Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979. jmBIABW Útgefandt Dagblaðíð hí. FrumkvmmdaatjóH: Svalnn R. EyjðHaion.RHalJóri: Jðnaa Kriatjðnaaon. Fréttaatjórí: J&n Blrglr Péturaaon. RHatjómarfultriit Haukur Hatgaaon. Skrifatofuatjðri ritatjömar Jóhannaa RaykdaL Iþróttlr. Halur Slmonaraon. Aðatoðarf róttaatjórar AtH Stalnaraaon og Ómar Vatdk maraaon. Mannlngamtól: Aðabtalnn IngóHaaon. Handrit Aagrimur Pólaaon. Blaðamann: Anna Bjamaaon,' Aagalr Tómaaaon, Bragl Slgurðaaon, Dóra Stefónadóttk, Olaaur Sigurða- aon, Gunnlaugur A. Jónaaon, HaDur Haðaaon, Hatgl Póturaaon, Jónaa Haraldaaon, Ólafur Gakaaon/ Ólafur Jónaaon. Hönnun: Guðjón H. Pólaaon. Ljóamyndlr Aml PóH Jóhannaaon, BjamloHur BjamlaKaaan, Hörður Vllhjólmaaon, Ragnar Th. Slgurða- aon, Svalnn Þormóöaaon. Skrifatofuatjóri: Ólafur EyjóHaaon. Gjaldkart Þróinn ÞorioHaaon. Sökiatjóri: Ingvar Svalnaaon. DraKlng- aratjóri: Mór E.M. Hatdóraaon. Ritatjóm Slðumóla 12. Afgralðala, óakrtftadakd, auglýalngar og akrifatofur ÞvarhoM 11. Aðataiml blaðakia ar 27022 (10 Hnuri. Aakrtft 2500 kr. ó mónuði Innanlanda. I lauaaaðki 125 kr. ekitaklð. Satning og umbrot Dagblaðlð hf. Slðumóla 12. Mynda- og plðtugarð: Hlmk hf. Slðumóla 12. Prantun Aryakurhf. SkaHurmi 10. Á brott í tæka tíð Hinn mikli hávaði, sem orðinn er vegna meints tillitsleysis Ólafs Jóhannes- sonar forsætisráðherra í garð vísitölu- nefndar, verður ekki skilinn, nema menn átti sig á nýjustu fyrirætlun Lúðvíks Jósepssonar, sem ekki hefur verið haft hátt um. Eins og Dagblaðið sagði í leiðara í gær hefur Alþýðu- bandalagið beint kastljósinu að vísitölunefnd. Það eyðir miklu minna púðri og rúmi í atvinnusamdrátt og verð- bótafrestun launa í efnahagsfrumvarpi Ólafs Jóhannes- sonar. Alltaf er óbragð að ágreiningi, sem leggur meira upp úr formsatriðum en efnisinnihaldi. Og það er einkar at- hyglisvert að sjá hvern verkalýðsrekenda Alþýðubanda- lagsins á fætur öðrum ólmast út af því, að Ölafur skuli halda framhjá vísitölunefnd. Forsætisráðherra hefur svarað þessum ásökunum á einfaldan hátt. Hann segir, að verði í vísitölunefnd sam- komulag um eitthvað annað, muni sú niðurstaða koma inn í frumvarpið í stað núverandi kafla um breytingar á verðbótum launa. Svona einfalt er málið og ekkert tile{ni moldviðris. Miklu trúlegra væri moldviðri, sem þyrlað væri upp vegna atvinnusamdráttar og verðbótafrestunar. Sam- dráttarkaflar frumvarpsins gætu magnað þau teikn, s> m nú eru á lofti um atvinnuleysi. Og frestun verðbóta stríðir gegn kjörorðinu: „Samningana í gildi”. Um þessi atriði má deila. Ólafur hefur ekki hróflað við eðlilegum verðbótum 1. marz. Og enn er óvíst, að verð- bólgan verði svo mikil í vor og sumar, að frestun verð- bóta umfram 5% komi til framkvæmda. Ennfremur er ekki enn neitt átvinnuleysi í landinu, þótt slæmar blikur séu á lofti í ofvöxnum byggingariðn- aðinum. Ríkisstjórnin getur hvenær sem er snúið þvert af samdráttarbrautinni, ef atvinnuleysi ætlar að verða vandamál. Kjarni málsins er sá, að leiðtogar Alþýðubandalagsins sjá eins og aðrir menn, að allar forsendur efnahagsmála hafa gerbreytzt á síðustu vikum. Þeir atburðir hafa gerzt, að sultarólin herðist, hvort sem við viljum eða ekki. , Hrun keisaradæmisins og bylting múhameðstrúar- manna í Persíu hefur þegar valdið mikilli verðhækkun á olíu og á eftir að valda meiri hækkun. Hinn vandinn er sá, að minnkun þorskafla úr 330 þúsund tonnum í 250 þúsund tonn virðist óumflýjanleg. Ríkið og olíufélögin geta neitað sér um aðild að gróðanum af olíuhækkuninni og tekið óbreyttar krónu- tölur í sinn hlut. Þar með mundu olíuvörur til neytenda hækka um jafnmargar krónur og þær hækka um í inn- flutningi, en ekki um margfaldar