Dagblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 28
Formannaskipti í
stjórn Hafskips
— allt rólegt á hluthafafundi ífélaginu ígær
Pósthúsið i Sandgeröi, þaðan sem hálfri
milljón króna var rænt.
DB-mynd Hörður.
Póstræn-
inginn
ennþá
ófundinn
Rannsóknarlögreglan í Keflavík hefur
sleitulaust unnið að því að upplýsa póst-
húsránið i Sandgerði. Ótal möguleikar
sem leitt gætu til uppljóstrunar málsins
hafa verið kannaðir, rætt við hóp fólks
og jafnvel leitað að hugsanlegri lausn
málsins á stöðum fjarri Sandgerði. Enn
er unnið að málinu af krafti, þó það hafi
ekki sama forgang og fyrr. . ASt.
Á hluthafafundi í Hafskip hf., sem
haldinn var í gær, var Ólafur B. Ólafs-
son, kosinn stjórnarformaður i stað
Magnúsar Magnússonar.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl.,
lögmaður stjórnarinnar, rakti i megin-
dráttum kæruatriði þau, sem stjórn Haf-
skips hf. krafðist rannsóknar á.
Eins og kunnugt er, var Magnús
Magnússon, fyrrum stjórnarformaður,
úrskurðaður i varðhald í tæplega fimm
vikur vegna rannsóknar málsins, í
desember og janúar sl.
Friðrik Sóphusson, alþingismaður var
fundarstjóri á nokkuð fjölmennum hlut-
hafafundi, sem haldinn var í gær, sem
fyrr segir, í húsakynnum Hótel Sögu.
Kæruefnin, sem rakin voru á fundin-
um, má flokka í sex aðalatriði. Magnús
er talinn hafa tekið umboðslaun af
kaupum og sölu sex skipa. Hafi Magnús
þannig dregið að sér um kr. 50 milljónir.
Eitt atriði kærunnar varðar eignarrétt
á um kr. 30 milljónum, sem eru á nafni
Magnúsar í erlendum banka, en talið er
að sé eign fyrirtækisins.
Hjá Oliuverzlun lslands liggja veð-
skuldabréf og víxlar, sem stjórnin telur
að séu eign fyrirtækisins, en sem
Magnús hafi notað til greiðslu á per-
sónulegum skuldum.
Þá telur stjórnin, að Magnús hafi búið
til erlendar skuldir á félagið að fjárhæð
um kr. 50 milljónir.
Hlutabréf í Hafskip hf. að fjárhæð kr.
25 milljónir telur stjórnin, að hafi verið
ranglega gefin út á nafn Magnúsar.
Magnús er sagður hafa gefið út veð-
skuldabréf fyrir þeirri fjárhæð samtímis
því sem hann bauð félaginu að lána fé-
laginu veð í eignum sínum. Magnús gaf
út víxil fyrir hlutabréfunum. Víxillinn er
sagður liggja ógreiddur en ekkert skulda-
bréf gefið út. Loks er talið að Magnús
hafi í heimildarleysi tekið út fé úr fyrir-
tækinu gegn skuldabréfum og víxlum.
BS.
Rektorskjör í H.í. á næsta leiti:
GYLFIÞ. 0G SIGURJÓN
TALDIR UKLEGASTIR
deild. Talið er að baráttan muni fyrst
og fremst snúast á milli þessara
tveggja en aðrir sem nefndir hafa verið
sem líklegir kandidatar eru Sigmundur
Guðbjarnarson, prófessor í verkfræði
og raunvisindadeild, Sveinbjörn
Björnsson, prófessor í verkfræði- og
raunvísindadeild, Guðmundur
Magnússon, prófessor úr viðskipta-
fræðideild og Gunnar Schram, settur
prófessor í lagadeild. Gunnaper þó þvi
aðeins kjörgengur að hatín hafi verið
skipaður í embætti prófessors.
Mest er taláð um að Gylfi verði kos-
inn og-talið er að hann gefi kost á sér.
Undir þann orðróm ýtir m.a. það að
Alþýðublaðið birtir mynd af honum á
forsíðu sl. laugardag þar sem hann er
nefndur sem liklegur í embættið. Það
sem helzt mælir gegn kjöri Gylfa í
embætti rektors er að hann kemur úr
sömu Háskóladeild og núverandi rekt-
or, Guðlaugur Þorvaldsson. Sigurjón
nýtur vinsælda i Háskólanum og talið
er að hann eigi mikið fylgi úr röðum
stúdenta, en greidd atkvæði stúdenta
gilda sem einn þriðji hluti greiddra at-
kvæða ails. Þó að tveir prófessorar úr
verkfræði- og raunvísindadeild hafi
verið nefndir sem líkiegir til að hreppa
hnossið þá eru þeir þó sennilega fleiri
sem telja að deildin hafi fengið svo
Þjóðleikhúsið:
Magnús Magnússon, fyrrv. stjórnarformaður Hafskips (til vinstrí) kemur til hluthafafundaríns i gær ásamt lögmanni sinum,
Brandi Brynjólfssyni. DB-mynd Ragnar Th.
mikið fjármagn til framkvæmda á
undanförnum árum að það sé of langt
gengið að þeir fái nú rektorsembættið.
