Dagblaðið - 17.02.1979, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979.
BIAÐin
iijálst, úháð dagblað
Útgefandi: Dagblaöiö hf.
Framkvmmdastjóri: Sveinn R. EyjóKsson. Rttstjórl: Jónas Kristjánsson.
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfuiitrúi: Haukur Heigason. Skrffstofustjóri rítstjómar
Jóhannes ReykdaL iþróttir: Hallur Simonarson. Aöstoöarfréttastjórar AtJi Steinarsson og Ómar ValdÉ
marsson. Menningarmál: Aöabtainn Ingótfsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson.
Biaöamenn: Anna Bjamason'Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stafánsdóttír, Gissur Sigurös-
son, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Hallsson, Helgl Pátursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson,
Ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson.
Ljósmyndir: Ámi Páil Jóhannsson, Bjamieifur Bjamlelfsson, Höröur Viihjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs-
son, Sveinn Þormóösson.
Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Práinn Þoríeifsson. Sökistjórí: Ingvar Sveinsson. DreKing
arstjóri: Már E.M. Halldórsson.
Ritstjóm Siöumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadoild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
Aöalsimi blaösins er 27022 (10 linur). Áskrift 2500 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakiö.
Setning og umbrot Dagblaöið hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun:
Arvakur hf. Skeifunni 10.
Rúmenía er íhættu
Ceausescu Rúmeníuforseti gæti auð-
veldlega misreiknað sig og gengið einu
skrefi of langt, þegar hann stendur þrá-
faldlega og kerfisbundið uppi í hárinu á
leiðtogum Sovétríkjanna.
Að mati þessara leiðtoga er hann ________________
friðarspillir hinn mesti. Á fundi Varsjárbandalagsins
fyrir áramótin neitaði hann að undirrita samning um
nánara hernaðarsamstarf og aukin völd Sovétríkjanna
í bandalaginu.
Við það tækifæri sagði Ceausescu, að stríðshætta
væri lítil og að tillögur Sovétríkjanna væru út í hött.
Rúmenar hefðu ekki ráð á auknum herútgjöldum og
mundu ekki taka þau á bakið.
Á sama fundi bandalagsins neitaði hann að undirrita
yfirlýsingu um, að ráðamenn Kína væru stríðsæsinga-
menn. Raunar hefur hann árum saman reynt að vera
hlutlaus í deilum ráðamanna Sovétríkjanna og Kína.
Þrisvar sinnum hefur Ceausescu farið í heimsókn til
Peking. í ágúst í fyrra tók hann á móti Hua, flokksfor-
manni í Kína, og bakaði sér með því mikla reiði ráða-
manna Sovétríkjanna, sem eru sjúklega hræddir við
Kínverja.
Á fundi bandalagsins fyrir áramótin neitaði
Ceausescu ennfremur að undirrita gagnrýni á friðartil-
raunir Bandaríkjanna í Miðausturlöndum. Raunar er
Rúmenía eina Varsjárbandalagsríkið, sem hefur vin-
samleg samskipti við ísrael.
Rúmenía tók á sínum tíma ekki þátt í innrás Varsjár-
bandalagsins í Tékkóslóvakíu og fordæmdi hana
raunar harðlega. Um langt skeið hefur Rúmenía neitað
að hafa erlent herlið í landinu og neitað Varsjárbanda-
laginu um heræfíngar í Rúmeníu.
Þegar Ceausescu kom heim af síðasta fundi Varsjár-
bandalagsins gerði hann allt, sem hann gat, til að aug-
lýsa missætti sitt og ráðamanna Sovétríkjanna. Af
ráðnum hug fékk hann bandalagsríkin til að kalla heim
sendiherra sína frá Rúmeníu og til að hefja áróðursher-
ferð gegn sér i fjölmiðlum.
