Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979. 11 AFGRQBSLUTÍMIVERZLANA í REYKJAVÍK Árið 1971 samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur nýja reglugerð um af- greiðslutíma verzlana í Reykjavik og hlaut hún staðfestingu þáverandi fé- lagsmálaráðherra Hannibals Valdi- marssonar 26. júní sama ár. Reglugerð þessi er að miklu leyti jyggð á samkomulagi félagasamtaka kaupsýslumanna og Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur og hefur að mörgu leyti gefizt vel. Hinsvegar er ekkert óeðlilegt við það, að einhverjir ófyrir- séðir vankantar hafa komið í Ijós svo og breyttar aðstæður á þeim 8 árum sem liðin eru síðan reglugerðin var gefin út og þyrfti hún því endurskoð- unar við og einhverra breytinga. Hins- vegar er það staðreynd að erfiðasta vandamálið hefur verið afskiptaleysi lögreglustjóraembættisins varðandi brot á reglugerðinni, en það hefur reynzt ókleift að fá það embætti til að gegna skyldu sinni í því efni og er þá ekki von að vel fari. Það hefur verið nokkuð föst venja að þegar nálgast kosningar hafa ýmsir borgarfulltrúar talið sér pólitískan ávinning af að tala um afnám reglu- gerðarinnar. Ekki tel ég að þeir hafi haft erindi sem erfiði þvi að öllum al- menningi þykir afgreiðslutíminn nægi- lega rúmur og verðið nægilega hátt þó ekki kæmi til kostnaðarhækkanir með lengingu, sem óhjákvæmilega kæmi inn í vöruverðið. Ein og ein hjáróma rödd heyrist þó um að afnema beri þá rammalöggjöf sem gildir um takmörk- un afgreiðslutímans. Ein slík kom fram í Dagblaðinu föstudaginn 9 þ.m. en þar kveður unglingur að nafni Steinn Logi Björnsson sér hljóðs og virðist mikið niðri fyrir. Það furðuleg- asta við þessi skrif hans er þó að hann kveðst vera nemandi í Verzlunarskóla tslands, en hefur þó auðsjáanlega ekki tileinkað sér neitt af þeim fræðum sem sá ágæti skóli hefur upp á að bjóða. Hinsvegar virðist hann hafa grúskað í Darwins kenningunni og stundað skemmtistaðaráp til að vita hvar hann fengi mestan og bestan kaupbæti 'fyrir návist sína. Ekki virðist hann hafa lesið það í bókum sínum að slíkur kaupbætir er ólöglegur á íslandi. Ekki virðist Steinn Logi heldur gera sér það ljóst hver stofnaði og stjórnar á nokkur atriði, þó ekki væri nema til umþenkingar fyrir greinarhöfund. Hann stingur t.d. upp á að eftir venju- legan dagvinnutíma verði ráðið skóla- ! fólk til afgreiðslustarfa í verzlunum og veitingahúsum fyrir lægra kaup en umsarhinn launataxti segir til um. Hefur Steinn Logi aldrei heyrt að til eru stéttafélög, sem semja um ákveðið lágmarkskaup og að óheimilt er að greiða lægra verð fyrir vinnu en þar andi með lélegt verðskyn ekkert vita að hann væri að gera eða gæti gert góð kaup. Ekki veit námsmaðurinn hvort hann vill eða vill ekki frjálsa álagn- ingu. Hann telur hættulegt að láta þennan „ribbaldalýð” ákvarða álagn- Kjallarinn peim skóla, sem hann situr í og skal ég fræða hann um að það eru ein af þeim samtökum kaupsýslumanna þ.e.a.s. Verzlunarráð lslands sem Steinn Logi telur sig umkominn að kalla glæpa- samtök. Einhverntíma hefði nemanda verið vikið úr skóla fyrir minna, en trúlega verður látið nægja að lofa við- komandi að sitja uppi með skömmina af slíku orðbragði. Þó að umrædd blaðagrein sé svo' oakin mótsögnum og vísvitandi villu- xenningum get ég ekki annað en bent greinir án tillits til hver framkvæmir hana. Auk þess er óheimilt að láta ófé- lagsbundið fólk ganga inn í annarra störf að minnsta kosti ef viðkomandi fastráðið fólk vill framkvæma þau. Steinn talar um að verðskyn neyt- enda sé lélegt, um það er ég sammála. En hefur hann ekki í Verzlunarskólan um heyrt neitt talað um mátt auglýs- inga fyrst hann furðar sig á að kaup- menn skuli benda viðskiptavinum sínum á ef þeir gefa afslátt af hinni knöppu álagningu sem nú er leyfileg. _Ef þeir gerðu það ekki mundi kaup- Jónas Gunnarsson inguna en segir þó í hinu orðinu að vinna beri að þvi, m.a. til þess að kaup- menn hætti að leita uppi dýrustu vör- una til sölu. Enn