Dagblaðið - 17.02.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979.
3
Opið bréf til útvarpsráðs á barnaári:
Um efnisval í sjónvarpi
„Ég ætla aö leyfa mér að beina
nokkrum spurningum til útvarpsráðs
og fara nokkrum orðum um efni sjón-
varpsins, sem mér skilst að upphaflega
hafi átt að vera til menningarauka,
sem það vissulega er að sumu leyti.
Þar kemur dálítið af góðu efni, sem
vert er að þakka, en svo kemur það
‘neikvæða, svo sem glæpamyndir af
ýmsu tagi sem eru beinlinis kennsla í
ýmiss konar glæpastarfsemi, svo sem
morðum, ránum og yfirleitt öllu því
versta og ógeðslegasta, sem til er. Þá
tók nú út yfir með sýningu á Kládiusi,
sem nýlega er lokið.
Þessar myndir eru venjulega aug-
lýstar rækilega ekki við hæfi barna
o.s.frv. Nú er það vitað mál, að oft er
sótzt mest eftir þvi sem bannað er.
Börn heyra þessar aðvaranir og sækja
á að sjá þessar myndir. Eina ráðið til
að forða þeim frá þessum óþverra er
að loka sjónvarpinu og gera það marg-
ir sem vilja ala börn sín vel upp.
Nú spyr ég: Við hvaða aldur er
miðað þegar talað er um börn í þessu
sambandi? Hver ræður þvi að svona
myndir eru sýndar? Hafa verið gerðar
athuganir eða kannanir á því hve
margir loka fyrir svona myndir? Er
verið að gefa þeim sem stunda alls
konar glæpastarfsemi á Reykjavíkur-
svæðinu kost á því að fylgjast með því
nýjasta á þessu sviði, sbr. nýjustu
glæpamyndir sem sýndar eru.
Hafa verið gerðar kannanir á því
hverjir vilja horfa á svona myndir?
Ég vil taka það fram að yfirleitt
horfi ég ekki á svona myndir, en
nokkrar hef ég séð, þeirra á meðal
Kládíus. Annars gæti ég ekki dæmt
um þetta, enda eru ekki börn á mínu
heimili að staðaldri. Eru þessar
myndir ódýrar? Fást þær kannski gef-
ins?
Er ekki ástæða til að stytta útsend-
ingartíma sjónvarps og vanda betur til
efnis?
Ef um fjárskort er að ræða ætti að
stytta útsendingar og sýna ekki annað
en það, sem börn mega sjá, án þess að
bíða skaða af. Kannski mætti þá
fækka starfsfólki, en alls ekki láta
Sigrúnu Stefánsdóttur hætta. Hún er
minn uppáhalds kvenfréttamaður.
Sigfús Steindórsson
Mælifelli.”
„Sturlungaöld
yfir okkur”
Stundum hvarflar það að hugsandi
mönnum hver sé tilgangur lifsins og á
hvaða ferð við séum hér í þessum svo-
kölluðum synduga heimi.
Mikið er gert til þess að skilja til-
veru lífsins og sýnist sitt hverjum. Við
þjótum gegnum himinhvolfið með
geysilegum hraða og halda sumir því
fram að himingeimurinn fari stækk-
andi, hvað svo sem það hefur að þýða,
en aðrir halda því fram að geimurinn,
„universið” fari minnkandi. Það var
kenning hins ágæta manns Gisla Hall-
dórssonar sál. verkfr., en hann ritaði
bækling um contracting universes
(minnkandi heima), sem hlaut góðar
undirtektir vísindamanna erlendis.
Við lslendingar vitum næsta lítið
um uppruna okkar, nema það að for-
feður okkar komu frá Noregi og
Irlandi að mestu leyti. Við höfum
tekið að erfðum ýmislegt af einkenn-
um þessara manna, svo sem ófélags-
lyndi, enga konungshollustu og ýmis-
legt annað sem einkennir okkur i dag
og ekki er allt sem skyldi.
Menn spyrja stundum sjálfa sig:
Hvaðan komstu, hvar ertu og hvert
ferðu?
Við vitum nokkurn veginn hvaðan
við komum og við vitum að við höfum
byggt þetta eitt sinn eyðisker í rúm-
lega 1100 ár, en svo er eftir ein spurn-
ing, hvert förum við?
vofir
Sturlungaöld ríkir nú í landinu um
nokkurra ára skeið. Sturlungaöld sem
hefur gert það að verkum að sjálfstæði
okkar hangir nú á bláþræði, a.m.k. á
fjárhagslega sviðinu. Skuldir landsins
hafa aldrei veirð meiri og nýjar láns-
fjáráætlanir munu sjá dagsins Ijós
alveg á næstunni. Þannig getur engin
þjóð hagað sér sem sífellt er að guma
af menningararfi sinum og sjálfstæði.
