Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
7
Bandaríkin:
RETTUR ÖKU-
HRAÐIOG
LÆGRIHITI í
HÚSUM GÆTI
VEGIÐ Á VIÐ
OLÍU FRÁ ÍRAN
— tvennum sögum fer af orsökum olíukreppu
Tvennum sögum fer af raunverulegri
ástæðu fyrir hækkandi oliuverði og olíu-
skorti á vesturlöndum. t gær var haft
eftir James R. Schlesinger, orkuráögjafa
Bandaríkjaforseta, að hann sæi fram á
jafnalvarlega olíukreppu og varð á
árunum 1973 og 1974.
Aftur á móti var haft eftir sama
manni i fyrra mánuði að með því að
halda umferð í Bandaríkjunum innan
löglegs ökuhraða, sneiða hjá ónauðsyn-
legum akstri og lækka nokkuð hita i
íbúðarhúsum mætti spara um það bil
600 þúsund föt af oliu á dag.
Var þá ennfremur haft eftir
Schlesinger að þessi hugsanlegi
sparnaður mundi vega fullkomlega á
móti þeim 500 þúsund olíufötum, sem
flutt voru til Bandaríkjanna frá lran
áður en olíuútflutningur þaðan stöðv-
aðist.
Henry Jackson, formaður orkumála-
nefndar bandarísku öldungadeildarinn-
ar, sagði aftur á móti fyrir nokkr-
um dögum, að ekki væri lengur spurning
hvort heldur hvenær grípa þyrfti til olíu-
skömmtunar þar vestra.
Vita ekki hvort
hitinn verður
til góðs eða ills
Vísindamenn á ráðstefnu um veður-
far, sem haldin er í Genf, hafa viður-
kennt að ekki sé hægt að segja um það
með neinni vissu hvort hærra hitastig í
byrjun næstu aldar mundi verða heimin-
um til góðs eða ills.
MIKIÐ SKOTIÐ EN
MEST UPP í LOFTIÐ
Skotbardagar og óeirðir voru í
mörgum borgum íran í gær og i gær-
kvöldi. Auk árásarinnar á bandaríska
sendiráðið í Teheran og sjónvarps-
stöðina þar var vitað um að ráðizt
hafði verið á orkuver í austur-
hluta borgarinnar og sendistöð sjón-
varps um það bil 130 kilómetra norður
af borginni.
Nokkrir lranir munu hafa fallið i
bardögum um sendiráðið. í morgun
var tilkynnt að aðeins einn landgöngu-
liði, sem varðgæzlu hafði i sendiráðinu
hafi særzt.
Fyrstu fregnir hermdu, að þeir sem
hertóku sendiráðið hafi verið meðlimir
öfgafulls hóps marxista en forustu-
menn hans hafa neitað því að hafa
gefið skipun um að ráðast á nokkuð
sendiráð.
Stuðningsmenn Khomeinys eru
sagðir hafa ekið um borgina í nótt og
skotið upp i loftið og ljóst er að ekki er
full stjórn á ástandinu. Ekki hafa þó
borizt neinar fregnir um mannfall eða
særða i Teheran. Aðilar þeir sem her-
tóku sjónvarpsstöð borgarinnar
virðast hafa gefizt upp eftir þrjá
stundarfjórðunga og ekki mun neinn
hafa verið handtekinn þar.
Fregnir frá Tabriz í Norðvestur-
Iran nærri sovézku landamærunum
voru mjög óljósar í morgun. Meðal
annars er sagt að þar berjist sveitir trú-
ar keisaranum og úr Savak-leyniþjón-
ustunni gömlu gegn stuðningsmönn-
um Khomeinys. Einnig hafa borizt
fregnir af stuðningi flughersins við
hina síðarnefndu. Mjög er þó talið
ólíktlegt að herinn í tran muni beita
sér fyrir einu né neinu á næstunni. Sizt
af öllu gegn Khomeiny og mönnum
hans. Sagt er að baráttuandinn sé í lág-
marki eftir að herinn lét undan síga á
götum Teheran. Æðstu yfirmenn hers-
ins munu auk þess vera annaðhvort
fangaðir, flúnir eða mjög hugsandi um
eigið skinn.
WtKXiexJg.
Nýr verslunarstjóri
Garðar Guðmundsson
MALNINGARMARKAÐUR
VEGGSTRIGI rnííðvíðJLi^A
VEGGDUKUR \Shefur .
VEGGFÓÐUR ^yaUtborgí^Á
OPIÐ LAUGARDAGA TIL HÁDEGIS
Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18 — Sími 82444
V i 'ív tfe*. '
Á ■
k ■ i