Dagblaðið - 15.02.1979, Side 13
13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15.-FEBRÚAR 1979.
Listaspjall, eða spjöll?
í kjölfar hinna nýju trúarbragða nú-
timans, þ.e. trúarinnar á skólamennt-
unina, sem aö sönnu er sízt verri en
önnur blindingstrú, siglir hiö frasðilega
forræði nýrrar háklerkastéttar —
hinna svokölluðu „fræðinga”.
Eðlileg afstaða þessarar nýju stéttar
er að hún viti betur og aö henni beri
því að stjórna i nafni þekkingar sinnar.
Og auðvitað má finna þessari ályktun
rökstuðning, reyndar sams konar rök-
stuðning og fyrir því að prestum beri
að stjórna löndum í nafni mannkær-
leika síns.
Það tók margar aldir hörmulegrar
skoðanakúgunar að afsanna þessa
kærleikskenningu prestavaldsins. Eins
og nýleg dæmi sanna er hún reyndar
síztútdauð enn.
Menntahroki er auðvitað engin ný
bóla og þessa áráttu má umbera í
hljóði svo lengi sem menntunin skilar
ávexti.
Nú hefur þessa menntahroka hins
vegar tekið að gæta svo um munar þar
sem sizt skyldi, þ.e. á sviði fagurra
lista. Og það á sama tíma og mönnum
er orðið ljóst að ávextirnir eru eitraðir.
Að magni til hefur margt af því sem
borið hefur verið á borð undanfarna
áratugi sem list á íslandi verið forpok-
andi eftiröpun á listhnignun erlendra -
stórþjóða. Ýmislegt af þessu er lítið
annað en rusl sem á ekkert erindi til
einlægra listunnenda.
Þeir listfræðingar sem af ýmsum
ástæðum, einkum efnahagslegum,
þjóna gjarnan hlutverki listgagnrýn-
enda hafa birt okkur velþóknun sína á
þessari framleiðslu, gjarnan með hlið-
sjón af erlendri listsögu. Aldrei hefur
samt vond list batnað við slíkar út-
skýringar.
Sannleikurinn er nefnilega sá að list-
fræði fjallar um staðreyndir og sögu
og á þar af leiðandi ekki meira skylt
við list en t.d. kynsjúkdómalækningar
eiga skylt við ást.
Auk heldur hafa listfræðingar oft
sína sértrú á hvað sé list og slíkur list-
fræðingur er ámóta vel fallinn til að
meta nýjabrum i listum eins og t.d.
marxiskur sagnfræöingur að gefa hlut-
lausa túlkun á pólitískum umbrotum
hversdagsins.
Listgeldingar
En það væri fásinna að vilja kenna
fræðilegu forræði listgagnrýnenda um
forpokun í list undanfarinna ára. I
raun eru þeir aðeins ein af afleiðingum
annarrar og alvarlegri þróunar.
Sú þróun er einmitt afsprengi þeirra
trúarbragða að skólaganga og prófskír-
teini veiti manni réttindi sem lista-
manni, rétt eins og rafvirkja eða verk-
fræðingi. Um allan heim sækja millj-
ónir nútíðarmanna listaskóla eftir ein-
mitt þessari forskrift.
Fræðsluefnið hefur undanfarna
áratugi verið samhæft vítt og breitt
um jarðkringluna, engu síður en i
öðrum námsgreinum. ,Xista
menn/kennarar” flytja hinn staðlaða
boðskap milli fjarlægustu staða eins og
þrautþjálfaður mauraher. Hvergi er
afdrep að finna. Ríkisskólar, einka-
skólar og óvígur fjöldi einkakennara
vilja allir umbreyta nemendum sínum
í listamenn.
Að námi loknu, eftir að hafa lært að
vera listamenn, sem þó reynast ófærir
um að skapa list, með öðrum orðum
eru listgeldingar, hverfur flest af þesu
fólki til almennra starfa.
