Dagblaðið - 14.02.1979, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979.
40 skólanemar í herferð til
„átaks í orkuspamaði”
■.........
Háskólinn,Tækni-
skólinn ogVélskólinn
starfa saman
að verkefninu
Nemendur þriggja skóla, Háskóla
tslands, Tækniskólans og Vélskóla
tslands eru í þann veginn að hefja
aðgerðir sem eru liður í „átaki til orku-
sparnaðar”, en að því stendur aftur
iðnaðarráðuneytið.
Ætlunin er fyrst og fremst sú í
byrjun að huga að kyndingarmálum
húsa og athuga leiðir til lækkunar á
þeim gífurlega kostnaði sem kyndingu
er samfara. Horfir nú svo að kynding-
arkostnaður með olíu hækki um ca
50% eða fari úr rúmlega 400 þúsund
kr. fyrir 500 rúmmetra einbýlishús í
6—700 þúsund krónur á ári.
Fyrir nokkrum árum tók einn
bekkur Vélskólans sig til undir forystu
kennara síns, Ólafs Eiríkssonar, og
gerði könnun á kyndikötlum húsa á
Akranesi. Útkoman varð mikill
sparnaður sem fékkst með stillingu
katlanna, sem nemarnir sáu um, og að
fá úr hverjum katli sem næst hámarks-
nýtingu.
Þá fengu vélskólanemar aðstoð
viðskiptamálaráðherra sem útvegaði
þeim 10 stillingartæki fyrir kyndikatla.
Gerðu síðan ýmsir nemendur Vél-
skólans sams konar stillingarherferðir
í sínum heimaplássum.
Nú er „átak til orkusparnaðar” fært
út. Prófessor Valdimar K. Jónsson
hefur haft forystu um undirbúning að
samstarfi nema skólanna þriggja. 1 dag
verður fundur með fyrstu 40
nemendum þessara skóla sem hefja
herferðina. Þar flytur m.a. Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra ávarp.
-ASt.
~ 79
ÁZ'ýl
Nokkrir þátttakendanna 1 danskeppni Klúbbsins liðka sig áður en að keppninni sjálfri kemur. DB-mynd Ragnar Th.
VÍNRÁNIÐ
FÓRÚTUM
ÞÚFUR
— aðeins talið að 3 pelaf löskur vanti á birgðimar
fSundahöfn
Þrir kassar af áfengi fundust úti við
girðingu umhverfis vöruskála Eimskips
við Sundahöfn i gær en eins og skýrt var
frá i gær varð vaktmaður var tveggja
manna sem hlupu frá opnum gámi er
þeir urðu mannaferða varir.
Mennirnir sem til sást sluppu en vakt-
maðurinn telur þá hafa verið 17—18 ára
gamla. Kvaddi vaktmaðurinn lögreglu á
staðinn og fann hún nokkra gáma opna,
sem vera áttu læstir, og munu hafa sézt
einhver merki þess að lásar og innsigli
hefðu verið klippt sundur eða slitin.
Þá sáu lögreglumenn að í einn kassa í
gáminum sem mennirnir hlupu frá
vantaði 3 pelaflöskur af Seagrams viskíi.
Er talið hugsanlegt að mennirnir hafi
haft þær á braut meö sér og verið að
undirbúa meiri þjófnað með burði kass-
anna þriggja út að girðingu.
Vaktmaður á þessum staðer alldrjúga
stund að ganga um sitt vaktsvæði en
gerir það reglulega og varð manna-
ferðanna var 1 slíkri ferð.
Seðlabankinn:
Betra jaf n-
vægi á pen-
ingamark-
aðnum en
um árabil
„Með hækkun almennra bankavaxta
tvívegis á árinu 1977 og í febrúar 1978
var lagður grunnur að meiri innlána-
myndun og betra jafnvægi á peninga-
markaðnum en verið hefur um árabil,”
segir í fréttatilkynningu Seðlabankans
um stöðu peningamála á sl. ári.
Segir þar einnig að stjórnmálaóvissa
og langur aðdragandi tveggja gengis-
fellinga hafi hins vegar valdið því að úr
innlánaaukningu hafi dregið stig af stigi
framan af árinu 1978 þrátt fýVir mikið
peningaframboð.
„Þessi þróun snérist við á síðasta
þriðjungi ársins (1978) og munar mestu
um vexti sem færðir eru inn á innláns-
reikninga í árslok. Frá ársbyrjun til árs-
loka 1978 jukust heildarinnlán um
49%,” segir í tilkynningu bankans.
