Dagblaðið - 17.02.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979.
7
Okkur
vantar
fólk en
ekki
„prins-
póló
drengi”
— menn vinna allt að 40
tíma lotur á Eskifirði
Geysimikil atvinna hefur verið á
Eskifirði undanfarið og vantar fólk oft
á tíðum, ekki sízt þegar að útskipun
kemur. Hér er engin þörf fyrir „prins-
póló-drengi eða stúlkur”. Það vantar
fólk sem kann að vinna og getur vakað
sólarhring eftir sólarhring með 4—6
tíma svefni þegar bezt Iætur.
Ég hitti ungan mann niðri i bæ sem
vinnur vaktavinnu í loðnubræðslunni.
Kvaðst hann hafa lokið 5 vöktum sam-
fleytt, en hver vakt er 8 tímar.
Hér eru borgaðar út vikulega um 24
milljónir króna til fólks sem vinnur hjá
hraðfrystihúsinu, þ.e. öllum deildum
þess og verkstæðum, að sögn Magnús-
ar Bjarnasonar fulltrúa þar.
Auk þess fá sjómenn greiddar um
eða yfir 4 milljónir á viku hverri.
Vinnuaflsskorturinn hér stingur í
stúf við frásagnir í blöðum af svo og
svo mörgum annars staðar sem eru á
atvinnuleysisbótagreiðslum. Vilji fólk
vinna hér í 2—3 mánuði fær það fríar
ferðir fram og til baka og er séð fyrir
ódýru fæði.
Regína/ASt.
Hækka kaupmenn vörur sínar í kjölfar verðlagsdómsins?
Ekki orðið áberandi
varir við verðhækkanir
— segir lögmaður verðlagsstjóra
„Við höfum ekki orðið áberandi
varir við að kaupmenn hafi hækkað
vörur sínar,” sagði Gísli ísleifsson
hrl., lögmaður verðlagsstjórans, í
viðtali við DB i morgun. Gísli sagði
að ekki hefði verið kannað sérstak-
lega um verðhækkanir með hliðsjón
af dómi undirréttar um hina mjög
svo umdeildu og margræddu álagn-
ingarheimild. Hins vegar hefði venju-
Iegt, hefðbundið eftirlit Verðlags-
skrifstofunnar ekki bent til verulegra
bragða um hækkun álagningar.
Björgvin Guðmundsson, formaður
verðlagsnefndar, áfrýjaði áður-
greindum dómi fyrir hönd verðlags-
nefndar til Hæstaréttar.
Gísli ísleifsson hrl. kvaðst enn ekki
hafa fengið útskrift á gögnum
málsins til ágripsgerðar til Hæstarétt-
ar. Dóminn um ógildingu á samþykkt
verðlagsnefndar kvað upp Magnús
Thoroddsen borgardómari. Frestur
var fenginn til 2. apríl til að skila til
Hæstaréttar nauðsynlegum gögnum.
„Égá nú heldur von á því að með-
ferð málsins hér fyrir Hæstarétti
verði hraðað,” sagði Björn Helgason
hæstaréttarritari í viðtali við DB.
Hann kvað fordæmi fyrir því að
málum væri hraðað ef sérstakar
ástæður þættu til.
Augljóster þóaðúrslit þessamikið
rædda og mikilvæga máls verða ekki
ráðin til lykta fyrir dómstólum lands-
ins allra næstu mánuði. BS.
Hafnfirðingar loks
lausir við fýluna
— vegna nýrra hreinsitækja við Lýsi og Mjöl hf.
• Ólykt og mengin hefur lengi þjakað
Hafnfirðinga, þegar fnykinn frá Lýsi
og Mjöl hf. hefur lagt yfir bæinn. Nú
loks sjá Hafnfirðingar fram á bjartari
tíð, vegna nýrri hreinsitækja við verk-
smiðjuna. Hin nýju tæki eru framleidd
á vegum Jóns Þórðarsonar og Loft-
hreinsun hf. og hefur Raunvísinda-
stofnun Háskólans annazt könnun á
hreinsigetu hinna nýju tækja.
Kostnaðurinn við verkið er nálægt
130 milljónum króna, en eitthvað
verður endurgreitt af þeim kostnaði,
þar sem stjórnvöld hafa samþykkt að
fella niður aðflutningsgjöld og sölu-
skatt af efni, vélum og tækjum sem sett
eru upp að kröfu Heilbrigðiseftirlitsins.
Rannsóknir á getu þessara nýju
tækja standa enn yfir, en sá reynslutimi
sem liðinn er spáir góðu um að tæki
þessi skili fyllilega því sem kom út úr
reynslutækjum, sem sett voru upp árið
1976.
Ekki tókst að mæla tölulega lykteyð-
ingu tilraunatækisins, enda mjög erfitt
svo áreiðanlegt sé, og greinir vísinda-
menn mjög á um framkvæmd og áreið-
anleika slíkra mælinga. En sé vísað til
skýrslu Raunvísindastofnunar um
rannsóknina telur höfundur hennar að
lykteyðing sévart lakari en 97—98%.
-JH.
Þetta er framtfðin. Lykt- og efnaeyðing á bilinu frá 95—99.5%.
Nýr verslunarstjóri
Garðar Guðmundsson
MALNINGARMARKAÐUR
VEGGSTRIGI rr7ííT^j7lífóvér?i
VEGGDUKUR \Shefur .
VEGGFÓÐUR ^yatttborg^J}^
OPIÐ LAUGARDAGA TIL HÁDEGIS
Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18 — Sími 82444
1 511 * fK* fcW *
I — ?1hB 1 %M • ^-„,4SÍSJ 1 wmwí^ 1
J .. ~ "rV W f ac^„;