Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
<S
Útvarp
27
Sjónvarp
i
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp íkvöld kl. 20.10:
Hver er samábyrgð
manns og samsekt?
Hver er samábyrgð ma’nnsins eða
samsekt hans gagnvart meðbræðrum
sínum? Þessi spurning er aðalinntakið í
mörgum verka John Boynton Priestley.
Leikrit eftir hann verður flutt í útvarp-
inu í kvöld. Heitir það Linditréð. Þýð-
andi og leikstjóri er Ævar R. Kvaran.
Leikritið gerist í Burmanley, iðnaðar-
borg í Mið-Englandi. Linden prófessor
hefur kennt við háskólann þar í fjölda
ára. Nú er hann orðinn 65 ára og
sumum finnst timi til kominn að hann
hætti kennslunni en honum er það mjög
á móti skapi. Hann fær börn sín í heim-
sókn á afmælinu. Skoðanir þeirra eru
skiptar á þjóðfélagsmálunum og lífinu
yfirleitt. Mismunandi afstaða þeirra til
föðurins og starfs hans kemur glöggt í
ljós þegar á reynir.
John Boynton Priestley, höfundur
verksins, fæddist í Englandi árið 1894.
Hann hefur samið ljóð og gefið út. Hann
hóf leikritagerð eftir 1930 og hefur
skrifað nærri fjörutíu slík auk handrita
fyrir kvikmyndir. Leikrit hans hafa verið
sýnd í Iðnó og Þjóðleikhúsinu og nokkur
verka hans hafa verið flutt í útvarpi. ÓG
V,
J
BERNSKA í BYRJUN ALDAR- '
útvarpssaga barnanna kl. 17.20:
Samvinna möð-
ur og dóttur
Stundum andar köldu milli mæðra og
dætra þeirra og kemur það oft fram í
sögum. Á Norðurlöndum hafa kunnar
skáldkonur gefið út bækur þar sem
mæður eru dregnar upp sem hinar
verstu ófreskjur og virðist það jafnvel
vera nokkuð í tízku um þessar mundir.
En útvarpssagan, sem nú er verið að
lesa fyrir börnin, byggist á hinni beztu
samvinnu þarna í milli og er þannig til
orðin að það er dóttir sem skráir minn-
ingar móður sinnar sem fædd var árið
1895 og ólst upp við Laugaveginn í
Reykjavík. Hún lýsir þar umhverfi og
leikjum þeirra barnanna, búðarferðum
og siglingu upp á Akranes. Dóttirin sem
skráir heitir Erla Þórdís Jónsdóttir en
móðirin, sem nú er látin, hét Þórunn
Elín Jónsdóttir. Hún var ein af átta syst-
kinum. Af þeim eru enn á lífi Guðrún
Jónsdóttir og Jón Oddgeir fyrrv. slysa-
varnafulltrúi.
IHH.
J
TEPPABÚMN
SÍÐUMÚLA 31 - SÍMI 84850
l
Ullarteppin fást hjá okkur
y
HHSLFISIC ^er ster^a
ennþá sterkari...
TIL HAMINGJU...
,með 14 ára afmælið, 14.
febrúar, Bögga min.
Þin vinkona Sólveig
á Neskaupstað.
*
....með 6 ára afmælið 15.
febrúar, elsku Ásta
Hjördis mfn.
Mamma, pabbi
og litli bróðir.
*
...með 10 árin, elsku Bjössi
okkar.
Tinna Rut, Orri Páll,
Irís Björk,
Ragnhildur amma og afi
Karfavogi.
....með 14 ára afmælið 15.
febrúar, Solla mfn.
Þfn vinkona Björg
á Neskaupstað.
*
....með afmælið, elsku
amma okkar.
Gunnur, Guðlaug
og Fjóla.
*
....með 17 ára afmælið 10.
febrúar, elsku Dagga.
Allir heima.
....með 50 ára afmælið 14.
febrúar, afi minn.
Mikael Jón og
Nathan Ólafur
*
....með 6 ára afmælið 7.
febrúar, Finnbogi minn.
Amrna, afi, Hulda,
Steini og Ingibjörg,
Vestmannaeyjum.
*
....með frumburðinn, kæra
Olga og Ingi. Gæfan fylgi
ykkur f framtfðinni.
Samstarfsfólk þitt
á sjúkrahúsinu.
.... með merkilegan áfanga
13. febrúar og öllu þvi sem
honum fylgir.
Við 4 á Hjarðarhaganum.
*
....með 19 ára afmælið 11.
febrúar, Dfana mín.
Solla og Andrés.
*
....með afmælið, Elfn Hans.
Hér eftir verður þáttur-
inn Til hamingju á hverjum
degi f DB. Ákveðið hefur
verið að færa hann á öft-
ustu opnu.
Ef þið óskið eftir að fá
myndirnar endursendar
sendið þá frfmerkt umslag
með heimilisfangi með
kveðjunni.
Með kveðjunni og þeirri
undirskrift sem á henni á
að vera biðjum við ykkur
að gefa upp á hvaða degi
þið óskið að hún verði birt f
DB. Við munum reyna að
fara eftir þvf eftir þvf sem
kostur er.
Með kveðjunum þarf að
gefa upp nafn, heimili og
simanúmer sendanda. Ef
óskað er þá verða þau ekki
birt, en munið að við getum
ekki birt kveðjur nema
upplýsingar um sendanda
berist okkur.
NILFISK
SÚPER
/f
cw
NYR
SÚPER-MÓTOR:
Áflur
óþekktur
sogkraftur.
NYSOGSTILLING
Auðvolt að
tompra kraftinn
NYR
PAPPÍRSPOKI
MEÐ
HRAÐFESTINGU,
ennþó stœrri og þjálli.
NY
SLÖNGUFESTING:
Samboðin nýju
kraftaukandi
keiluslöngunni
NYR VAGN:
Sterkari,
stöðugri,
liprari,
auðlosaður
i stigum.
sogorka í sérflokki
Ofantaldar og fleiri nýjungar auka enn hina sfgildu verðleika Nilfisk:
efnisgœði, markvisst byggingariag og afbragðs fylgihluti. Hvert smá-
atriði stuðlar að soggetu I sérflokki, fullkominni orkunýtingu, dœma-
lausri endingu og fyllsta notagildi.
Jó, svona er Nilfisk: Vönduð og tœknilega ósvikin, gerð til að vinna
sitt verk fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostn-
aði; varanleg: til lengdar ódýrust.
NILFISK
heimsins bezta ryksuga!
Stór orð, sem reynslan réttlætir.
Afborgunarskilmálar.
Traust þjónusta.
FYRSTAFLOKKSFRÁ
iFQnix
Hátúni — Sími 24420