Eins og stefnir í málum okkar nú
held ég að ekki sé erfitt að svara
' síðustu spurningunni; því við erum á
leið til helvítis, ef ekki verður spyrnt
við fæti í þjóðmálum okkar og vikið
frá þeirri helstefnu sem undanfarið
hefur ríkt hér á landi.
Mér datt þetta (svona) í hug.
Siggi flug, 7877-8083.
Tiberius skólaði börn til i glæpastarf-
semi að mati bréfritara.
Þursa-
flokkurinn
frábær
Fjósakona hringdi:
Tvær stelpur sögðu um daginn í les-
endabréfi i DB að þátturinn með
Þursaflokknum sem sýndur var í sjón-
varpi fyrir nokkru hefði verðir lélegur
enda væri flokkurinn léleg hljómsveit.
Þessu vil ég og vinkonur mínar mót-
mæla harðlega. Þursaflokkurinn er
frábær og hvort sem þessum stelpum
líkar betur eða verr er hann bezta
hljómsveitin í landinu. Um gæði Halla
og Ladda sem þær mikla í löngu máli
má frekar efast.
\V
’V'sA
.(<>• O
gtf CHRYSLER
d o
9 SUÐURLANDSBRAUT 10. SlMAR; 83330 - 8345A
LAUGARDAGS-
v\\
MARKAÐUR1979
D0DGE:
ALFA R0ME0 Alfasud
SUPER, 5 gíra, óekinn glæsi-
vagn. Kraftmikill - sparneyt
inn.
Concours2dr...............1977
Concours4dr...............1976
Pontiac Hatchback.......1973
Ford Fairmont 2 dr......1978
Ford Fairmont 4dr.........1978
Merc. Benz 2400 5 cyl. . . . 1975
Merc. Benz 240D. ...... 1974
Datsun dísil..............1973
VW Passat LS..............1974
VW Passat S...............1975
Hjá okkur færðu bífínn
sem þú lertar ad
1976 PLYMOUTH: Volaré Premier 4dr.. . . . . . 1977
1974 Volaré Custom 4dr.. . . . . . 1978
1972 Volaré Premier 2dr.. . . . . . 1976
1973 Duster . . . 1974
Duster . . . 1973
Eigum til nokkra ónotaða
SIMCA 1508 S og GT árg.
1978 á hagstæóum kjörum.
Volvo 145 sjálfsk.......1974
Volvo 142 sjálfsk.......1974
Volvo 144 .............. 1974
Mazda 929............... 1975
ToyotaCarina.............1974
CitroenGS................1973
CitroenDS................1974
Peugeot 404 sjálfsk.....1974
P/áss fyrir góða bíla í
Chrys/er-sa/num.
VILTU SELJA? VILTU SKIPTA? VILTU KAUPA?
0PIÐ KL. 10-17 Í DAG, LAUGARDAG
Hlustar þú á Passíu-
sálmana?
Ragnar Birgisson nemi: Nei, ég hef ekki
áhuga á þvi.
Sf
Jónlna Sigurjónsdóttir húsmóðir:
alltaf, ég geri það af trúarástæðum.
Jóhannes Björnsson veggfóðrari: Já, það
kemur fyrir, ég hef alltaf gert það af og
til.
SIMCA:
Horizon GLS................1979
Horizon LS nýr.............1979
1508 GT....................1977
1307 GLS.
1100 LE. . . .
1100 LX . . .
Sendibíll Tröll
Sigþór Birgisson nemi: Nei, ég geri lítið
aðþvj. Ép hlusia lítiöá útvarp.
Horizon verðlaunabíllinn til sýnis og sölu hjá okkur. Rúmgóði smábíllinn.
Bronco . 1974
Bronco . 1973
Range Rover . 1974
Wagoneer . . 1974
Blazer . 1974
FYRIR SKATTPÍNDA:
Toyota Mark II 1971
Cortina 1970
Katarina Óladóttir nemi: Nei, ég hef
ekki tíma til þess, ég horfi frekar á sjón-
varpið eða er sofnuð, þetta er svo seint á
kvöldin.
CHRYSLER
SUÐURLANDSBRAUT 10 - SÍMAR 83330 -83454
'Hitíllll
Andrés Sveinbjörnsson verkfræðingun
Ekki reglulega, ég hlusta ekki oft á út-
varp.