Dagblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979.
9
Fyrirhuguð heilsugæzlustöð í Breiðholti:
FJÁRMAGN EKKI
FRAMKVÆMDA
FYRIR HENDITIL
— enda gert ráð fyrir mjög stórri og dýrri stöð
— ríki og bær hafa enn ekki samþykkt teikningar
Reykjavíkurborg á að skiptast i níu
heilsugæzluhverfi samkvæmt tillögum
frá árinu 1974. Ekki eiga að vera fleiri
en 12 þúsund manns í hverju hverfi.
Hver maður á þá að hafa sina heilsu-
gæzlustöð og leita þangað sé nauðsyn á.
Nokkuð hefur gengið seint að koma
þessum nýju tillögum í framkvæmd i
Reykjavík og eru aðrir landshlutar
lengra komnir á þessu sviði. Tvær
heilsugæzlustöðvar starfa nú í Reykja-
vik, önnur er 1 leiguhúsnæði í Asparfelli
og þjónar hún hluta Breiðholts III, hin
er í Árbæjarhverfi.
Fyrirhuguð er nýbygging heilsu-
gæzlustöðvar í Mjóddinni í Breiöholti.
Jón Haraldsson arkitekt hefur teiknað
þá stöð. Hún mun þó ekki verða næsta
heilsugæzlustöð í Reykjavík, því áður
tekur til starfa heilsugæzlustöð í Borgar-
spítalanum, seint á þessu ári eða
snemma næsta árs.
Hin nýja heilsugæzlustöð sem fyrir-
hugað er að byggja í Breiðholti er mjög
stór. Flatarmál hússins er 2134 fermetr-
ar og kjallari er undir hluta hússins.
Gert er ráð fyrir niu læknaherbergjum
og eru flest þeirra áföst sérstökum skoð-
unarherbergjum. Þá er sams konar her-
bergi fyrir kandídat og skoðunarherbergi
einnig. Samkvæmt teikningu eru tvær
tannlæknastofur í heilsugæzlustöðinni
og ein fyrir tannsmið.
Þá er og gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
sálfræðing, geðlækni og þrjá félagsráð-
gjafa og tvo sérfræðinga. Herbergi fyrir
hjúkrunarkonur- eru sex og þrjú fyrir
hjúkrunarliða. Þá er og gert ráð fyrir
fyrirbyggjandi starfi i heilsugæzlustöð-
inni. Þar verður sinnt ávanavörnum,
unglingaráðgjöf, heilbrigðisáróðri, heil-
brigðisfræðslu, kynfræðslu og aðstaða
verður fyrir Rauða krossinn.
Þá gleymist ekki umhverfisþátturinn,
því i miðju byggingarinnar er gert ráð
fyrir garði, þar sem verða tré, göngustíg-
ar, vatn og sandkassi.
Þessi fyrirhugaða heilsugæzlustöð í
Breiðholti er til muna stærri en heilsu-
gæzlustöð sem á að rísa á Seltjarnarnesi
og þjóna því bæjarfélagi, auk hluta af
vesturbæ Reykjavíkur. sú stöð á einnig
að þjóna tólf þúsund manns. Seltjarnar-
nesstöðin er 990 fermetrar brúttó en 683
fermetrar nettó og munar því miklu á
þeirri stöð og Breiðholtsstöðinni fyrir-
huguðu. Þess ber þó að geta að stærð
Seltjamarnesstöðvarinnar ræðst að
nokkru af nálægðinni við Landakotsspit-
alann. Þar eru rannsóknarstofur, sem
sinna hluta verkefna heilsugæzlustöðv-
arinnar.
Dagblaðið ræddi við öddu Báru Sig-
fúsdóttur um hina fyrirhuguðu heilsu-
gæzlustöð í Breiðholti. Adda sagði að
ekki væru fyrirsjáanlegar framkvæmdir
við heilsugæzlustöðina á þessu ári. Eign-
araöilar að heilsugæzlustöðinni eru
Reykjavíkurborg, sem á 15% og ríkið
sem á 85%. Þessir tveir eignaraðilar
hafa enn ekki samþykkt þá teikningu
sem fyrir liggur. Samstarfsnefnd um
opinberar framkvæmdir fjallar um þetta
mál og hún hefur enn ekki tekið afstöðu.
