Dagblaðið - 15.02.1979, Page 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÍJAR 1979.
Björn Borg — ósigur í Kaliforníu.
beiðóvænt
lægri hlut
Það kom mjög á óvart að Björn Borg
var 1 gær sleginn út úr 1. umferð á tennis-
móti f Palm Springs f Kalifornlu. Þar átti
Borg f höggi við Maison en hann er
númer 112 f röðinni yfir beztu tennis-
leikara heims — Björn Borg nú f fyrsta
sæti. Og hið óvænta gerðist eftir hinn
auðvelda og glæsilega sigur Björn Borg
yflr Jimmy Connors um helgina. Maison
sigraði 6—7, 7—5, 6—2. Björn Borg
nánast gekk beint úr flugvélinni og á
tennisvöllinn og virtist flugið hafa setið I
honum.
Björn Borg er nú tekjuhæsti tennis-
leikarinn það sem af er árinu — hefur
unnið sér inn 180 þúsund dollara eða
um 54 milljónir króna. Þar munar mestu
um sigur Borg gegn Jimmy Connors um
helgina — vann þar 150 þúsund dollara
en það var fyrsta stórmót Borg á árinu.
Tíu tekjuhæstu tennisleikarar heims
eru nú:
1. Björn Borg, Svíþjóð
2. JimmyConnors, USA
3. John McEnroe, USA
4. Guilermo Vilar, Argéntínu
5. Peter Fleming, USA
6. Ilie Nastase, Rúmeníu
7. Vitas Gerulaitis, USA
8. Sherwood Stewart, USA
9. Arthur Ashe, USA
10. Tom Okker, Hollandi
Þeir þrír — Borg, Connors og
McEnroe, kornungur Bandarikjamaður,
bera ægishjálm yfir aðra tennisleikara í
ár. Martina Navratilova, Tékkóslóvakíu
er langtekjuhæsta konan, með um 30
milljónir króna.
Sovétmenn
sigruðu
íGenúa
Sovétmenn sigruðu Genúa 2-0 á Ítalíu
i gærkvöld. Sovézka landsliðið hefur að
undanförnu verið á ferðalagi um Banda-
ríkin. Lék þar þrjá leiki, 2 við Mexíkó og
einn við bandaríska landsliðið. Sovét-
menn sigruðu Bandaríkjamenn 4-1 í Los
Angeles.
í Genúa hafði sovézka liðið mikla
yfirburði. Oleg Blokhin var langbezti
maður vallarins þrátt fyrir að hann mis-
notaði vítaspyrnu. Hidiatullin skoraði
fyrra mark Sovétmanna á 34. mínútu,
skallaði í netið eftir hornspyrnu Blokhin.
Og Biokhin lagði upp síðara mark
sovézka liðsins á 71. mínútu en þá
skoraði Scenghelia.
Island steinlá í
Laugardalshöll
— Bandaríkjamenn höfðu yf irburði
gegn íslenzka landsliðinu
Bandarisku leikmennirnir sem leika
hér á landi rassskelltu fslenzka landsliðið
í Laugardalshöll I gærkvöld, 128-85. Þar
sáust snilldartaktar frá Bandaríkja-
mönnum en leikurinn undirstrikaði um
leið hve i raun skammt við erum komin á
veg I körfunni. Bandarikjamennirnir
höfðu yfirburði, svo mikla yfirburði að
áhorfendur voru farnir að streyma I
burtu löngu áður en leik lauk — það var
bara einfaldlega ekki gaman að sjá ís-
lenzka liðið rassskellt.
v
Þegar í upphafi tóku Bandaríkja-
mennirnir leikinn í sínar hendur. Allt
snjallir leikmenn, Dwyer, Johnsonarnir
tveir, Ted Bee, Hudson, Christiansen,
John Johnson — sigraði i vftakeppninni.
KR - Þróttur
íHöllinni
Einn af úrslitaleikjum 2. deildar fer
fram f Höllinni í kvöld en þá eigast við
KR — efsta liðið í 2. deild — og Þróttur.
KR hefur tapað fæstum stigum f 2. deild
— 6, en í kjölfarið kemur Þróttur með
sjö stig töpuð. Þróttarar hafa að vfsu
ekki leikið jafnmarga leiki en með sigri f
kvöld myndu Þróttarar koma til með að
berjast um efstu sætin f 2. deild. Viður-
eign KR og Þróttar hefst kl. 21.
Barði dóm-
arann með
sjúkrakassa
— dómarinn er nú á
sjúkrahúsi, en
leikmaðurinn ífangelsi
Mönnum hitnar oft I hamsi — svo
mikið að iðulega hljótast slys af. Það
hefur einkum átt við suðlægarí lönd að
leikmenn hafa sleppt af sér beizlinu I
knattspyrnu og farið f hár saman. Í gær
var kveðinn upp dómur yfir leikmanni I
Marokkó. Hann var dæmdur f 4 mánaða
fangelsi fyrír að hafa baríð dómara svo,
að fara varð með vcsalings dómarann á
sjúkrahús og þar er hann enn. Það var
Mohamed Hinga sem leikur fyrír Raja
frá Agadir f leik gegn Ain Sebaa frá
Casablanca. Mohamed lenti f deilum við
dómarann er ekki lét sér scgjast.