En nú er af öllum þessum fjölda að
segja, með listamannsskírteini upp á
vasann, ásamt einhæfðum skoðunum
á listum. Þessi fjöldi flykkist i félög
myndlistarmanna og hefur sig gjarnan
í frammi sem hatrammt baráttuafl
fyrir forpokuninni og meðalmennsk-
unni. Enn aðrir gerast eins og áður
segir listgagnrýnendur sem birta
ábúðarmikla dóma um verk skoðana-
bræðra sinna úr skólasamfélaginu og
auðvitað hver um annan ef tilefni
gefst til.
Félög myndlistarmanna eða sér-
trúarmenn ráðstafa svo gjarnan öllum
merkari sýningarsölum samfélagsins,
oft á svo hlutdrægan hátt að einungis
blindir menn komast hjá þvi að sjá að
einokun opinberrar kreddulistar er
ekkert minni nú en fyrir réttri öld.
Þess uppreisnartíma impressionist-
anna minnast kreddumenn gjarnan
með tregablöndnum söknuði og skipa
þannig sjálfum sér í andanum um-
svifalaust í hóp umbyltingarmanna.
Það er nú það. Þetta er gömul saga
sem verður víst alltaf ný.
Hinn Ijúfi
lífsstíll
Ég er þeirrar skoðunar að lista-
manni sem leitar listarinnar í listaskól-
um nútímans sé líkt farið og kaþólsk-
um unglingi á miðöldum sem leitar
inn í kirkjuskóla til að nema raunvís-
indi. Fyrir allt það sem hann fær lætur
hann það eina sem hann mátti ekki
missa — neistann sem hefði gert
honum kleift að finna þaö sem hann
leitaði eftir.
1 listum er núverandi ástand for-
vitnilegt. Milljón manna og kvenna
ganga í skóla viö tæknilega fullkomn-
ar aðstæður og vilja skapa listaverk.
Samt sést hlutfallslega miklu minna af
frumskapandi hæfileikum á síðustu
áratugum en á nokkrum öðrum á þess-
ari öld.
Ætli það sé svo fjarri lagi að leita
skýringanna í náminu og þeim
áhrifum sem menn þar upplifa. ffinn
Ijúfi lífsstíll, sem ku fylgja lífi í liqtum,
dregur fleiri til leiks en erindi eiga.
Listaskólar sem eru fullir af fólki
sem finnur sterkari samhljóm í öðfum
hlutum en listsköpun eru tómt feigjðar-
flan. Kennararnir kenna óhjákvajmi-
lega með tilliti til meðalmennskuntar,
sem þeir reyndar eru fulltrúar fyrirj og
fari svo að afburðanemanda rekj á
fjörur þeirra eru þeir alls ófærir umlað
leiða hann til dáða. Eins víst er 'að
slíkur nemandi bíði varanlegt tjói í
listinni af þeim anda sem þar svííur
yfir vötnum.
Hlúðað
kveikjunni
Til sönnunar sjálfstæðri listsköpun
er að minu viti vænlegra að setja
„sjálfmenntaður” fyrir neðan nafnið í
sýningarskránni í stað þess að tíunda
fjölskrúðug en inntakslaus nöfn lista-
skóla, eins og fangi sem hringiar
hlekkjum sínum.
Það er heldur ekki einleikið að
oftast þurfa þeir listamenn, sem ekki
gefast upp strax að skólanámi loknu,
áratugi af sjálfmenntun til að brjótast
undan þvi stöðlunaroki sem skóla-
gangan lagði þeim á herðar. Og hefji
þeir að námi loknu sjálfir að kenna í
þessum sömu skólum, þá má heita
tryggt að þeir eiga sér yfirleitt engrar
viðreisnar von.