Adda Bára sagðist ekki muna kostrl-
aðartölur vegna þessarar heilsugæzlu-
stöðvar. Tölur breytast ört á þessum
verðbólgutímum, en ljóst er að þetta er
mjög dýr framkvæmd, enda heilsu-
gæzlustöðin stór. Adda Bára tók þó
fram að þótt samkvæmt teikningu væri
húsið stórt, þá væri ekkert óeðlilegt í
húsinu og ekki bruðl.
Heilsugæzlustöðin á að þjóna tólf þús-
und manns og gert er ráð fyrir því að
hún þjóni þeim fjölda fullkomlega.
Heilsugæzlustöð er nú í bráðabirgðahús-
næði í Asparfelli i Breiðholti. Adda Bára
sagði að enn hefði ekki verið gengið end-
anlega frá skipulagningu heilsugæzlu-
stöðva í Reykjavík, og því væri ekki end-
anlega Ijóst hvernig málum yrði skipað i
Breiðholtinu.
En eins og málin standa sagði Adda
Bára, er Ijóst að ekkert verður unnið við
þessa heilsugæzlustöð á þessu ári, þar
sem fjármagn er ekki fyrir hendi. Haldið
verður áfram eðlilegum viðræðum rikis
og borgar um heilsugæzlustöðina, hvort
sem notast verður við teikningu þá sem
fyrir liggur eða ekki.
Hvað varðaði heilsugæzlustöðina á
Seltjarnarnesi sagði Adda Bára að hún
væri of stór fyrir Seltjarnarnes og því
yrði um sameiginleg afnot Seltjarnar-
ness og Reykjavíkur að ræða.
-JH.
ÝSUSTOFNINN
í MIKLUM VEXTI
VID SNÆFELLSNES
— línubátar f rá Ólaf svík fá upp í 101
Vertiðin í Ólafsvík hefur gengið
mjög vel hjá línubátunum og ber nú
óvenju mikið á ýsu í aflanum, svo
mjög að heimamenn telja það benda
ótvírætt til þess að ýsustofninn sé i
örum vexti. Hafa bátarnir fengið allt
upp í liðlega 10 tonn en algengt mun
ver að þeir fái 6 til 7 tonn í róðri, sem
þykir gott. Fyrir tonnið fást vel á ann-
að hundrað þúsund krónur og er talið
að hásetar fari að fá umfram kaup-
trygginguna við fimm tonn.
11 línubátar eru nú gerðir þaðan út
og sækja svosem 2 til 2,5 tíma siglingu
vestur í Kolluál. Netabátunum þrem
hefur hins vegar gengið fremur illa
það sem af er. Togaranum Lárusi
Sveinssyni hefur gengið þokkalega.
Mikil atvinna hefur verið á staðn-
um vegna þessara aflabragða. Er sú
breyting orðin á að fátt er nú orðið um
aðkomufólk á vertið í Ólafsvík, en fyrr
á árum náði það nær helmingi ibúa-
tölu staðarins. -BJ/-GS.
rpr
A- L 103Í1
Teikning J6ns Haraldssonar arkitekts af fyrirhugaðri heilsugxzlustöð i Breiðholti. Eins og sjá má er hér um mikið mann-
virki að ræða.
" •
á f læóiskeri
staddur?
Nei, þú ert ekki á flæðiskeri staddur ef þú hefur ÍSLENSK
FYRIRTÆKI á borðinu hjá þér.
I tilefm at 10 ara afmæli ,.ÍS-
LENSKRA FYRIRTÆKJA" hefur
utgafa bokannnar enn verið bætt
og efmsval fullkomnaó
Þar koma meðal annars fram mun
fleirl voruflokkar en nokkru sinni
fyrr og þar er sama viðskipta- og
þlónustuskrá fyrir allt landið
t „ISLENSKUM FYRIRTÆKJUM"
er logð áhersla á aó hafa merki og
firmaskriftir viðkomandi fyrirtækia,
ennfremur eru i bókinm að finna oll
starfandi fyrirtæki landsins meö til-
heyrandi breytingum frá ári til árs.
„ISLENSK FYRIRTÆKI" innihalda
viðskiptalegar upplýsingar á ensku
með skrá ylir útflutningsvorur, út-
flytjendur. innfiutningsvorur. inn-
flytjencJur, framleiðendur og þjón-
ustuaöila.
ISLENSK FYRIRTÆKI Armúla 18 Simar 82300 og 82302