krónur. Samt má búast við 25% hækkun á verði olíu. Sú hækkun yrði atvinnu- vegunum geigvænlegt áfall. Að því er varðar þorskveiðarnar hefur enn ekki komið fram nein skynsamleg hugmynd um, hvernig draga megi úr þorskafla sem svarar afla 20 skuttogara, án þess að hagkvæmni veiðanna minnki verulega. Þarna er um gífurlegan, óleystan vanda að ræða. Spurningar um, hvort samningar verði í gildi, eru úr- eltar í ljósi þessara tveggja vandamála. Kringumstæð- urnar taka bara völdin, hvað sem stiórnmálamennirnir segja. Þess vegna er Lúðvík Jóseps^on nú að hugsa um að láta Alþýðubandalagið hlaupast úr ríkisstjórn í tæka tíð. Það er vegna þessa, að Alþýðubandalagið gerir úlfalda úr mýflugu meints tillitsleysis gagnvart vísitölunefnd. Kína: Mikil aukning á sjálfsgagnrýni —f jögur hundruð þúsund féllu í menningarbyltingunni samkvæmt nýjustu heimildum f rá Peking ing sem beitti ólöglegum aðgerðum við handtöku fólks, sem kom saman 1 borginni — var sagt á veggspjöldun- um. Fólk sem kom saman í borginni er talið eiga við þúsundir af bændum sem hópazt hafa til Peking á siðustu mán- uðum til að krefjast réttlátrar hegðun- ar kínverskra stjórnvalda. Á sama tíma og þessi gagnrýni kom fram birti hreyfing, sem nefnd er Lýð- ræðishreyfingin, vitnisburð um reynslu bóndakonu einnar. \ Gekk hún um götur nærri heimili Hua formanns og reyndi að selja lítið barn sitt. Gerði hún það að sögn vegna þess að hún taldi sig ekki lengur geta alið önn fyrir þvl. Haft hefur verið eftir öðrum íbúa 1 Peking að hann hafi orðið vitni að sams konar atburði á götum borgarinnar. Hafi þá kona ein hengt spjöld utan um háls barns sins þar sem það var boðið til sölu. Meira en fjögur hundruð þúsund manns voru drepnir í menningarbylt- ingunni 1 Klna á árunum 1966 til 1969. Er þetta samkvæmt frönskum heimildum, sem birtar voru hjá frönsku fréttastofunni AFP. Auk þess er talið að 1 það minnsta eitt hundrað milljónir af nærri átta hundruð millj- ónum íbúa Kína hafi á einhvern hátt orðið fyrir barðinu á afleiðingum bylt- ingarinnar. Talið er aö þessar nýju upplýsingar, sem nú koma frá Kínverjum sjálfum, séu enn eitt dæmið um þá miklu stefnubreytingu og sjálfsgagnrýni á fyrri stefnu sem sífellt verður meira áberandi í Kina. Samkvæmt frönsku heimildunum er sjálfur Hua Kuo-feng 1 forustu fyrir þessari sjálfsgagnrýnis- öldu. Á fundi í miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins viðurkenndi for- maðurinn að honum hefðu orðið á mörg mistök í samskiptum sínum við fjórmenningaklíkuna svonefndu. Eiginkona Maos formanns var þar í forustu. Mistökin urðu einkum um það bil sem verið var að handtaka fjórmenn- ingana í október árið 1976 sagði Hua. Voru kínverskir ráðamenn alltof háðir þeirri stefnu sem Mao formaður hafði áður aðhyllst. Fyrir nokkru voru fest upp vegg- spjöld í Peking þar sem handtökunum var mótmælt og í blöðum þar hafa verið birtar greinar sem leggja áherzlu á frelsi til að tjá sig og gagnrýna stjórnendur landsins. — Við mót- mælum aðgerðum lögreglunnar í Pek- " Tilefni þessarar greinar er sú um- ræða, sem nú á sér stað um meðferð drykkjusjúkra og þegnlegan rétt þeirra. Þær raddir hafa heyrzt að alkó- hólistar njóti óeðlilegrar fyrirgreiðslu almannatrygginga og sjúkdómur þeirra sé „forréttindasjúkdómur” þar eð hann hafi hlotið meiri náð fyrir augum þeirra sem völdin hafa enda sé stór hluti alkóhólista úr forréttinda- stéttunum.” Sigurður Gizurarson sýslumaður skrifar grein í Dagblaðið 2. febr. sl. undir fyrirsögninni Heilaþvottur í hag- sældarþjóðfélagi. S.G. vill færa að þvi rök, að drykkjuskapur sé ekki sjúk- dómur heldur „leikur” — að vísu mjög grár leikur. „Drykkjuskapur er aðeins ein aðferð af mörgum, sem fólk