Mohamed greip þvi til sjúkrakassans og
barði dómarann svo, að hann gistir nú
sjúkrahús, en Mohamed fangelsið f
Casablanca.
Smock, og Napoleon úr Borgarnesi. Það
var ef til vill vitað fyrirfram að íslenzka
liðið myndi eiga i erfiðleikum og svo
reyndist — en að yfirburðirnir yrðu jafn-
miklir og raun varð á, því áttu fæstir von
á. Rétt eins og hendi væri veifað höfðu
Bandaríkjamennirnir náð undirtökun-
um í leiknum, komust í 26-11 og ljóst
hvert stefndi. Staðan í leikhléi var 70-45.
Og lokatölur — 43 stiga munur — 128-
85.
Viöureignin í gærkvöld undirstrikaði
snilld Bandaríkjamanna — jafnvel þó
þeir í heimalandi sínu komist ekki í
fremstu röð. Þeir hafa bókstaflega alizt
upp með knöttinn. Karfan á Islandi
hefur aldrei átt slíku láni að fagna og í
raun eigum við aðeins einn leikmann
sem virkilega sómir sér meðal beztu —
Jón Sigurðsson. En jafnvel honum voru
mislagðar hendur í gærkvöld á köflum.
Þeir bræður Kristinn og Jón Jörunds-
synir báru höfuð og herðar í gærkvöld
yfir íslenzku leikmennina, með baráttu
sinni og elju. Kristinn skoraði 20 stig,
Jón 18 — aðrir mun minna. Hjá Banda-
ríkjamönnunum skoraði John Johnson
mest, 32, Mark Holmes 18 — aðrir
minna.
-HHalls.
Guðmundur Guðjónsson, Mbl., gerist atgangsharður við valkyrjurnar i fslenzka
landsliðinu f körfu. Stekkur á bak einni. Það var hart barízt þegar fþróttafréttamenn
og fslenzka kvennalandsliðið mættust 1 körfu eins og sjá má og iðulega höfðu áhorf-
endur ekki tölu á keppendum á vellinum.
DB-mynd Bjarnleifur.
Ómar og félagar lágu
fyrir stelpunum úr FH
— í knattspyrnunni á stjörnukvöldi KKÍ í Höllinni
Það var margt skemmtiatriða á körfu-
kvöldi KKl f Höllinni f gærkvöld — um
1200 manns komu f Höllina. Það sem
kom mest á óvart var Bræðrabandið —
með þá Ómar Ragnarsson, Halla og
Ladda f broddi fylkingar, tapaði — já
þeir félagar töpuðu.
Það var í hörkuviðureign við stúlkur
úr FH. Þeir félagar náðu að vísu yfir-
burðastöðu, 6—2. Þá sýndu þeir félagar
alla sína beztu takta. Ómar brunaði upp
kantana, Halli læddist með stöngum og
Laddi með gólfi — eða var það ef til vill
öfugt. Nema hvað, yfirburðastaða —
6—2. En þetta hrundi allt saman hjá
þeim félögum, því sjö sinnum í röð
máttu þeir sjá á eftir knettinum í eigið
net — í upphafi töluðu þeir félagar um
að taka stelpurnar en í lokin voru það
stelpurnar sem tóku þá félaga — ærlega
í karphúsið.
Þá voru íþróttafréttamenn enn einu
sinni i sviðsljósinu — léku við stígvélaða
Valsmenn. Hinir stígvéluðu Valsmenn,
margfaldir meistarar komu verulega á
óvart eða það fannst fréttamönnum.
Þeir komust í 5—1 en Adam var ekki
lengi í Paradís. Fréttamenn sýndu þá
klærnar og jafntefli varð, 8—8 og enn
voru fréttamenn í sviðsljósinu, þeir léku
við kvennalandsliðið í körfu og unnu.
Að vísu fengu þeir liðsstyrk, Ólafur
Unnsteinsson sá góðkunni þjálfari lék
með þeim og hann skoraði sigurkörfu
Jafntefli
KA og Þór
KA og Þór léku I gærkvöld I Akur-
eyrarmótinu svokallaða I handknattleik.
KA hafði undirtökin I fyrri hálfleik en
með baráttu tókst Þór að jafna metin,
22-22, sem urðu lokatölur leiksins. KA
komst I 12-8 I fyrri hálfleik en Þór náði
að jafna, 17-17. Þegar aðeins þrjár
mínútur voru til leiksloka hafði KA enn
yfir, 22-20. En Þór náði að jafna á
siðustu sekúndum leiksins. Jón Árni
skoraði mest fyrir KA, 7 mörk, en fyrir
Þór skoraði Sigtryggur mest, 6 mörk.
- St.A.
fréttamanna, 21—20 meðfallegu skoti.
Þeir John Johnson og Jón Jörundsson
léku til úrslita í vitakeppni þar sem þátt
tóku ísienzku leikmennirnir og hinir
bandarísku. John Johnson sigraði Jón
naumlega í úrslitum.
Halli f furðulegum stellingum eða var hann að bera fram bónorð? Eins og svo oft áður
var hann umkringdur þeim hvítklæddu úr Hafnarfirði.
DB-mynd Bjarnleifur.