Ceausescu hefur lengi reynt að sameina harðan
stalinisma í innanríkismálum og hart sjálfstæði í utan-
ríkismálum. Rétttrúnaður hans í innanríkismálum
hefur vafalaust hingað til hindrað innrás Sovétríkj-
anna. En hvenær gengur hann of langt?
Sovétríkin réðust inn í Ungverjaland 1956. Þau
réðust inn í Tékkóslóvakíu 1968. Hví skyldu þau ekki
leika sama leikinn í Rúmeníu 1979? Munu ráðamenn
Vesturlanda ekki líta undan og láta Sovétríkin hafa sitt
fram, eins og í hin tvö skiptin?
Auðvitað er mikil hætta á innrás Varsjárbandalags-
ins í Rúmeníu. Það heldur hins vegar aftur af ráða-
mönnum Sovétríkjanna, að þeir vita, að í slíku stríði
mundu hinir 22 milljón Rúmenar standa sem einn
maður að baki Ceausescu. Innrásin yrði erfíð.
Rúmenía hefur óneitanlega mikla sögulega sérstöðu í
Austur-Evrópu. Hún er rómönsk eyja i slavnesku hafi.
Hin fornu tengsli, tunga og menning, eru við Róma-
borg en ekki Moskvu. Þetta magnar þjóðernistilfínn-
ingu Rúmena.
Ceausescu er einmitt að reyna að magna þessa til-
finningu, svo að þegnarnir gleymi því, að einstaklings-
frelsi er minna í Rúmeníu en í nokkru öðru ríki Var-
sjárbandalagsins og að lífskjör eru með þeim bágustu.
Hann notar deilurnar við Sovétríkin til að treysta
völd sín heima fyrir. Það hefur honum tekizt. En hætt-
urnar liggja við hvert fótmál, því að ráðamennirnir í
Moskvu eru gamlir og taugaveiklaðir íhaldsmenn.
Afghanistan:
MIKUR ERHÐLÚKAR
BYLDNGARSTJORNAR
EFTIR ARS SETU
Heldur mun byltingarstjórninni í
Afghanistan ganga illa ef marka má
fregnir þaðan. Byltingin mikla i apríl
eins og kommúnistaflokkur Afghanist-
an vill kalla hana á satt að segja
heldur erfitt uppdráttar. Nur
Muhammad Tarakki forseti byltingar-
ráðsins er nú sagður eiga samtímis í
höggi við her landsins, hinn
kommúnistaflokk landsins, sem er rót-
tækari en ríkjandi flokkur, og auk þess
íhaldssama ættarhöfðingja. Einkum
hefur samvinnan eða baráttan gegn
ættarhöfðingjunum gengið brösug-
lega.
í síðasta mánuði, þegar Tarakki for-
seti uggði ekki að sér og var í Moskvu
að undirrita vináttusamning við
stjórnina þar, þurfti fimm þúsund
manna lið af Pathan ættflokkinum að
gera uppsteyt.Réðust þeir á borgina
Chigna Serai, höfuðborg Kunar
Gwynne Dyeer
héraðs nærri pakistönsku landa-
mærunum. Sveitir andkommúnista
hafa haldið nokkrum borgum nærri
landamærunum undanfarna mánuði.
Gerðu þeirsér vonir um að ef þeir
næðu Chigha Serai á sitt vald mundi
það valda enn meiri óróa meðal ætt-
flokka sem búa á nærliggjandi
landsvæðum.
Rikisstjórn kommúnista hefur tekið
þetta framferði óstinnt upp. Hefur
um það bil tólf þúsund manna lið verið
flutt á ófriðarsvæðin, auk herþyrla.
Flugher landsins hefur daglega látið
rigna sprengjum á þorp þar sem talið
er að uppreisnarmenn búi. Vitað er að
leiðtogar þeirra, sem margir hverjir
hafa flúið til Pakistan, hafa sett þar á
fót hreyfingu sem vinna á að
múhameðskri byltingu í Afghanistan.
