Dagblaðið - 17.02.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1979.
Mót-
mælum
allir þrír
- bókun ráðherra
Alþýðubandalagsins
„í frumvarpi því um efnahags-
mál, sem forsætisráðherra lagði
fram á fundi ríkisstjórnarinnar,
eru fjölmörg atriði sem við, ráð-
herrar Alþýðubandalagsins, erum
andvígir eða höfnum algerlega. í
þessari bókun viljum við sérstak-
lega mótmæla nokkrum megin-
þáttum sem lögfesting þessa
frumvarps hefði í för með sér,”
segir í upphafi bókunar þeirrar
sem ráðherrar Alþýðubandalags-
ins, Svavar Gestsson, Ragnar
Arnalds og Hjörleifur Guttorms-
son, lögðu fram í ríkisstjórninni.
Segir i greinargerðinni að 7.
kafli frumvarps draganna lög-
bindi kauplækkun og að þar séu
ákvæði um að breytingar á óbein-
um sköttum verði teknar út úr
vísitölunni. „Þessi kafli og 7.
kaflinn i heild brjóta algerlega í
bága við samstarfsyfirlýsingu
st j órnarf lo kk anna. ”
Ráðherrarnir segja í bókun
sinni að þeir hafi margsinnis var-
að við hættu á atvinnuleysi.
„Þrátt fyrir þær aðvaranir er
ljóst að nokkur ákvæði frum-
varpsins fela í sér tillögur um
samdrátt sem leitt gæti til at-
vinnuleysis.”
„Auk þeirra greina í frumvarpi
ráðherra, sem Alþýðubandalagið
telur að séu í andstöðu við þau
grundvallaratriði sem rikisstjórn-
arsamstarfið er byggt á, skortir
algerlega í frumvarpið ákvæði um
þær aðgerðir sem Alþýðubanda-
lagið lagði til í ráðherranefndinni
að yrðu meginuppistaðan i efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar,”
segir ennfremur í bókuninni.
Hr.
Bíll virðist
hafa
gufað upp
Enn vantar Volkswagen-bif-
reiðina R-57903 sem stolið var frá
Suðurlandsbraut 10 hinn 9. janú-
ar sl. eða fyrir tæpum 5 vikum.
Hefur ekkert til bíisins spurzt og
biður lögreglan alla sem séð hafa
bílinn að láta vita. Bíllinn er af
gerðinni 1300árgerð 1974, rauður
að lit.
Fimm aðra bíla vantar nú í
Reykjavík, Hafnarfirði og Kópa-
vogi en þeim var stolið í nótt og í
fyrrinótt. -ASt.
Tvö hross
ekin niður
íHvalfirði
Á þriðjudagskvöldið var ekið á
tvö hross í námunda við Kala-
staðakot skammt frá Grundar-
tanga. Hrossin særðust svo mikið
að aflífa varð þau bæði.
Billinn, sem var frá Reykjavik
á leið til Grundartanga, skemmd-
ist mikið og var óökufær. Öku-
maður lét bónda vita um hrossin
en yfirgaf síðan bílinn með lykl-
um í. Síðar gaf hann sig fram við
lögregluna á Akranesi. Fram skal
tekið að enginn grunur er um ölv-
un við akstur.
-ASt.
Myndir
brengluðust
íKjallara
Þau leiðu mistök urðu í
sambandi við kjallaragrein í
föstudagsblaðinu að birt var
mynd af Kristni Péturssyni sjó-
manni í stað Kristjáns Pétursson-
ar deildarstjóra. Eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á þessu.
—HP.
Breytingarnar
Ný biblíu-
þýðing | ■ ■ ■ ■ r ■
tvinnsiu: i sKipta þusuiidum
— flestar tilkomnar vegna nýrrar stafsetningar og greinarmerkja, segir
dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor við HÍ
„Helzti gallinn á þýðingu Gamla
testamentisins felst í því, að um alda-
mótin töldu menn að þýðingin þyrfti að
fylgja sem allra mest eftir gerð frum-
textans, helzt frá orði tii orðs. En
nútíma málvísindi sýna að aðrar leiðir
eru til betri. En þýðingin er á góðu
máli. Þess vegna verður hún endur-
prentuð með stöku viðgerðum,” sagði
dr. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor við
guðfræðideild HÍ er DB spurði hann,
hvers vegna væri þörf á að endurskoða
þýðingu biblíunnar. Dr. Þórir hefur
haft yfirumsjón með endurskoðunina
en stúdentar hafa verið honum til að-
stoðar. Jón Óskar rithöfundur er ráð-
gjafi hópsins um málfar og tungutak.
„Breytingarnar skipta náttúrlega
þúsundum en langflestar eru til komnar
vegna nýrrar stafsetningar oggreinar
merkja. Það er i raun og veru bylting á
textanum vegna þess að greinaskil eru
sett, ný kaflaskipti og fyrirsagnir.
Við erum svo heppnir íslendingar að
hafa þessa ágætu þýðingu Gamla testa-
mentisins. í þýðingarnefndinni á
sinum tíma voru t.d. þjóðskáldið Stein-
grímur Thorsteinsson, Þórhallur
Bjarnarson biskup og Haraldur Niels-
son prófessor, sem var aðalþýðandinn
og sinnti þessu verki af feikilegri alúð
og fór utan, bæði til Þýzkalands og
Bretlands og kynnti sér nýjungar í
biblíuvísindum. Einmitt á þessum árum
hafði rannsókn textans fleygt mjög
fram. En því er náttúrlega ekki að
neita, að ýmsar textagátur hafa verið
leystar síðan. Þar koma til bæði forn-
leifafundir og annað, sem í sjálfu sér
gerir ekki verk þýðandans auðveldara,
því nú verður að skoða málið frá fleiri
hliðum en áður.”
