Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979. 17 Hvað finnst þér um menn- ingarverðlaun Dagblaðsins? í tilefni barnaársins „Ég hef aldrei verið sinnaður fyrir að fólk sé verðlaunað fyrir að vinna sín dag- legu störf,” sagði Þorgeir Þorgeirsson rit- höfundur, „enda eru það ekki aðrir en listamenn og vinnuhjú sem fá slík verð- laun. Hitt er annað mál, að ef þetta getur hjálpað til þess að listamenn fái í sig og á, þá er þetta ágætt. Fólk sem á smóking verður líka að fá að nota hann öðru hvoru. En með að njóta listar er það eins og að skapa hana — það ger- ist ekki nema af innri þörf. Maður heyrði að verðlaun dagblað- anna hefðu verið lögð niður hér um árið því það voru svo margir óheppilegir menn farnir að fá þetta. En mér finnst þetta ágætis uppátæki í tilefni bamaárs- ins — að gleðja smælingjana — þvi að Þorgeir Þorgeirsson listamenn eru fólk, sem er að berjast við að verða ekki fullorðið.” Kurteisin að vera dauður „Jú, endilega ber að veita alls konar menningarverðlaun og sem mest af þeim, ekki veitir af,” sagði Thor Vil- hjálmsson rithöfundur. „Listamenn hafa margir svo óvissar tekjur að helzta vonin sumra er að vinna í svona happa- drætti — æ, eru þetta ekki peningaverð- laun, hver skrambi, nú jæja, þá er von um hitt sem er ekki síður mikilvægt; það er þrasið og illindin, sem vekur umtal. Það þyrfti að vera tryggt að kringum slíka verðlaunaveitingu verði karp og blástur og hvæs. Þeir eru kannski óánægðir sem hefðu átt að fá en fá ekki, einhverjir; þó vill bera á reiðifnæsi og fúkyrðum hinna sem með réttu koma ekki.til greina. Ef athygli og eftirlit skortir getur verið hætta á því að urtagarður menn- ingarinnar (kulturens kökkenhave) legg- ist á pörtum, kannski allir, undir arfa. Stundum grunar mann að ýmsir yrðu fegnastir því, óskuðu sér jafnvel helzt að listamenn væru svo kurteisir að vera Thor Vilhjálmsson dauðir, eða minnsta kosti látast vera það, svo friður fengist til að elska listina yfirmáta og undurheitt, ótrúflað af þeim sem eru að búa hana til. Góða vakt á Dagblaðinu í þessu nýja hlutverki.” Sígilt blað? „Ég var spurð að því um daginn hvað list væri og svaraði því til að það væri' allt sem er listavel gert,” sagði Hildur Hákonardóttir vefari. „Að Dagblaðið, sem tók sér þetta poppaöa nafn og vinnur með dægurmál, ætli að fara að vinna á ársgrundvelli finnst mér benda til þess að blaðið langi til að fara að verða sígilt.” Menningarverðlaunin: MEST ÞÁTTTAKA í BÓKMENNTUM Nú hafa formenn allra dómnefnda fengið úrslit atkvæðagreiðslunnar í hendur og munu þeir taka ákvörðun um það að hve miklu leyti þeir munu taka tillit til þeirra. Hér á eftir og næstu daga birtum við viðtöl við nokkra listamenn þar sem við spyrjum þá um álit á þessum verðlaunum blaðsins og sömuleiðis munum við síðar fylgjast með loka- vinnu Jónínu Guðnadóttur við verð- launagripina. -AI. Nú er lokið talningu þeirra atkvæða sem bárust vegna fyrirhugaðra menn- ingarverðlauna DB sem veitt verða þann 22. febrúar nk. Eins og búast mátti við var þátttakan mest í bók- menntaliðnum' en minnst í bygginga- jtistinni, en í fyrrnefnda liðnum, svo pg í myndlistinni, bar nokkuð á yftr- burðum einstakra listamanna en í leik- list og tónlist virtist nokkurt jafnræði vera meðfólki. Athyglisvert var einnig að sumum fannst svo mikið til þessara verðlauna koma að þeir reyndu með öllum til- tækum ráðum, aðallega fjöldaat- kvæðagreiðslu, að hafa áhrif á úrslit. Einnig var vart við það að einstaka listamaður var svo áfjáður í verð- launagripi Jónínu Guðnadóttur að hann greiddi sjálfum sér atkvæði í nokkuð mörg skipti. DB leit að sjálf- sögðu á þetta sem gullhamra en neyddist til að fleygja öllum slíkum at- kvæðum til aðfullnægja réttvísinni. Agætt nema... „Sérlega tímabær hugmynd og nokkuð gott hjá blaðinu að úthluta leir- fuglum til þeirra sem hæst fljúga um þessar mundir í listum og bókmennt- um,” sagði Jónas Guðmundsson rithöf- undur. „Kannski hefðuð þið átt að bjóða þeim leirböð líka. Þau úrslit sem þegar hafa birzt (á Stjörnumessunni) sýna að 1 svona keppni getur allt gerzt, samanber verð- 'laun Silfurtúnglsins sem er svo þungt á sér með tveggja ára kvikmyndafé þjóð- arinnar um borð að það kemst ekki einu sinni til Svíþjóðar.” Jónas Guðmundsson Kristbjðrg Kjeld Steinunn Sigurðardóttir „Mér finnst þetta gott, ef menn taka það ekki hátiðlega,” sagði Kristbjörg Kjeld leikkona ... ... og Steinunn Sigurðardóttir rithöf- undur tók í sama streng og ságði: „Ég er hlynnt öllum svona menningarverðlaun- um, ef það má treysta því að almenn- ingur taki ekki mark á þeim.” Flosi Ólafsson Eg óttast aðþau lendi ekki á réttum stað „Mér firinst ekki nema gott eitt um þessi menningarverðlaun að segja,” svaraði Flosi Ólafsson leikari og rithöf- undur m.m. „Ég er bara hræddur um að þeir fái ekki verðlaunin sem verðugastir éru. Dæmin eru nærtæk — ég hef sjálfur aldrei fengið verðlaun fyrir list- ræn afrek mín!!” 17 tegundir á þorrabakkanum HANGIKJÖT LIFR ARPYLSA SVIÐASULTA MARINERUÐ SÍLD RÓFUSTAPPA RÚGBRAUÐ SVÍNASULTA FLATKÖKUR SÚRIR BRINGUKOLLAR SMJÖR SÚRIR HRÚTSPUNGAR ÍTALSKT SALAT SÚRIR LUNDABAGGAR HARÐFISKUR SÚR HVALUR HÁKARL BLÓÐMÖR /70 ár höfum við verið ífremsturöð. Við bjóðum aðeins fyrstaflokks súrmat á þorranum. Úrvals skyr- ogglerhákarl. Seljum þorramatíminni Heildsala ogsmásala og stærri þorrablót KJÖTVERZLUN TOMASAR LAUGAVEGI2 - SÍMAR11112 -12112

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.