Dagblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 24
Launþegasamtökin:
JAFNGILDIR ÞVIAÐ
STÖRFUM VÍSITÖLU-
NEFNDAR SÉ SLITIÐ
ef nahagsf rumvarpið lagt f ram án samráðs við kjarna launþegasamtakanna
Miðstjórn ASl og stjórnir BSRB og
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins telja að störfum vísitölunefndar
hafi verið slitið með framlagningu
frumvarpsins um efnahagsmálin.
Vísitölunefnd hafði leitaö álits og
umsagnar þessara aðila á þeim þætti
frumvarpsins, sem fjallar um verð-
bætur á laun. Áður en þessi kjami
launþegasamtakanna hafði tjáð sig um
málið, var frumvarpið lagt fram með
óbreyttum tillögum formanns vísitölu-
nefndar.
Með þessari aðferð telja áðurgreind-
ir aðilar, að ekki sé lengur eða frekar
óskað umfjöllunar þeirra á því veiga-
mikla atriði, sem verðbætur á laun
eru, og raunar ekki frumvarpinu i
heild.
Ekki hefur fengizt staðfest, að mið-
stjóm ASÍ hafi í verulegum atriðum
getað fallizt á sjónarmið vísitölunefnd-
ar um verðbætur á laun, utan þess,
sem frekari viðræður hefðu getað leitt
til samninga um.
Þó hafi ASÍ algerlega hafnað bráða-
birgðaákvæðum, sem meðal annars
voru um níu mánaða frestun á verð-
bótum, sem fóru fram úr 5% hverju
sinni, hinn 1. júni, 1. september og 1.
desember 1979.
Þá hafi ASÍ einnig hafnað II. kafla
bráðabirgðaákvæða um fyrirkomulag
á verðbótum á grunnlaun.
Þegar frumvarpið var hins vegar
lagt fram í heild, þar með talinn kafl-
inn um verðbætur, sem vísitölunefnd-
in óskaði sérstaklega álits á, taldi mið-
stjórn ASÍ, BSRB og Fiskimanna- og
farmannasambandið, að frekari um-
fjöllun um erindi vísitölunefndar væri
tómt mál að tala um. Hefði málið í
heild verið fært á annað stig og störf
vísitölunefndarinnar ekki lengur raun-
hæf.
Þingflokkur Alþýðuflokksins lagði
mikla áherzlu á, að frumvarpið í heild
yrði lagt fram á Alþingi hið fyrsta.
Tíminn væri orðinn naumur til að
fjalla um breytingar á frumvarpinu,
heldur skyldi það lagt fram eins og það
liggur nú fyrir.
Taldi þingflokkurinn, að nauðsyn-
legar breytingar yrðu gerðar I meðferð
Alþingis.
Fulltrúar Alþýðuflokksins í mið-
stjórn ASÍ sátu hjá við atkvæða-
greiðslu um að málið væri komið á
það stig, að ekki væri eðlilegt að ræða
frekar erindi vísitölunefndar og óskir
hennar um álit launþegasamtakanna.
„Þennan skóla má ekki
niður”
—ogþá
glumdi
lófatakið
f salog
leggja
anddyri
„Ég er þá eitthvað úti að aka ef það er
ekki rétt hjá mér að allir foreldrar hér
inni eru sammála um að Jjennan skóla
má ekki leggja niður,” sagði Bjarni
Bjarnason kennari, einn þeirra foreldra,
sem var á fjölmennum fundi í Æfinga-
og tilraunaskóla Kennaraháskólans i
gærkvöld.
Eftir þessi orð Bjarna glumdi lófa-
klappið við i sal o° ’nddvri Æfingaskól-
ans en þar v •• ð bil fimm
hundruð f.j bæði for-
eldrar bar: o .narar og
Nemendur Æfinga- og tilraunaskóla KHt voru fjölmargir á fundinum I gær og fylgdust af áhuga með frammi á gangi.
DB-mvnd Bjarnleifur.
nemendo'
„Þess?' :.ugmyndir um að leggja skól-
ann niður eru tilkomnar frá embættis-
mönnum, sem hafa ekkert umboð til að
taka ákvörðun um slíkt,” sagði Adda
Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi í ræðu
sinni. Hún lýsti yfir andstöðu sinni gegn
slíkum hugmyndum, sem hún reyndar
tók fram að væru langt frá því að vera á
neinu framkvæmdastigi. Sama sagði
Jónas Pálsson skólastjóri, sem skýrði
hugmyndir um að leggja skólann niður
og dreifa nemendum á þrjá nærliggjandi
skóla. Sagði hann að hugmyndir þessar
væru skiljanlegar út frá fjárhagssjónar-
miði, en málið hefði vissulega fleiri
hliðar.
í lok fundarins var samþykkt tillaga
frá stjórn foreldrafélags Æfinga- og til-
raunaskólans, þar sem andmælt var ein-
dregið öllum hugmyndum um að leggja
skólann niður.
-ÓG
Hasar í, Villta
vestrinu’
— netabátar rótfiska
norðuraf Eldey
Það hefur verið gott fiskirí hjá stærri
netabátum frá Grindavik sl. hálfan
mánuð norður af Eldey, eða í „Villta
vestrinu” eins og sjómenn kalla gjarnan
þá slóð. Algengt er að bátar fái frá 10
upp í 30 tonn í róðri, sem er prýðisgott
og mun betra en mörg undanfarin ár,
skv. upplýsingum vigtarmanns í Grinda-
vík í gær. Aflinn er nær eingöngu góður
þorskur.