ein órökstudd og ósönn fullyrðing sem ber vott um al- gjöran menntunarskort á því sviði sem Steinn hefur valið sér. Ég skil svo við hann með þeirri frómu ósk að áður en hann skrifi fleiri blaðagreinar um þessi efni eða önnur þá kynni hann sér betur þau málefni er hann ætlar að fjalla um. Þá vil ég einnig benda kenn- urum hans og skólastjóra á að vert væri að sýna honum meiri alúð við kennslu 1 þeim fræðum er hann virðist hafa kosið að fræðast um með innrit- un sinni í Verzlunarskóla Islands. Að lokum þetta varðandi þá reglu- gerð sem er í gildi. Sumum finnst af- greiðslutíminn of stuttur. Ég vil í þvi sambandi benda á að á viku hverri er heimild fyrir 14 klukkustunda opnun- artíma fram yfir dagvinnutima sem þyrfti að greiðast með eftir- og nætur- vinnukaupi. Ég veit ekki um neinn sem treystir sér til að nota allan þenn- an tíma. Ég held t.d. að enginn noti heimild til kl. 22 á þriðjudögum og að- eins örfáir opna verzlanir kl. 8 að morgni i stað 9. Ekki nálægt helmingi verzlana notar sér heimild til kl. 22 á föstudögum og sama er að segja um heimild til hádegis á laugardögum. Mér finnst það koma úr hörðustu átt þegar borgarfulltrúar tala um lé- lega þjónustu vegna of stutts af- greiðslutíma, ef miðað er við þá þjón- ustu sem borgin veitir í sinum fyrir- tækjum og stofnunum og ekki heyrist heldur mikið um kvartanir frá almenn- um borgurum þó þeir þurfi jafnvel að taka sér fri úr vinnu til að borga skatta og skyldur. Allt þetta ber að endur- skoða og hagræða innan ákveðins ramma þannig að sem bezt nýting fáist á vinnuaflinu með hagsmuni þeirra sem vinnunnar eiga að njóta í huga. Það á að vera auðvelt að finna lausn sem allir geti vel við unað án þess að lenging verði á vinnutíma. Jónas Gunnarsson formaöur Félags matvörukaupmanna Er alkóhólismi sjúkdómur? — svargrein til Sigurðar Gizurarsonar alkóhólisma þannig: Alkóhólismi er sú neyzla áfengra drykkja, sem skaðar einstaklinginn eða þjóðfélagið eða hvoru tveggja. Hér er um svokallaða vinnuskilgreiningu að ræða. Samkvæmt henni er alkóhólismi meira en sjúkur líkami eða sál vegna ofneyzlu áfengis. Alkóhólisminn er einnig atferli og gjörðir, það sem við framkvæmum eða gerum öðrum til tjóns undir áhrifum áfengis. Þetta er hagnýt en um leið mjög fræðileg skil- greining, sem kemur að góðum not- um, ef skilja á þetta tiltölulega flókna vandamál, sem alkóhólisminn óneitan- lega er. Samkvæmt þessari skilgreiningf getum við hagað okkur sjúklega, þó að við séum ekki sjúklingar i þess orðs ströngustu merkingu. Dæmi um þetta er maður sem ekur ölvaður og skaðar eða drepur sig eða aðra. Hans gjörðir eru alkóhólismi, en hann telst ekki alkóhólisti þar eða um bráða sýkingu getur verið að ræða. Þar sem hin bráða sýking af alkóhóli telst ekki (venjulega) til alkóhólisma fellur hinn kvellisjúki alkóhólisti utan við það, sem við venjulega meinum með alkóhólistum. Hér er að sjálf- sögðu um stigsmun að ræða eins og um allra aðra sjúkdóma og misjafnt hvar menn vilja draga mörkin. Það eru til þeir sem vilja kalla þá alkóhól- sta, sem neyta vins í einhverjum mæli 3—4 sinnum í mánuði. Það sem skiptir máli í þessu neyzlusambandi er stöðug og jöfn notkun. Alla slíka notkun má með miklum rétti kalla alkóholisma með litlum eða miklum einkennum, starfrænum eða vefræn- um. í dag er hœgt að finna vefrænar breytingar hjá þeim, sem telja sig drekka bjór í hófi Með tilliti til einkenna alkóhólista hefir þeim verið skipt t flokka, þessi skipting byggist fyrst og fremst á því hvort um vana- eða ávanasjúkdóm er að ræða, eða m.ö.o. hvort sálrænar venjur liggja til grundvallar áfengis- neyzlunni eða hvort ávanamyndun hefir átt sér stað (addiction) en þá er sjúkdómurinn talinn líkamlegur. 3) Ávanadrykkja með öllum einkenn- um ávanasjúkdómsins (addiction). 1 þessum flokki eru þeir sem teljast alkóhólistar i dag að langstærstum hluta. Um 10% þeirra sem kallast alkóhólistar munu geta flokkast i 1) eða 2). 