,LMest var aukningin á þeim reikningum
sem bezta ávöxtun gefa, þ.e. sparifjár-
reikningum með uppsagnarfresti, en inn-
stæður á þeim jukust um 63%,
innstæður á almennum sparifjárbókum
jukust um 44% en veltiinnlán jukust um
36% tæp.”
-ÓV.
■ASt.
Rannsóknarlögreglumenn leita fótspora við húsgaflinn. -DB-mynd: Sv. Þorm.
Danskeppnirnar blómstra þessa dagana
Klúbburinn efnir
til paradanskeppni
Unnendur dansmenntarinnar fá
sitthvað við sitt hæfi þessa dagana.
Nýafstaðið er Islandsmótið í diskódansi.
í fyrri viku var efnt til maraþonkeppni í
dansi á Akureyri og síðastliðið
sunnudagskvöld hófst enn ein dans-
keppnin í veitingahúsinu Klúbbnum.
Keppnin í Klúbbnum er með svipuðu
sniði og gefur að lita í kvikmyndinni
vinsælu, Saturday Night Fever. Pörin
sem keppa semja dansa sína sjálf við á-
kveðið lag.
Fyrsti riðill keppninnar var haldinn
síðastliðið sunnudagskvöld. Alls verða
riðlarnir þrir eða fjórir, eftir því hve
þátttakan verður góð. Siðast verður
síðan úrslitakeppnin haldin þar sem
sigurvegarar allra riðlanna reyna með
sér.
Þau sem báru sigur úr býtum síðast-
liðið sunnudagskvöld voru pörin
Guðmundur Hreiöarsson og Elín
Garðarsdóttir og Haukur Clausen og
Sigríður Guðjohnsen. ■ _AT-
Suðausturlína:
Aðveitustöðv-
i
ar kosta 2.1
milljarð
— og hver lagður km 15.6-17.9 milljónir
í umræðum um Bessastaðaárvirkj-
un greinir menn mjög á um kostnað
við suðausturlínu, þ.e. raflínu frá
Skriðdal um Djúpavog og Höfn til
Sigöldu.
1 greinargerð Birgis Jónssonar
jarðfræðings og Gunnlaugs Jónssonar
eðlisfræðings, starfsmanna Orkustofn-
unar, kemur fram að kostnaðurinn við
linuna sé um 6 milljarðar króna. Siöan
koma fram nánari upplýsingar frá
línudeild RARIK, þar sem miðað er
við verðlag i janúar 1979, en þar
kemur fram að áætlaður kostnaður
suðausturlínu, eftir tengingu við Sig-
öldu og Hryggstekk, sé 7,1 milljarður
kr.
Erling Garðar Jónasson rafveitu-
stjóri á Austurlandi telur þetta mat of
lágt. Hann segir að verð á línulögninni
sé rúmlega 20 milljónir króna á hvern
km (ekki 210 millj. kr. eins og
misprentaðist í DB), en ekki rúmlega
15 milljónir kr., eins og Birgir og
Gunnlaugur geri ráð fyrir.
Þá segir Erling Garðar að í þessum
tölum sé ekki reiknað með um tveggja
milljarða króna kostnaði við aðveitu-
stöðvar vegna linulagnarinnar.
Samúel Ásgeirsson yfirverk-
fræðingur linudeildar RARIK sagði
að lauslega áætlað væri kostnaður á
hvern km frá Hryggstekk til Hafnar
17.9 milljónir króna en þar sem
greiðfærara væri, þ.e. frá Höfn að
Kirkjubæjarklaustri, væri álitið að
kostnaður væri 15.6 milljónir á hvern
km. Fyrrnefndi áfanginner210km en
sásíðamefndi 170 km.
Þá rasddi DB við Pétur Þórðarson
verkfræðing í áætlunardeild RARIK
og sagði hann að heildarkostnaður
vegna aðveitustöðva við línuna frá
Hryggstekk að Sigöldu næmi um 2.1
milljarði króna. Það verk er algerlega
óunnið en útgangstengi þarf við Sig-
öldu og síðan aðveitustöð við
Klaustur, Höfn og Djúpavog og aftur
aðveitutengi við Hryggstekk. Þessi
kostnaður bætist við línulögnina.
-JH.
Fréttir færðust til
Þau afleitu mistök urðu við vinnslu blaðsins i prentsmiðju i gær að texti aðalfréttar á
forsiðu lenti undir tengdri frétt á baksiðu og öfugt. Með vclvilja mátti sjá hver mis-
tökin voru. DB biðst velvirðingar á þessu.