Hinn árlegi biblíudagur er á morgun.
Verður þá vakin sérstök athygli á biblí-
unni, bæði við guðsþjónustur og önnur
tækifæri. Verða sýningar á biblíuútgáf-
um í ýmsum kirkjum og Hið íslenzka
„ t* 11** w *<4k '•< i • ■
■ Siíu AÍIJ, oá^s StrS'-i- W&S
. íusJíí. tKíÚj « *fúú> ‘itifi
'ZiZ&te ^ ***- ^
siþ '<&*& «ítaa:4
ís »S~ tiSxi, as*v-a aífi &- -i_á
. íií_ sas-íí újjkj vúda -a:. asXa íiOas:
úJtto 'iiú osaáa.: IjÉk. iS-
v-i túS, »4a«Cf CiSAA, öiU Uá-li fiuJa&s'éi
iLts, iit. ö-'w> iitstia úiu íiá'_ tiISi UdJ
— ta*o tiLi tt&Jo. x3a ’úMUi. ÍIi
,úíxa'SXA'Jáv’ rtís áik.
. tALi fkíL Cáp-Ss 'Ja.: i-ilút:. »4*. ixU áSúi
«>, ÓtLa *íjfc-í titús, U'i'u.K.,Íwtí->:
okíx, kSL ökJi ía >iúða
kjjinLSz ouda&l U4Ú OítóOl r£. é*
.. kiw iÁá tí itiU -ifiáu,- fiisei. LiSi
•sUi *£■- tiiiás LúSiá xw-L-'. íLlm
teu iífiAa (Stí Sí- 'tíiXí •'í-dt tól 44Í&j
•tikj. itiJiu Í4a£ .4'-»-
> scfi. itf., WB-dlx itífi. wtiw, yíi:
nitíx.ujjáá, SfiSjfifi Cíu: .útiu.,uaSi
■ • ■-••*£. Xfifiáu atujviu ú_iCL'
WL ífi.Sit'ú fifiAfi fijt fit* t&J Í_u2u >■£** S*
’ú.tifi 44'-
tJj'- cáífi.
ítciúxi*.
tíufii
tíiAa i-t
7—
►éúa.
MÍ.Í4U
aifaaVv
ifii
•“SVVfJ
Hérlendis er þetta verk unnið innan
veggja Guðfræðideildar Háskólans
með fjárstuðningi biblíufélagsins. Guð-
spjöllin og Postulasagan hafa verið
endurþýdd og önnur rit Nýja testa-
mentisins endurskoðuð af starfshópi
undir forystu Jóns Sveinbjörnssonar
prófessors.
Þetta mikla verk hefur tekið nokkur
ár en er nú stefnt að því að handrit
verði tilbúið tii prentunar fyrir næstu
áramót. Mætti þá hugsanlega búast við
nýrri biblíuútgáfu um jól 1980.
Biblían hefur nú verið þýdd og prent-
uð á tæp 1700 tungumál, og bætast ný
mál i hópinn á hverju ári. Eru það yfir-
leitt tungumál sem ekki hafa áður verið
tjáð í rituðu formi og er biblían eða ein-
stök rit hennar oft fyrsta lesefnið á
málinu. íslenzkan ér hins vegar númer
23 í tímaröð þessara tungumála og hafa
íslendingar notið þess sem Heilög ritn-
ing hefur fram að færa frá 1540 er Nýja
testamenti Odds Gottskálkssonar kom
út. -GAJ
Dr. Þórir Kr. Þorðarson prófessor
vinnur að endurskoðun á texta Gamla
testamentisins. Ekki er um nýja þýð-
ingu að ræða heldur eru aðeins fram-
kvæmdar nauðsynlegustu breytingar á
texta, Guðspjöltin og Postulasagan eru
hins vegar þýdd alveg á nýjan leik.
DB-mynd Bjarnleifur.
Sýnishorn af hinum
Gamla testamentisins.
hebreska texta
biblíufélag, elzta starfandi félag lands-
ins, heldursinn 164. aðalfund í Háskól-
anum kl. 14ásunnudag.
Aðalverkefni biblíufélagsins er að
tryggja að nægjanlegt upplag og úrval
af biblíuútgáfum sé fáanlegt á markað-
inum. Annað meginverkefni biblíufé-
lagsins er að sjá til þess að Ritningin sé
til á skiljanlegu máli og í nákvæmri
þýðingu. þar sem tungutak er sífellt að
breytast og vísindalegar rannsóknir
kasta nýju Ijósi á frumheimildir, fer si-
felld endurskoðun biblíutexta fram.
Til leigu í miðbænum
á 2. hæð í steinhúsi ca 90 fermetrar, einnig ca
115 fermetrá húsnæði tilvalið fyrir skrifstofur
eða léttan iðnað.
Upplýsingar í síma 25252 á daginn og 20359 á
kvöldin.
cMátlk l(c
ta(o
owun iata
A KONUDAGINN
-BLÓM^VEXHR
HAFNARSTRÆTI 3 . SÍMI 12717