Dagblaðið - 17.02.1979, Side 13

Dagblaðið - 17.02.1979, Side 13
13 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979. _ GÖMLU DAGANA GEFÐUMÉR Dagblaðið skoðargamla bíla á Greater New York Auto Show Þessi litli, tæplega fertugi kappakstursbíll, var einn af þremur slíkum sem sýndir voru á Greater New York Auto Show. Hann á tæpast eftir að vinna nokkra sigra framar þó að krafturinn sé annars ágætur. En söfnunargildið cr ótvirætt. Þó að bilasýningin Greater New Dagblaðinu á mánudaginn, hafi fyrst York Auto Show, sem sagt var frá í og fremst verið kynning á 1979 árgerð- um fólksbila, gaf þar einnig að lita gott safn gamalla bifreiða. Þær voru á mis- jöfnum aldri, allt frá því á fyrsta ára- tugi aldarinnar til þess sjötta. Eftirtektarvert var, að flestir þessara gömlu bila voru til sölu. Þarna gátu áhugasamir bilasafnarar keypt sér 1933 árgerðina af Rolls Royce á litlar átta milljónir eða þrem árum yngri Packard á fjórar milljónir. Þá voru einnig á boðstólunum nokkrar ódýrari og jafn- framt yngri bifreiðir. Ford T-Bird var yfirleitt á viöráöanlegu verði fyrir þá, sem á annað borð gefa sig að þvi að kaupa gamlar bifreiðir. Þá gaf einnig á að lita á þessari stærstu bilasýningu veraldar stórglæsi- lega vagna, Rolls Royce árgerð 1910, Mercedes Benz Gazelle, Excalibur og fleiri bila á viðráðanlegu verði. Ekki var þar um að ræða upprunalegar gerðir, heldur eftirlikingar, sem kaup- andinn fær i pörtum og getur siðan dundað sér við að setja saman i bíl- enginn áhugi sýndur, athyglin beindist skúrnum sinum. En slikum bilum var óskipt að ,,alvöru”bifreiðunum. í fljótu bragði gat svo litið út að þessi Mercedes Benz Gazelle værí langglæsi- legasta bifreið sýningarínnar. En ekki er allt sem sýnist. Gazellan var nefnilega úr plasti og einn af þeim bílum sem kaupandinn setur saman sjálfur. ÁSGEIR TÓMASSONI Rolls Royce vekur alltaf athygli þó að hann sé umkringdur amerískum glæsi- vögnum. Þessi var af árgerð 1933 og var til sölu á um það bil átta milljónir króna. Excalibur er með ailra fínustu bílum sem framleiddir eru og að sjálfsögðu einnig þeim dýrari. Hann er handsmíðaður í Bandaríkjunum en ekki í Þýzkalandi, eins og útbreiddur misskilningur er. Sagan segir nefnilega að Hitler heitinn hafi fyrstur látið smíða handa sér Excalibur en það er hér með borið til baka. r c i l I m 1 Það vakti athygli hversu Auburn- bilarnir voru seld- ir á háu verði. Þeir voru mun dýrari en gömlu Rolls Royce bil- arnir enda munu þeir vera langtum vandaðri. Áreið- anlegar heimildir herma að þeir séu fullkomnustu bíl- arnir sem Banda- ríkjamenn hafa framleitt, bæði fyrr og síðar. — Framleiðslu Au- burn var hætt árið 1937 en nú er hægt að fá þá á nýjan leik — úr fíber. Misheppnaðasti bíll fyrr og siðar, Ford Edsel. Þrátt fyrir gífurlegan kostnað, sem Ford-verksmiðjurnar lögðu í hönnun Edselsins, féll hann ekki i kramið hjá Bandarikjamönnum. Aðeins voru framleidd af honum um sjö þúsund eintök, sem nú eru verðmæiir safngripir. Taiið er að þrír Edsel hafi verið fluttir hingað til lands. Vonandi eru þeir einhvers staðar í heilu lagi ennþá.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.