4) Drykkja sem stafar af taugaveiklun eða geðsjúkdómi eða félagslegum ástæðum (situational drinker). Áfengisneyzla getur að sjálfsögðu blandast öðrum sjúkdómum enda \efr®nar bre 11,69 ytingar íirosem rétt' er aö agroSnal -£35-«* írai •mgu uro bsettur áteug'S Gróf flokkun gæti litið svona út: 1) Sálræn drykkja (problem drinker), helgardrykkja, frítímadrykkja, sem leiðir af sér vandamál á einn eða annan hátt. Þessi tegund drykkju þróast oft upp í ávana- myndun (addiction). 2) Félagsdrykkja (heavy drinker) vegna starfs eða lifnaðarhátta. Getur að sjálfsögðu leitt til ávana- myndunar en leiðir alltaf til vefja- breytinga og sjúkleika. áfengið oft notað af þeim, sem þjást af taugaveiklun. Drykkjusýkin er engin undantekn- ing frá öðrum sjúkdómum með það að einstaklingur getur verið haldinn fleirum en einum sjúkdómi. Hér verður ekki farið út í hin ýmsu likam- legu einkenni alkóhólismans, sem sjúkdóms, en þau eru mörg deginum ljósari og nátengd atferli og æði. Flokkur þrjú fyllir upp öll skilyrði um sjúkdómshugtakið eins og það var á dögum Hippocratesar og er að mestu enn í dag. Vestræn læknisfræði hneig- ist aðallega að þvi, sem kallað hefir verið „faulty-machine-model” eða það að finna hið veika og lækna það. Við þekkjum sjúkdómsvaldinn, hann er áfengið, við þekkjum sjúkdómsþró- unina það er ávanamyndun og við þekkjum starfrænar truflanir og líf- færaeinkenni, fitulifur, heilaskemmd- ir, magabólgur, geðlægar truflanir, þunglyndið, kvíðann, angistina, allt vegna eituráhrifa alkóhólsins. Myndin er tiltölulega skýr þeim, sem vilja kynna sér hana. Skýrari en segja má um blóðþrýstingssjúkdóma, efna- skiptasjúkdóma, að ég ekki tali um geðsjúkdóma sem oft er blandað saman við alkóhólisma af hreinni van- þekkingu. Tvískinnungur þjóðfélagsins S.G. segir i grein sinni: „Á hinn bóg- inn er það þjóðfélag sjálfum sér ósam- kvæmt, sem annars vegar býður þegn- um sinum upp á frjálst val um, hvort 1 Iþeir drekka eða ekki, og hins vegar lítur síðan á afleiðingar þessa frjálsa vals sem sjúkdóm.” S.G. er gagnrýnirin og mjög glöggur maður. Hér er óneitanlega um svokall- aðan tviskinnung (ambivalence) að ræða. Ef draga ætti rökrétta ályktun af því sem S.G. segir ætti þjóðfélagið, rikis- valdið, að hindra áfengisneyzlu, ef það ylli þegnum þess tjóni. Um það held ég að allir séu sammála, að heilbrigði þjóðarinnar myndi stórum aukast, ef áfengi yrði ekki um hönd haft. Þeir fjármunir, sem þannig myndu sparast, eru allt að ómælanlegir. En málið er ekki svona einfalt. Frelsi ríkir. að hafna og velja er þegn- leg skylda okkar allra. Það sem gagnrýna má með miklum rétti er að framboð á áfengi er meira en framboð á þekkingu um hættur áfengis. S.G. kemur réttilega inn á þetta atriði varðandi fræðsluna i skólum landsins. Slik fræðsla var engin þegar ég gekk í skóla og mun í molum enn. Ég tek undir það að nær væri að kenna minna um átthagafræði en meir um áráttufræði. Alkóhólisminn er ekki eini ávanamyndunarsjúkdómurinn sem herjar á mannkyn í dag, þó að hann sé þeirra langstærsti. Eiturefna- og lyfjanotkun er stór vá fyrir vorum dyrum. Lokaorð í gildandi lögum um heilbrigðis- þjónustu segir í fyrstu grein: „Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomn- ustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tima eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félags- legri heilbrigði.” Það er því auðsætt að alkóhólistar I hvaða fiokki, sem þeir eru, af háum eða lágum stigum, eiga rétt á heil- brigðisþjónustu, eins og aðrir lands- menn. Það er lækna að dæma um vinnufærni þeirra og þá umbætur frá almannatryggingum. Platon sagði að öllum mönnum væri hollast að hafa sanna þekkingu að leiðarljósi. Við vitum í dag að langvinn neyzla áfengis skaðar starfsemi líkamans og veldur vefjaskemmdum, við vitum að um ávanamyndandi sjúkdóm er aö ræða. Þessi tegund alkóhólisma er því sjúkdómur í þess orðs venjulegustu merkingu, likamlegur sjúkdómur með andlegt og félagslegt hyldýpi sem landamæri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.