Einn munurinn á sjálfnámi og
skólanámi i listum er sá að í sjálf-
menntun leitar nemandinn aðeins eftir
þeim hlutum sem næra áhuga hans,
hlúa að kveikjunni. Hann gerir það
eitt sem þjónar tilgangi gagnvart eigin
hugsýn. Þetta þýðir auðvitað ekki að
verk hans séu fullkomin, fjarri því. Á
verkum hans kunna að vera ýmiss
konar tæknilegir eða formlegir ann-
markar. Þá agnúa getur hins vegar
gagnrýnin sjálfmenntun auðveldlega
sniðið af í tímans rás. Tæknina er
alltaf hægt að læra. Sköpunargáfuna
aldrei.
Kennsla gömlu meistaranna i
vinnustofum sinum varð mönnum
áður fyrr fremur til framdráttar vegna
Kjallarinn
Ronald Símonarson
þess að þetta voru gjörólikir einstakl-
ingar með hver sinn stil og eigin
vinnuaðferðir. Hjá þessum meisturum
gátu nemendur upplifað gjörólíkt and-
rúmsloft. Framfarir nútímans felast
helzt í því að bólusetja nemendurna
gegn umbrotum og mótun með af-
kastamikilli fjöldaframleiðslu á þykj-
ustulist.
ímyndun
klæðskeranna
Að lokum þetta. Það er ekki ætlun
mín að hæða listamenn og listgagn-
rýnendur þó stundum finnist mér líf
þeirra og lítilsigldar deilur lítt fallnar
til að auka listinni brautargengi.
Margir þessara manna eru að sjálf-
sögðu einlægir unnendur fagurra lista
en það er eðli manna að reynast
þrælar þess kerfis sem elur þá. Þau
margreyndu sannindi undirstrika aö /
svo má illu venjast að gott þyki.
Sjálfmenntun á öðrum sviðum tján-
ingar sem standa nálægt myndlist,
eins og t.d. skáldskapur, er til allrar
hamingju ennþá talin sjálfsögð for-
senda þess að viðkomandi skáld tjái
eitthvað sem safi er í. Vonandi á
þjóðin aldrei eftir að stýnja undan
fræðilegri forsjá á sviði skáldskapar,
eins og hún gerir nú á sviði mynd-
listar.
Hvunndagsfólkið i landinu hefur
um langt skeið staðið álengdar og með
þvi hefur smám saman vaxið vantrú á
fyrirbærinu nútimalist. Þessi vantrú er
um það bil að víkja fyrir þeirri opin-
berun að eftir allt bramboltið og djúp-
spakan orðaflauminn voru nýju fötin
keisarans einfaldlega ímyndun klæð-
skeranna.
Ronald Simonarson
£ „Þeir listfræðingar sem af ýmsum ástæðum,
einkum efnahagsiegum, þjóna gjarnan hlut-
verki listgagnrýnenda, hafa birt okkur velþóknun
sína á þessari framleiðslu ...”
^ „Einn munurinn á sjálfnámi og skóianámi í
iistum er sá að í sjálfmenntun leitar nemand-
inn aðeins eftir þeim hiutum sem næra áhuga
hans...”
A
Teg. 140
Lhur
rauöbrúnt leöur.
Skinnfóðruð.
Leðursófí
með hrufóttum
sfítsóla.
Stærðir 36-41.
Verðkr. 37.775.-
Uppfyrirhnó
ogmá brjóta
niður
Teg. 141
Lrtir:
Beige eða
brúnt leður.
Skinnfóðraðir
ogmeð
leðursóla.
Stærðir 36-41
Verðkr. 37.775.-
Uppfyrirhnó
ogmóbrjóta
niður.
Upp fyrir
hnó
Teg. 120
Litur: Svartleður.
Skinnfóðraðir.
Leðursófí
með hrufóttum
sfítsóla.
Stærðir 36—41.
Verðkr. 35.675.-
Upp fynr
hné.
Teg. 151
Litur:
Rauðbrúnt leður.
Skinnfóðraðir.
Leöursófí
með hrufóttum
sfítsóla.
Stærðir 36—41.
Verðkr. 35.675.-
Skóverzlun Þóröar Péturssonar Kirkiustræti8 vAustuno"
Sími 14181 — Póstsendum