Beita baráttumenn hennar bæði trúar-
legum rökum og ættflokka til að vinna
landsmenn á sitt band og gera þá and-
vígastjórn kommúnista.
Tarakki er það vel Ijóst að slíkar
uppreisnir eða skærur geta sundrað
her landsins gjörsamlega. Ekki eru
nema nokkrir áratugir síðan þetta
gerðist í Afghanistan. Her landsins er
hins vegar til muna öflugri nú en þá og
mundi að líkindum aldrei bíða ósigur í
styrjöld gegn her ættflokkanna. Aftur
á móti er herinn sundraður í málefna-
legri afstöðu sinni gagnvart þeirri
stefnu stjórnar kommúnista sem rekin
hefur verið síðan í byltingunni í april.
Þá var afstaða hersins mjög misjöfn og
þess voru meira að segja dæmi að
hermenn berðust þá innbyrðis og
styddu gagnstæða aðila.
Ekki var nóg með það. Hinir rót-
tækari yfirmenn i hemum voru klofnir
i tvo hópa, sem hvor studdi sinn hluta
kommúnistaflokksins. 1 ágúst siðast-
liðnu'm lét yfirstjórn landsins meira að
segja handtaka varnarmálaráðherrann
sjálfan, Abdul Khadir hershöfðingja,
sem stjórnaði liðinu sem studdi
byltingu kommúnistaflokksins. Hon-
um var gefið að sök að vera að undir-
búa gagnbyltingu gegn hinni nýju
rikisstjórn. Mánuði síðar gekk Tarakki
enn lengra og rak alla ráðherrana sem
styðja róttækari arm kommúnista-
flokksins úr ríkisstjórn sinni. Sagði
hann þá bera að þvi að vera ekkert
nema þjónar endurskoðunarsinna og
heimsveldastefnu. Stjórnin er talin
EINING
MANNKYNS
Allt frá því eingyðistrú kom til sög-
unnar í bernsku mannkynsins hafa
spámenn og vitringar séð fyrir sér
mikla gullöld friöar og velsældar, þar
sem ólíkar þjóðir hafa tengst órjúfandi
böndum og lifa saman eins og ein fjöl-
skylda í einu föðurlandi. Þessi fram-
tiðarsýn um réttlátt heimsríki er sam-
eiginleg öllum opinberuðum trúar-
brögðum mannkyns. Trúarbragðahöf-
undarnir hafa allir sem einn sagt fyrir
um komu mikils endurlausnara, sem
grundvalla muni þetta friðarríki á
jörðinni. Þannig lýsir Kristur þvi yfir,
að Hann muni koma aftur í dýrð
Föðurins. 1 spádómsbókum Gyðing-
dóms er sagt fyrir um komu Drottins
herskaranna. 1 Kóraninum er spáð
„hinni miklu boðun”, sem verða muni
á endadægri þjóðanna, þ.e. þegar rikj-
andi skipulag þjóðanna líður undir
lok. Búddhistar vænta fimmta Búddh-
ans, sem tala muni til allra þjóða ver-
aldar. 1 hinum fornu trúarbrögðum
Saraþústra er sagt fyrir um komu
Sháh Bahrám, höfðingja Ijóssins og
réttvísinnar.
Bahá’íar fullyrða, að þessi endur-
lausnari sé þegar kominn með öllum
þeim teiknum og ummerkjum, sem
fylgja áttu komu Hans. Þeir segja, að
Hann sé Bahá’u’lláh, einn þeirra fá-
gætu einstaklinga, sem hafa vald til að
breyta hjartalagi og hugarþeli manna,
umskapa þá og leggja grundvöll að
nýrri siðmenningu þeirra. Þeir telja,
að nú, þegar boðskapur Hans blasir
við augum allra manna, sem á annað
borð vilja sjá og heyra, sé hægt að
rekja skref fyrir skref þá leið, sem farin
hefur verið til þess að búa mannkynið
undir einingu og allsherjarbræðralag.