velur til að eyðileggja sig. Reykingar eru önnur aðferð. Daglegt fjölskyldurifrildi þriðja aðferðin o.s.frv.” Vill S.G. láta liggja að því með til- vitnun 1 bók eftir Claude Steiner: The Games of Alcoholics Play, að drykkju- skapur sé siðferðilegt og sálfræðilegt vandamál. Með öðrum orðum drykkjuskapur er ósiður, viljaleysi, stjórnleysi o.s.frv., ævagömul sjónar- mið, sem aðeins hafa tekið á sig nýja mynd. I rauninni ætti alkóhólistinn ekki að fá greitt úr sjúkratryggingun- um, ef þessi sjónarmið ættu að ráða, bendir S.G. á, sem út af fyrir sig eru rétt. Það skiptir þvi meginmáli hér hvort um sjúkdóm er að ræða eða ekki og þá sjúkdóm í sömu merkingu og læknisfræðin notar það orð I sambandi við óheilbrigði yfirleitt. Ég vil þvi leyfa mér að gerast fræð- ari Sigurðar, sýslumanns Þingeyinga, og annarra þeirra sem sama sinnis eru og hann. Mál er að málþófi þessu linni. félagsleg vellíðan en ekki það að vera án sjúkdóms eða fötlunar.” Á ensku: Health is a state of complete physical, mental and social weelbeing and not merely the absence of disease and in- firmity." Læknisfræðin skilgreinir aftur á móti orðið sjúkdóm, sem truflun á starfsemi eða byggingu líffæris eða hluta líkamans. 1 fyrri skilgreining- unni er heilbrigði miðað við líðan. Sá sem á við vanlíðan að striða er því vanheill, óheilbrigður, veikur, sjúkur, vanfær, fatlaður o.s.frv. Hér er um stigsmun á heilbrigði að ræða en ekki eðlismun. Nútima heilbrigðisþjónusta hefir þessa skilgreiningu WHO að leiðar Ijósi og ber að líta á hana sem stefnu- Kjallarinn BrynleifurH. Steingrímsson eða ekki. Hér falla að vísu geðsjúk- dómar og félagslegir sjúkdómar illa inn í skilgreininguna, þó að nú séu að koma fram lífefnafræðileg og lifeðlis- fræðileg einkenni þeirra. Saga geðlækninganna er einmitt hrópandi dæmi um það hvað sjúk dómshugtakið hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Geðveiki var hér fyrr á öldum, og er með sumum þjóðum enn í dag, talin stafa af illum anda, jafnvel Kölska sjálfum eða púkum hans. Tekur andi þessi sér bólfestu I líkama hins sjúka. Galdrar og gjörningar voru af hinum sama toga. Til þess að reka hina illu anda út úr hinu geðsjúka fólki var beitt öllum hugsanlegum ráðum. Menn voru jafn- vel settir i nokkurs konar skilvindur til þess að miðflóttaaflið þeytti hinum illa anda úr likamanum. Það eru ótrúlegar hryllingssögur, sem hægt er að segja af meðferð geðsjúkra. Geðsýki var það sem fólk skamm- aðist sín fyrir, hún var ættarskömm og ástvinahneisa. Um líkamlega sjúk- dóma gegndi öðru máli. Þeir voru áþreifanlegir, skiljanlegir. Beinbrot og sár voru sjúkdómar. Sjúkdómshug- takið er ennþá að breytast og þvi er óeðlilegt að halda sér fast við skilgrein- ingar (nominal eða formal), þó að þær séu nauðsynlegar i allri umræðu, svo að fólk átti sig á hvað átt er við með sjúkdómshugtökum. t dag tölum við um félagssjúkdóma eöa þjóðfélagssjúkdóma, er þá átt við hópinn en ekki einstaklinginn. Samspil mannanna innbyrðis og svo umhverf- isins er aö renna saman i eina heild, sem bezt verður skilin i samhengi. Sjúkdómar verða bezt séðir i þessu Ijósi en það gerðu reyndar forfeður vorir, Hippocrates og lærisveinar hans, fytir nærri 2500 árum. Hvað er sjúkdómur? t yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar (WHO) segir: „Heil- •brigði er algjör likamleg, andleg og markandi fyrst og fremst. Skilgreining læknisfræðinnar á orðinu sjúkdómur er aftur á móti sú túlkun, sem við beitum i dag, þegar við ákvörðum hvort telja eigi vanheilindi sjúkdóm Hvað er alkóhólismi (drykkjusýki)? 1 bók sinni The Disease Concept of Alcoholism skilgreinir E.M. Jellinek

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.