Talið er að Sigmundur njóti stuðnings
hægri manna, Sigurjón njóti stuðnings
vinstri manna og Gylfi frjálslyrídra en
ekki er þó víst að jlpkkspólitík muni
svo mjög ráða fprðinni hér.
GAJ-
Sigurjón Björnsson, prófessor.
Kjör rektors Háskóla Islands á að
fara fram i april n.k. en nýkjörinn
rektor tekur við störfum með byrjun
næsta árs.
Þeir prófessorar sem helzt eru taldir
koma til greina sem væntanlegir rekt-
orar eru Gylfi Þ. Gíslason, prófessor í
viðskiptafræðideild og Sigurjón
Björnsson, prófessor í félagsvísinda-
Leiksýning
á fingra-
máíi að
hluta til
Frá æfingu:
Róbert Arnfinnsson IMutverki málarans
Goya og Rúrík Haraldsson I hlutverki
læknis hans. DB-mynd Hörður.
t kvöld verður frumsýnt nýtt leikrit i
Þjóðleikhúsinu er nefnist Ef skynsemin
blundar og fjallar um hinn fræga
spænska listamann Franscesco Goya.
Ævi hans var stormasöm og.átti hann í
útistöðum við yfirvöld og afturhald.
Höfundurinn er Antonio Buero
Vallejo og hefur vakið mikla athygii hin
síðari ár. Notar hann leikritið m.a. sem
táknræna umfjöllun á pólitískum veru-
ieika Francotímans i heimalandi sínu.
Goya missti heymina á miðjum aldri og
lifði í mikilli einangrun þess vegna og
leitaði inn i eigin myndhpinT Er m.a.
notað fingramál á köflum í leikritinu.
Róbert Arnfirtnsson leikur Goya og
fylgikonu hans leikur Kristbjörg Kjeld,
Rúrik f iaraldsson leikur lækni málar-
ansTen Arnar Jónsson leikur hinn unga
Spánarkonung Ferdinand VII.
Lýsing í verkinu er sérstök að þvi leyti
að litskyggnum er varpað ótt og títt á
sviðið, af verkum málarans.
-AI.
Srjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 15. FEB. 1979.
Biðstaða ífrumvarps-
málinu:
„Gerist
ekkert
næstu
viku”
— sagði einn ráðherr-
annaímorgun
Eftir síðasta fund vísitölunefndarinn-
ar, sem lauk síðdegis í gær, er komin upp
biðstaða i skákinni um frumvarpsdrög
Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra.
Fundi vísitölunefndarinnar lauk með
því að nefndin skilaði af sér í einu lagi,
en langt frá því að vera sammála. t sam-
eiginlegu bréfi til forsætisráðherra er
greint frá því, sem menn hafa orðið sam-
mála um, en einnig hverju menn hafa
ekki náð samkomulagi um og eru þau at-
riði mun fleiri. Sumir höfðu búizt við, að
fulltrúar ASÍ myndu kljúfa sig út úr
nefndinni, en svo varð ekki. Fulltrúar
ASt, BSRB og Farmanna- og fiski-
mannasambandsins skiluðu bókun, þar
sem þeir sögðu, að með frumvarpi sínu
hefði forsætisráðherra í raun slitið sam-
starfi nefndarinnar.
„Þetta liggur í láginni núna næstu
viku. Það verða lítil stjórnsýslustörf
vegna funda Norðurlandaráðs,” sagði
einn ráðherranna í viðtali við Dagblaðið
i morgun.
- HP
Hækkun á bensíni:
„Fyrsta
hækkun
losar
200 kr ”
„Það verður fundur í verðlagsnefnd
öðru hvoru megin við helgina og jaá
verður tekin ákvörðun í þessu máli,”
sagði Björgvin Guðmundsson, formaður
nefndarinnar, í viðtali við Dagblaðið í
morgun. „Ég hef trú á því, að bensín-
lítrinn fari eitthvað yfir 200 krónur úr
181 í dag, en get ekki sagt nákvæmlega
til um hver krónutalan verður.”
Björgvin ítrekaði það, sem áður hefur
komið fram í fréttum, að þarna væri
aðeins á ferðinni hluti verðhækkana á
olíu og bensíni, aðalhækkunin kæmi er
birgðir í landinu yrðu uppurnar í apríl.
- HP
Xð~Þad'X
ty Kaupið0^
TÖLVUR
)GT<
B AN KASTRÆTI8