Dagblaðið - 14.02.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979.
5
RÉTT ENN
EINU SINNI
Afstaða nokkurra ráðherra
til efnahagsf rumvarpsins
Enn einu sinni virðist samkomulag-
ið innan ríkisstjórnarinnar vera orðið i
stirðara lagi, svo ekki sé meira sagt. í
gærmorgun voru aðilar verkalýðssam-
takanna kallaðir á fund ríkisstjórn-
arinnar og þar voru þdm afhent
eintök af frumvarpi rikisstjórnarinnar
um ráðstafanir í efnahagsmálum.
Þeim var fyrirskipað að kynna sér
frumvarpið og gera tillögur um
breytingar en enn hafa ekki verið sett
nein tímatakmörk á þau skil.
Er ríkisstjórnarfundinum lauk átti
Dagblaðið stutt spjall við nokkra
ráðherra um frumvarpið og afstöðu
þeirra til þess.
HP.
Svavar Gestsson:
Viðbrögð verkalýðs-
hreyf ingarinnar eiga
eftiraðkomaíljós
„Við gerðum grein fyrir okkar af-
stöðu á fundinum,” sagði Svavar
Gestsson viðskiptamálaráðherra, „í
samráði við forystustofnanir okkar
flokks, bæði framkvæmdastjórn, þing-
flokk og stjórn verkalýðsmálaráðs. Það
eru mörg atriði í þessu frumvarpi sem
við erum ákaflega óánægðir með og við
létum það koma mjög skýrt fram á þess-
um rikisstjórnarfundi.
Hver framvinda málsins verður að
öðru leyti veit ég ekki ” sagði Svavar
ennfremur. „Þarna eru mörg atriði sem
snerta verkalýðshreyfinguna ákaflega
mikið og ég geri ráð fyrir að viðbrögð
hennar komi i ljós á næstu sólarhring-
um.”
HP.
Benedikt Gröndal:
Við erum m jög
hlynntir f rumvarpinu
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
skoðaði þetta frumvarp þegar hann fékk
það og við erum mjög hlynntir því,”
sagði Benedikt Gröndal utanríkis-
ráðherra. „Við teljum að i meginat-
riðum sé hér um að ræða víðtæka
áætlun um harða baráttu gegn
verðbólgu.
1 þvi eru einmitt mjög ákveðnir fyrir-
varar um það að gæta þess alltaf aö at-
vinna verði full í landinu,” sagði Bene-
dikt ennfremur. „Við höfum opin augu
fyrir hættu á atvinnuleysi og munum
tryggja að svo verði ekki og ég vil ekki
taka undir hrakspár um atvinnuástand
— tel að ekki sé ástæða til þess.”
Benedikt var að því spurður hvort
ríkisstjórnin væri að leggja upp laupana:
„Nei, nei. Hún er nú búin að lifa ýmis-
legt af! Ætli hún tóri ekki.”
HP.
Mun Sjálfstæðisflokkurinn veita
[ minnihlutastjómstuöningsinn?
Geir Hallgrímsson:
)
Ótfmabær spurning
„Það er ekki tímabært að svara slikri
spurningu,” sagði Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, er hann
var að því spurður hvort flokkurinn
myndi veita minnihlutastjórn Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokksins
stuðning. „Ég hef ekki séð þessi frum-
varpsdrög og stuðningur við minnihluta-
stjórn hlýtur að byggjast á málefnaleg-
um grundvelli að einhverju leyti, eða i
það minnsta að menn þyldu ákveðið á-
stand í ákveðinn tima.
Svar við þessari spurningu verður því
ekki gefið fyrr en öll kurl eru komin til
grafar,” sagði Geir ennfremur. „Mér
finnst allar gerðir ríkisstjórnarinnar frá
hennar fyrstu göngu vera því marki
brenndar að hún sé að gefast upp.”
EllertSchram:
VENJULEG
LÁTALÆTI
„Ég held að það sé ekki kominn tími
til þess að kveða upp úr með það, ég held
að þetta séu bara venjuleg látalæti hjá
þeim,” sagði Ellert Schram alþingis-
maður. „Þeir eru bara að spila sitt
venjulega sjónarspil.”
„Við leggjum fram tillögur okkar í
efnahagsmálum núna á næstunni og
þær stangast í grundvallaratriðum á við
það sem nú er verið að tala um í rikis-
stjórninni,” sagði Ellert ennfremur.
-HP.
Ólafur Jóhannesson:
FRUMVARPK)
GETUR TEKIÐ
BREYTINGUM
„Ég er bjartsýnn á að samkomulag
náist um þetta frumvarp,” sagði Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra. „Þetta
frumvarp getur auðvitað tekið einhverj-
um breytingum, það er verið að kynna
það núna fyrir samráðsaðilum og stjórn-
arflokkarnir eru að fjalla um það.
Hvenær það verður lagt fyrir þingið
get ég ekkert sagt um,” sagði Ólafur enn-
fremur. „Þessir aðilar verða að fá tíma
til þess að skoða frumvarpið og gefa sitt
álit.
Nei, ég er ekki hræddur um að ríkis-
stjórnin sé að syngja sitt síðasta, það er
ekki rétt til orða tekið,” sagði Ólafur.
„Kvíðinn? — Ekki heldur”.
-HP.
.Ólafur Jóhannesson var hins vegar bjartsýnn á samkomulag...
Ragnar Arnalds taldi litlar likur á sam-
komulagi um frumvarpið á næstunni...
Ragnar Arnalds:
Ekkert
sam-
komulag
r
a
næstunni
„Ég átti von á þvi að samkomulag
gæti tekizt núna einhvern daginn. eftir
að ráðherranefndin var búin að skila
skýrslu sinni og hafði náð samkomulagi
um ein 30 efnisatriði," sagði Ragnar
Arnalds menntamálaráðherra. „Að visu
var ágreiningur um eitt og annað en
eftir að forsætisráðherra hefur nú lagt
fram frumvarp sitt, sem í verulegum at-
riðum er frábrugðið þeirri samstöðu sem
rikti í ráðherranefndinni, verð ég að
segja að ég tel vera komið í hið mesta
óefni og að það sé ekkert samkomulag
fyrirsjáanlegt á naístunni.”
-HP.
---- ^
U N!* hrj
♦ UNGLINGA &
DANSLEIKUR 9 1
CMmgÍtiÆ
yysnyrtívörukgnníngWJ
y/ í kvöld gefst kostur á ókeypis snyrtingu Vy
yj með snyrtivörum frá CLINIQUE W
/ Snyrtisérfrœðingar koma í heimsókn og '
snyrta nokkur andlit úr hópnum kl 1030
CLINIQUE snyrtivörur eru unnar úr náttúrulegum
efnum án ilmefna og eru þar af leiðandi mildarog
sérlega heppilegar fyrir unga og viðkvœma húð.
Mickie Gee
er hress og kátur og heldur uppi
fjörinu Nú hefur hann verið að í
569
tíma
video
JOHN TRAVOLA
OLIVIA NEWTON-
JOHN
VILLAGE PEOPLE
OG MARGIR
FLEIRI
Munið söfnunina ”GLEYMD BÖRN '79,
-HP.