Dagblaðið - 17.02.1979, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979.
Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða
rafmagnstæknrfræóing
eða raftækni til starfa á Norðurlandi vestra með aðsetur
á Blönduósi. Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri
á Blönduósi eða starfsmannastjóri i Reykjavík.
Umsóknir er greini frá menntun, aldri og fyrri störfum
sendist starfsmannastjóra.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
LAUGAVEG1116
105 REYKJAVÍK
Blikksmiðjan h.f.
Skeifan 3 auglýsir
Erum fluttir að Kársnesbraut 124. Nýtt
símanúmer 41520. BllKKSHIIDJAN HF.
glæ»ilcg vilarkyiini
Getum boðið til afnota ný og glæsileg salarkynni fyrir
hvers konar fundi og mannfagnaði, stóra og smáa. Erum
staðsettir við Reykjanesbrautina í Hafnarfirði. Tengt
salnum er stórt fullkomið eldhús, þar sem við getum
framreitt Ijúffenga matarrétti við allra hæfi.
Einnig útbúum við allskonar mat fyrir veislur eða smá-
boð sem haldin eru annarsstaðar. _
Maturinn frá okkur svíkur engan — spyrjið þá sem reynt
hafa.
Ike Veitingohú/iö
GAPi-mn
v/REYKJANESBRAUT - SIMI 54424
Látið fara vel um ykkur í þægilegu umhverfi
nýjasta veitingahúsi Hafnarfjarðar.
Hvað fhmstþérim
menningarverðlaun DB?
c
Við leituðum álits nokkurra valinkunnra
manna og kvenna
Þarflegt
framtak
Atli Helmlr Sveinsson tónskftld.
„Þetta er þarflegt framtak, ef það
vekur athygli á einhverju góðu. Ég
vona að þau gleðji bæði listamenn og
listunnendur,” sagði Atli Heimir tón-
skáld.
Gætu vakið
umræðu
„Umræða í fjölmiðlum um bygging-
arlist og skipulagsmál er á íslandi svo
lítilfjörleg og á svo lágu smápólitísku
kjallaraplani,” sagði Jón Haraldsson
arkitekt, ,,að ekki getur talizt marktæk
— af tillitssemi við þjóðarsóma bezt
talin engin.
Sérhver sú viðleitni, í hvaða formi
sem er, sem kynni að bæta þetta nötur-
lega ástand — hlýtur að vera fagnaðar-
efni.”
Jón Haraldsson arkitekt.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
Pólitfsk
þrfliða
ekki látin
ráða
„Reynslan af úthlutun menningar-
verðlauna eða viðurkenninga hérlendis
er ekki sérlega uppörvandi eftir því sem
ég man til, og of oft ýmist gremju- eða
aðhlátursefni,” sagði Guðrún Jóns-'
dóttir arkitekt. „Ástæðan fyrir því
gæti verið sú að sjaldnast hefur nokk-
urt skynsamlegt, rökrétt markmið
ráðið heldur meira og minna handahóf,
ef þá ekki einhvers konar pólitísk þrí-
liða.
Á sviði húsagerðar tel ég þau ein verk
geta verið verðlaunaverð, þar sem
leystar eru á hagkvæman hátt þarFir
þess sem unnið er fyrir, húsið fellur vel
að umhverfi sínu og allt efni, bæði utan
og innan, er notað í samræmi við eðli
sitt og eiginleika. Þegar þessi sjónarmið
eru felld saman í listræna heild getur
verið um verðlaunavert verk að ræða.
Þá hefur viðurkenning meðal annars
það gildi að athygli almennings er
vakin á því að góð lausn byggist á rök-
réttri hugsun, sem unnið er að á grund-
velli góðrar menntunar, samvizkusemi
og listrænna hæfileika.
Það getur orðið samfélaginu til stór-
mikils gagns ef fólki lærist að skilja að
óbrotið og látlaust hús, sem fellur vel
að umhverfi sínu, hlýtur viðurkenningu
dómbærra manna. En það er tvímæla-
laust til tjóns ef verðlaunuð eru mont-
hús, þar sem menningarleysi, glysgirni
og fjáraustur haldast í hendur.”
Bæði með
og móti
Guðný Guðmundsdóttir konsertmeist-
ari.
,,Ég er bæði með og móti svona
verðlaunum,” sagði Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari.
„Mér finnst þau góð að því leyti, að
það er alltaf verið að velja popp- og
íþróttastjörnur — en listamenn falla i
skuggann. Svona verðlaun geta vakið
athygli almennings á listunum og sett
þær meira í sviðsljósið.
En það sem ég hef á móti þeim er að
mér finnst leiðinlegt að vera að draga
fólk í diika og upphefja einn á kostnað
annars — hvort sem það er í lista- eða
poppheiminum.”
Bara til
spillis
Hjörleifur Slgurðsson listmálarí.
„Mér finnst verðlaunaveitingar á sviði
lista bara vera til spillis og vansa. Þær
ýta ekki undir listsköpun eða skilning á
verðmætum, heldur vísa þær fólki á
þetta gljáandi yfirborð . . .” sagði
Hjörleifur Sigurðsson listmálari.
Afmælishóf
Armanns
Við Laugaveginn inn undir
Snorrabraut, þar sem nú er
Stjörnubíó, var eitt sinn ræktað
tún sem kallað var Skellur. Á
þessu túni var Glímufélagið Ár-
mann stofnað undir berum himni
um hávetur; 15. desember árið
1888 af 20 til 30 glímumönnum
sem voru að ljúka glímuæfingu á
vellinum.
Þann 15. desember sl. var við
hátíðlega athöfn afhjúpaður
veggskjöldur til minningar um
þennan atburð. Annað var ekki
gert af hendi félagsins á þeim
degi, sem var föstudagur rétt fyrir
jól og óhægt um að ná saman
fólki til að fagna afmælinu.
Afmælis félagsins verður
minnzt á morgun sunnudaginn
18. febrúar með kaffidrykkju í
Domus Medica kl. 15—17.30 sd.
Ármenningar, eldri sem yngri,
eru velkomnir, svo og aðrir vel-
unnarar félagsins.
ÚTIDEILDIN
LÖGD NIÐUR
- meðf erðarheimilið rekið áfram
- viðræður við FEF um Mæðraheimilið
Töluvert var rætt um málefni Úti- á að fé er fyrir hendi til athvarfsins á
deildar, meðferðarheimilisins við Hagamel, sem gæti styrkt þá starf-
Kleifarveg og Mæðraheimilisins á semi sem Útideildin hefur haft með
borgarstjórnarfundi i gær, að sögn höndum. Starf Útideildarinnar
Egils Skúla Ingibergssonar borgar- verður kannað með breytt fyrir-
stjóra. Sýndist sitt hverjum. komulag í huga.
Tillaga sjálfstæðismanna um
Ákveðið var að rekstur meðferðar- Mæðraheimilið var samþykkt, en
heimilisins yrði óbreyttur til áramóta, hún gerir ráð fyrir því að teknar verði
en rekstur heimilisins verði athug- upp viðræður við Félag einstæðra
aður með tilliti til hagræðingar. Úti- foreldra um rekstur heimilisins.
deildin verður lögð niður, en bent er —JH.