Dagblaðið - 17.02.1979, Blaðsíða 1
frjálst,
óháð
dagUað
5. ÁRG. - LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979 - 41. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Gömlu dagana
gef ðu mér
— Dagblaðið líturá
saf ngripi á
stærstu bfla-
sýningu veraldar
sjá bls. 13
Okkurvanfar
fólk—ekki
„prins-póló
drengi”
-sjábls.7
NÝ BIBLÍU-
ÞÝÐING '80
— sjá bls. 5
Ekki orðið varir
viðáberandi
verðhækkanir
— segirftr.
verðlagsstjóra
- sjá bls. 7
Gaf larar lausir
viðgrútarþefinn
— sjá bls. 7
Ólafur kynnir frumvarpið: „Þeir hafa ekki lesið það nógu vel.”
DB-mynd Höröur Vilhjálmsson.
Olaf ur sýnir f rumvarpið:
„ÞETTA ER HARLA
GOTT FRUMVARP”
„Þetta er harla gott frumvarp, en
lengi getur gott batnað,” sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra á fundi með fréttamönnum i
gær, en þá lagði hann fram frumvarp
það um efnahagsráðstafanir sem til
umræðu hefur verið í fjölmiðlum og
á Alþingi að undanförnu.
„Eftir helgina verður skoðað það
sem aðilar vinnumarkaðarins og
aðrir hafa um frumvarpið að segja,
en þar vU ég sérstaklega nefna ASÍ,”
sagði Ólafur ennfremur. „Þetta
frumvarp vil ég helzt leggja fram sem
stjórnarfrumvarp, breytt eða óbreytt,
»n hvort ég legg það fram einn veit ég
ekki Það eru 60 þingmenn á Alþingi
og þeir hafa allir rétt á að leggja fram
frumvörp.”
Ólafur var að því spurður hverja
hann teldi vera ástæðuna fyrir við-
brögðum ráðherra Alþýðubandalags-
ins við frumvarpinu: „Þeir hafa ekki
lesið frumvarpið nógu vel.” -HP.
Mickie Gee við tertuna góðu i gærkvöld. Á henni stendur: Gangi þér vel
með næstu 600 tima! DB-mynd Hörður.
Mickie Gee plötusnúður er hálfnaður með
heimsmeistaratilraun sma:
Við beztu heilsu en
dálítið uppstökkur
— eftir 600 tfma við plötuspilarann
„Ekki get ég sagt að ég hlakki
beint til þeirra sex hundruð klukku-
stunda sem ég á eftir. Tilhlökkunin er
öllu meiri að takmarkið náist,” sagði
Mickie Gee, plötusnúður í Óðali.
Dagblaðið ræddi við hann um sex-.
leytið~í gærkvöld. Þá var Mickie
hálfnaður með ætlunarverk sitt — að
spila plötur stanzlaust í tólf hundruð
klukkustundir.
í tilefni af þessum áfanga færðu
forráðamenn Óðals Mickie Gee
stærðar rjómatertu sem á voru letr-
aðar árnaðaróskir með næstu daga.
Mickie kvaðst vera nokkuð vel á
sig kominn likamlega, aðeins stirður
að vísu en að öðru leyti hress. Sömu
sögu var að segja um andlega heilsu
hans.
„Svefninn sem ég fæ dugir furðan-
lega,” sagði hann. „Mig dreymir
meira að segja á stundum.” — Þó
sagði Mickie að hinn óreglulegi svefn
gerði hann dálítið uppstökkan á köfl-
um. Það kæmi þó ekki teljandi að
sök, því starfsfólk Óðals þekkti að-
stæðurnar og hegðaði sér samkvæmt
því.
-ÁT-
Sædýrasafnid: j---------------
VEL HUGSAÐ UM DÝRIN
—seg/r formaður Dýraverndunarfélags Hafnarfjarðar—háhyrningamir
drápust vegna misvinda og kaldrar veöráttu
„Það eru mjög villandi upplýs-
ingar sem koma frá Jórunni Sören-
sen, formanni Dýraverndunarsam-
bandsins,” sagði Þórður Þórðarson,
formaður Dýraverndunarfélags
Hafnarfjarðar, í samtali við DB í gær
um kæru Dýraverndunarsambands-
ins á'^iendur Sædýrasafninu í Hafn-
arfirði vegna dauða háhyrninganna
tveggjd.
„Stjórn Dýraverndunarfélags
Hafnarfjarðar fór og skoðaði að-
stæður í Sædýrasafninu 14. febrúar
sl. Þar var m.a. enskur dýralæknir
sem hefur dvalizt hér á vegum kaup-
enda háhyrninganna og fylgzt með
aðbúnaði þeirra. Hann taldi vel hafa
verið hugsað um háhyrningana. Hinn
enskí dýralæknir telur að háhyrning-
arnir tveir hafi drepizt vegna mis-
vinda og kaldrar veðráttu en ekki
vegna þess að sjórinn í þrónni hafi
veriðof kaldur.
Gengið var í öll hús í safninu og er
hiti nægur á öllum dýrunum og
þrifnaður yfirleitt góður. Þrifnaður
mætti þó vera betri í fiskabúri og í
bjarndýragryfju. Dökkur litur á
bjarndýrunum er þó ekki vegna
óhreininda.
Stjórn Dýraverndunarfélags Hafn-
arfjarðar tekur fram, að gefnu til-
efni, að þær neikvæðu yfirlýsingar
formanns Dýravemdunarsambands-
ins um Sædýrasafnið séu ekki á rök-
um reistar. Það er móðgun við lög
dýraverndunarfélaganna að hafa
ekki samband við okkur því félagið á
að sjá um mál sem þessi en hafa síðan
samband við Dýraverndunarsam-
bandið ef ástæða þykir til.
Mér og stjórninni er sýnd óvirðing
með þessari framkomu,” sagði
Þórður. „Jórunn verður krafin
sagna. Að okkar dómi er vel hugsað
um dýrin og enski dýralæknirinn
tekurundirþað.
Verði hins vegar háhyrningunum
sleppt aftur í sjóinn er það sama og
að drepa þá. Tveir af þremur eru enn
veikir en eru að hressast.
Hitt er annað mál að Sædýrasafnið
er ekki rétt staðsett. Þar er mjög stutt
niður á klöpp og þar veður allt í
druUu vegna þess. En staðsetningin er
ákvörðun bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar.”
- JH
Menningarverðlaun
DB:
— Bæði með og
móti
— Pólitísk þríliða
ekki látin ráða
— Þarflegt framtak
— Bara til spillis
— Gætu vakið um-
ræðu
— sjá viðtöl á bls. 6
Ekki mátti
miklu tæp-
ara standa
Á föstudaginn um fimmleytið var
kveikt í rusli að húsabaki að
Grundarstig 3. Slökkviliðið kom
að vörmu spori eftir hjálparkall
og mátti ekki tæpara standa.
Mikill reykur var í portinu og
ruslið logaði glatt. Reykinn lagði
inn um glugga i risi og eldurinn
var farinn að teygja sig ískyggi-
lega að húsinu. En allt fór betur
en á horfðist, svo fljótir voru liðs-
menn að slökkva eldinn og bægja
allri hættu frá.
—ASt/DB-mynd Sveinn Þorm.