
fiska þarf í hver 100 kg.
Niðurstöður athugana Haf-
rannsóknastofnunarinnar, Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins og sam-
taka framleiðenda hafa verið að berast
nefndinni að undanförnu og er úr-
vinnslu þeirra gagna ekki lokið.
Er því talið líklegt að þessi breyting
komi ekki til framkvæmdar við á-
kvörðun fiskverðs nú, heldur verði
reynt að berja saman nýtt verð á
gamla grundvellinum til að koma i veg
fyrir stöðvun bátaflotans.
baraðgarði.
Nokkrar skemmdir urðu á herberg-
inu, borð eyðilagðist, gardínurnar
brunnu og rúðan sprakk.
- GAJ
\
DB hefur frétt, að sérfræðingar hafi
komizt að þeirri niðurstöðu, að unnt
gæti verið að hækka fiskverð um 8,5
prósent án þess að til gengisfellingar
þyrfti að koma.
Þetta er talsvert hærri tala en áður
hafði verið reiknað með. Breytingunni
veldur, að verð á fiski hefur hækkað
talsvert á Bandarikjamarkaði. Með þvi
yrði hagur fiskvinnslunnar ekki eins
bágborinn við fiskverðshækkun og
menn hefðu talið fyrir nokkrum
vikum.
G.S2H.H.
.... ..... ............
Fiskverðið vart tilbúið fyrir áramót:
ER 8,5% HÆKKUN
VERÐSINS MÖGULEG?
Skorað á sjómenn að ráða sig ekki til sjós fyrr en 14% launabætur liggja fyrir
Srjálst, nháð dagblað
FIMMTUDAGUR 28. DES. 1978.
Banaslys
á Suður-
landsvegi
25 ára Selfyssingur, Gisli Jósepsson,
beið bana í umferðarslysi á Suðurlands-
vegi skammt fyrir vestan afleggjarann í
Bláfjöll í gærkvöldi. Tildrög slyssins
voru þau, að vörubifreið var á austurleið
og fólksbíll á eftir. Ökumaður fólks-
bílsins keyrði fram fyrir vörubifreiðina
og stöðvaði til að láta bílstjórann vita að
afturljós vörubifreiðarinnar væru óhrein
og sæjust illa. Þeir gengu svo aftur með
bifreiðinni og er þeir höfðu hugað að
ljósunum bar þar að þriðja bílinn á
austurleið. Skiptir engum togum að
henn lenti á vinstra afturhjóli vöru
bilsins og síðan á mennina tvo.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar kastaðist
um 20 metra og mun hafa látizt sam-
stundis en hinn ökumaðurinn féll í
götuna og slasaðist lítið. Bifreiðin, sem
árekstrinum olli stöðvaði um 160 m frá
slysstað, og ökumaður hennar, sem er
maður yfir sjötugt, sagðist ekki hafa gert
sér grein fyrir árekstrinum fyrr en eftir
á.
-GAJ-
Mikil leit að
íslenzkri
stúlku í
Færeyjum
Helgina fyrir jól var gerð mikil leit að
islenzkri stúlku í Færeyjum, en þar
hefur hún búið um tíma á Sjómanna-
heimilinu í Klakksvik.
Auglýst var eftir henni í færeyska út-
varpinu og hafði verið gert mikið útboð
manna er þær fréttir bárust, að hún væri
komin fram.
Var hún þá komin út í Svinaey með
tveimur Færeyingum og undi sér vel.
Nokkrar fréttir hafa verið af löndum
okkar i Færeyjum i blöðum þarlendum,
en þvi miður hafa þær nánast allar verið
á einn veg, íslendingarnir hafa hvorki
verið sjálfum sér né landinu til sóma.
-HP.
ísafjörður:
Ársgamaltinn-
brotupplýst
Upplýst hefur verið innbrot og
stórþjófnaður á Ísafirði í fyrra. Þá var
brotizt inn á úrsmíðavinnustofu og
stolið þaðan úrum og skartgripum fyrir
hálfa milljón.
ísafjarðarlögreglan veitti nýlega
upplýsingar í málinu, sem leiddi til hand-
töku manns í Reykjavík, er játaði
þjófnaðinn og gat vísað á mestallt þýfið.
ÓV.