Stóru netabátarnir frá Grindavík eru
16 en alls eru nú gerðir þaðan út eitt-
hvað um 35 bátar. Eftir góðan sprett
linubáta uppúr áramótum hefur verið
tregara hjá þeim síðustu daga, sömu-
leiðis hjá Iitlu netabátunum á grunnslóð.
Þá hefur verið fremur tregt i trollið þótt
einn hafi landað 16 tonnum eftir tvo sól-1
arhringa við Snæfellsnes. -GS. I
Átök í Alþýðubanda-
laginu í Kópavogi
— se rjótast út vegna olíumalarmálsins
Hörð á'.oK irðast nú eiga sér stað í
Alþýðubai.dalaginu í Kópavogi og
brjótast þau fram í umræðu um olíu-
malarmálið svonefnda. Minnihluta-
flokkarnir I bæjarstjórn báru fram
vítur á formann bæjarráðs, Björn
Ólafsson fulltrúa Alþýðubandalagsins.
Tillagan var naumlega felld með
jöfnum atkvæðum og sat Helga Sigur-
jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar og
einnig fulltrúi Alþýðubandalags, hjá
við atkvæðagreiðsluna.
t bókun Helgu vegna hjásetu
sinnar kom m.a. fram að ekki færi á
milli mála að Björn hefði með láni á
oliumöl i eigu bæjarins tekið sér vald
sem honum ekki bar og að enginn ann-
ar bæjarfulltrúi hafi vitað um gerðir
hans.
Þá segir að nánast ekkert eftirlit sé
með olíumalarbirgðum Kópavogs-
kaupstaðar og hafi svo verið lengi og
ekki hafi verið skýrt fráhvernig málum
sé háttað. Þar sem slíkt gerist í einum
þætti í rekstri bæjarins vakni sú spurn-
ing hvort pottur sé ekki viðar brotinn.
Samkvæmt framansögðu gæti það átt
sér stað að embættismenn bæjarins
og/eða formaður bæjarráðs muni ekki
ótilneyddir skýra meirihlutanum frá
sé svo. Eigi þessi tilgáta við rök að
styðjast sé staða meirihlutans sem
stjórna á bænum orðin býsna veik.
Helga telur að lokum að ástæða sé
til þess að endurskoða afstöðuna til
þeirra embættismanna sem ábyrgð
bera í málinu. Vart sé hægt að starfa í
meirihluta bæjarstjórnar ef ekki megi
treysta fullkomlega öllum þeim sem
sjá um rekstur bæjarfélagsins.
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 14. FEB. 1979.
Dælðng
íháhyrn-
ingaþróna
stöðvaðist
Sjódæling i háhyrningaþróna í Sæ-
dýrasafninu stöðvaðist í hálfan annan
sólarhring fyrir skömmu i frostakafla,
að því er blaðið fékk staðfest í safninu
I morgun. Þegar allt er í lagi er dælt
um 150 tonnum af sjó um þróna á
klukkustund.
Rafmagnsbilun í dæluútbúnaði olli
stöðvun dælingarinnar. Tveir bílar
voru í stanzlausum förum með heitt
vatn til þróarinnar á meðan bilunin
stóð og að sögn verkstjóra kólnaði þar
aldrei niður fyrir sjávarhita.
Er hann var spurður hvort svo litil
vatnsendurnýjun í svo langan tíma
hefði hugsanlega skaðað dýrin, taldi
hann svo ekki vera. Þegar dælurnar
komust í lag olli það nokkrum erfið-
leikum að frosið var i öllum leiðslum,
sem varð m.a. til þess að hlé á dælingu
varð svona langt.
í morgun var þriðji eftirlifandi
háhyrningurinn á greinilegum bata-
vegi að sögn verkstjóra, en hinum
líður allvel.
í dag mun Dýraverndunarnefnd
ríkisins funda um áframhaldandi
starfsleyfi safnsins, sem er útrunnið,
og Dýraverndunarsambandið mun
einnig funda um afstöðu til dómsrann-
sóknarástarfsemisafnsins. -GS
Fjármálaráðuneytiö:
Treystirkonum
ekkifyrir
skyldusparnaði
hjónanna
Margar konur telja sig misrétti
beittar þessa dagana varðandi endur-
greiðslu skyldusparnaðar af skatt-
tekjum fyrir árið 1976, sem veriðer að
endurgreiða nú.
Þrátt fyrir að þær hafi unnið fulla
vinnu og þannig lagt til hlutfall
skyldusparnaöar hjónanna, fá þær
ekki að taka endurgreiðslurnar út. Til
þess að fá skuldabréfið í hendurnar
þurfa þær óyggjandi vottorð eigin-
mannsins og sömuleiðis til að fá það
innleyst. Ekki er tekið til greina þótt
konurnar leggi fram fullgild skilríki
þess efnis að þær séu giftar viðkom-
andi manni. Bréfin eru skráð á eigin-
mennina og maka hvergi getið.
Blaðið bar þetta undir Bergþóru Sig-
mundsdóttur, framkvæmdastjóra
Jafnréttisráðs, sem var málið kunnugt,
og sagði hún að strax í fyrra, er þetta
kom í Ijós, hafi verið farið fram á leið-
réttingu þessa við fjármálaráðuneytið.
Þá var hins vegar búið að ganga frá
bréfunum fyrir 1977, en ráðuneytið
hefur fallizt á að ganga þannig frá
bréfunum fyrir 1978 að konur geti
einnig innleyst þau. Verða þá nöfn
beggja notuð. Það verður þá væntan-
lega árið 1981, sem konum verður
fyrst treyst til að taka viö endur-
greiðslu sparifjár. -GS.