Dagblaðið - 14.02.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979.
Til leigu í mióbænum
á 2. hæð í steinhúsi ca 90 fermetrar, einnig ca
115 fermetra húsnæði tilvalið fyrir skrifstofur
eða léttan iðnað.
Upplýsingar í síma 25252 á daginn og 20359 á
kvöldin.
Iðnaðarhúsnæði
til leigu
Höfum til leigu fullfrágengið iðnaðarhúsnæði
á Skemmuvegi 6 í Kópavogi, 250—300 m2.
Lofthæð 3,50 m (frí lofthæð 3,20 m). Mal-
bikað útisvæði og bílastæði, ca 470 m2. Aðeins
hreinleg starfsemi kemur til greina.
Upplýsingar gefur Páll Hannessson c/o Hlað-
bærhf.,sími 75722.
GEÐVERNDAR
Pósthótf 1308 eða skrifstofa félagsins
■ QEOVERNC*RFÉUO ISLANDSB Hafnarstræti 5, simi 13468.
Laus staða
Staða lektors í lyfjafræði lyfsala í Háskóla Islands er laus til umsóknar.
Umsóknarfresturer til 15. mars 1979.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf er þeir hafa
unniö, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 Reykjavík.
Menntamálar&ðuneytið,
12. febrúar 1979.
Norrænir styrkir til þýðingar
og útgáfu Norðurlandabókmennta
Fyrri úthlutun 1979 á styrkjum til útgáfu norrænna bókmennta í
þýðingu af einu Norðurlandi á annað fer fram á fundi úthlutunar-
nefndar 7.-8. júní nk. Frestur til að skila umsóknum er til 1. apríl
nk. Tilskilin umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 Reykjavík, en umsóknir ber að
senda til Nabolandslitteraturgruppen, Sekretariatet for nordisk
kultureít samarbejde, Snaregade 10, DK-1205 Köbenhavn K.
Manntamálaróðuneytið,
7. febrúar 1979.
—Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjóBsgötu 49 - Simi 15105
|p FráBorgar-
bókasafninu
Bústaðabókasafn í Bústaðakirkju verður lokað
frá og með laugardeginum 17. febrúar um
óákveðinn tima vegna lagfæringa.
Rannsóknarmaður
í efnafræði
Rannsóknarmaður- óskast til starfa við efna-
fræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans.
Æskileg menntun: BS próf í efnafræði eða
hliðstæð menntun. Laun samkvæmt launa-
kerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist framkvæmda-
stjóra Raunvísindastofnunar Háskólans Dun-
haga 3, fyrir 15. febrúar n.k.
FYLGISMENN
KEISARANS
BERJAST ENN
Menn úr fyrrum leynilögreglu keisar-
ans í Iran virðast enn veita mótspyrnu í
borginni Tabriz nærri landamærum
Sovétríkjanna, samkvæmt útvarpsfregn-
um þaðan. Eru þetta fyrstu fregnir af
beinni andstöðu við hina nýju stjórn
landsins síðan byltingin var gerð fyrir
nokkrum dögum. Ekki kom fram í frétt-
um hve harðir bardagarnir væru en sagt
var að liðsmenn leynilögreglunnar ækju
um götur Tabriz og skytu á vegfarendur.
Einnig eru þeir sagðir hafa ruðzt inn á
heimili, sjúkrahús og moskur.
Blaðið Journal De Teheran sagði eftir
heimildum sinum að tvennum sögum
færi af afstöðu þeirra herdeilda, sem
staðsettar væru í Tabriz. Svo virtist sem
allir liðsmenn þeirra hefðu ekki tekið til-
lit til áskorunar herstjórnarinnar um að
láta innanlandsátökin afskiptalaus.
Talið er að sjö hundruð og fímmtiu
manns hafí fallið siðustu tvo sólar-
hringana, sem óeirðir stóðu f tran og
Baktiar forsætisráðherra var enn við
völd. Hann var á tímabili sagður hafa
ráðið sér bana en það reyndist rangt
og er hann nú I haldi stuðningsmanna
Bazargans núverandi forsætisráð-
herra. Öll sjúkrahús 1 Teheran fylltust
af föllnum og særðum og á myndinni
hér til hliðar sést hvar hópur fallinna
flugliða var lagður á ganga þar sem
ekki var um annað rými að ræða.
WvX;:;:-;
Nei heyrið þið nú:
Errol Flynn og
Tyrone Power í
ástarsambandi?
önnur eiginkona bandaríska kvik-
myndaleikarans Errol Flynn hefur
harðlega mótmælt því að nokkur fótur
sé fyrir þeim orðrómi að leikarinn hafi
átt í þriggja vikna löngu ástarsam-
bandi með kvikmyndaleikaranum
Tyrone Power árið 1948. Fullyrðingar
þess efnis koma fram í bók, sem samin
er af rithöfundinum Charles Higham
Errol Flynn.
en hann hefur frásögnina eftir fyrrum
ritara Flynns, sem á að hafa verið með
þeim Errol Flynn og Tyrone Power á
þriggja vikna ferðalagi þeirra um
Mexikó.
Eiginkona Flynn hefur lýst þvi yfir
að fyrrum eiginmaður hennar, sem
lézt áriö 1958, hefði slegiö hvern þann
niður sem vogað hefði sér að kalla
hann kynvilltan.
Flynn var aðallega í ýmsum hetju-
hlutverkum fyrr á árum en Tyrone
Power var einn helzti hjartaknúsari
bandariskra kvikmynda á sinni tíð.
Hann er einnig látinn.
Að sögn höfundar bókarinnar;
Charles Higham, hafði Tyrone Power
nýlokið við að leika í kvikmyndinni
Captain from Castile og var orðinn
heldur leiður á þeirri rómantísku
þvælu, sem þar yfirgnæfði allt. Hafi
leikararnir haft það í flimtingum sín á
milli að þarna væru þeir mestu karl-
stjörnur Hollywood saman í rúminu.
Höfundurinn sagði um mótmæli
fyrrum eiginkonu Errol Flynn að
honum þætti leitt að hrella hana en
staðreyndin væri sú að hún hefði ekki
hugmynd um nema lítinn hluta þess
Tyrone Power.
sem eiginmaður hennar hefði tekið sér
fyrir hendur á lifsleiðinni. Flynn þótti
á sinni tíð lítill hófsmaður og lézt
aðeins rúmlega fimmtugur, þá ger-
samlega farinn að kröftum, andlega og
líkamlega.