Dagblaðið - 27.02.1979, Side 5

Dagblaðið - 27.02.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1979. 5 Péturseyjarbændur gæddu sér á kókoshnetumjólk frá Vestur-Indíum í gær. Eyjólfur Sigurjónsson, bóndi í Eystri Pétursey, fann kókoshnetu í gær, þegar hann gekk Péturseyjar- fjöru. Hann var þó að huga að allt öðrum reka, eins og netahringjum og fleiru, sem slitnar af veiðarfærum og rekur þarnaáland. Mikill sjávargróður var á hnetunni, sem er á stærð við karlmannshnefa vel stóran. Það bendir til þess, að hnetan- hafi verið lengi í sjó. „Fer Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn að stjórna íslandi?” — spyr Elías Davíðsson kerf isf ræðingur f nýútkomnum bæklingr ísland virðist vera að tæma þá lána- möguleika hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum, sem leggja tiltölulega vægar kvaðir á landsmenn. Með áframhald- andi greiðsluhalla, sem verið hefur 8 ár i röð, er hætt við að ísland neyðist til að undirgangast áætlun, sem þýddi, að sjóðurinn færi að stjórna landinu. Þetta segir Elías Davíðsson kerfis- fræðingur i nýútkomnum bæklingi sínum. Markmið Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins eru að sögn Elíasar að tryggja handhöfum alþjóðlegs fjármagns alheimsmarkað fyrir vörur og fjárfest- ingartækifæri. Völd hans hér mundu því -auðvelda innreið fjölþjóða- auðhringa, kalla fram kjaraskerðingu og ganga ef til vill endanlega frá sjálf- ræði þjóðarinnar. Hcilaarskuldir Islands hjá sjóðnum eru nú um 20 milljarðar króna, segir hann. Elías segir, að sjóðurinn reyni að veiða þjóðir i „skuldagildru”, meðal annars með stefnu að vaxtahækkun gengisfellingu og afnáms gjaldeyris- hamla. Þessi stefna stuðli að víxlhækkunum verðlags og kaupgjalds nema starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga Þegar búið var að hreinsa gróðurinn af hnetunni, var hún svarbrún á litinn. Til þess að ná mjólkinni í hnetunni, voru boruð tvö göt i annan enda hennar. ,,Ég drakk innihaldið og varð gott af,” sagði Björn Felixson, bifreiðar- stjóri í Vik í Mýrdal, þegar hann kom með hnetuna á ritstjórn DB í gær. „Innihaldið var eins og þunn mjólk en miklu sætari og með einhvers konar jurtabragði,” sagði Björn. „Ýmsar heimildir munu fyrir því, að hingað til lands hafi rekið sitt hvað sunnan frá Vestur-Indium eða Karabíska hafinu og Mexikóflóa,” sagði Jón Ólafsson, haffræðingur hjá Rannsóknarstofnuninni. „Einhver dæmi munu um að kókoshnetur hafi borizt hingað með Golfstraumnum, sem þarna á upptök. En einkum eru það þó ýmsar suðrænar viðar- tegundir,” sagði Jón. Jón sagði, að erfitt væri að geta sér til um það, hversu lengi þessi reki hefði verið á leiðinni til fslands, en timiiii skiptir árum,” sapði lou Olulsson. -BS. Hún var bragðgóð, mjólkin úr kókoshnetunni, sem Ragnheiður Kristjánsdóltir heldur hér á. DB-mynd: Bjarnleifur. hafi verið lömuð. Reynsla ýmissa þjóða sýni, að framkvæmd þessarar stefnu leiði til þess, að þær sökkvi æ dýpra í skuldagildru sjóðsins. Þannig sé komið hér. Elias telur upp nokkur fyrirtæki hér, sem hann segir, að muni græða á innreið þessarar stefnu, Flugleiðir, IBM, ÍSAL, Járnblendifélagið, Sölumiðstöðin og Sambandið. Þá muni forráðamenn Verzlunarráðs einnig fagna. Elias selur bækling sinn i búðum á 500krónur. -HH. Það er hjá Bílasölunni Skeifunni sem bíllinn selst. Jeep C.J. 5 árg. ’77, ekinn 18 þús. km. Rauður/hvitur. Verð 4.8 millj. Skipti á ódýrari. Saab 99 GL árg. ’76, ekinn 46 þús. km. Rauður, verð 4 millj. Chevrolet Concords árg. ’77, ekinn 24 þús. km., brúnn m/viniltopp, verð 5.3 millj. Landakirkjumálið: Fyrrum skattstjóri í 15 mán. fangelsi Einar Haukur Eiríksson, fyrrum kirkjunnar, eins og rakið var í DB á skattstjóri í Vestmannaeyjum og gjald- sínum tíma. Tjón Landakirkju varð keri Landakirkjusafnaðar, var fyrir rúmar tólf milljónir þegar allt var til helgina dæmdur í fimmtán mánaða talið, en þegar ákæra var gefin út á fangelsi fyrir fjárdrátt, skjalafals og fyrra ári hafði Einar endurgreitt um brot í opinberu starfi. 9.4 milljónir af þvi. Fyrir dómi var sannað, að Einar Dóminn kvað upp Jón Þorsteins- hefði á árunum 1970—1976 dregið að son, aðalfulltrúi bæjarfógetans í Vest- sér rúmar 6.4 milljónir úr sjóðum mannaeyjum. -OV. Toyota Cressida 1978, ekinn 30 þús. G.M.C. sendibill árg. 1975, ekinn 76 Toyota Corolla 1977. Litur grænn. Brúnsanseraður, gullfallegur bill, verð þús. Verð 3.5 millj., skipti möguleg. Verö 3.1 millj. 4,9 millj. Datsun ’78 — Daíhatsu ’78 — Mazda 929 ’77 Station — Mazda ’77 ásamt tugum annarra bíla í sölusal. Péturseyjarbændur: Gæða sér á kókos- hnetumjólk f rá Vestur-índfum — sem rekið hefur með Golfstraumnum Reyðarfjörður: Tveir bátar komu með slasaða skipverja Tveir netabátar frá Reyðarfirði komu til hafnar aðfaranótt mánudagsins með slasaða skipverja. Snæfugl kom um fjögurleytið með tvo unga sjómenn, sem meiddust þegar hnútur kom á bátinn á miðunum við Hrollaugseyjar. Annar meiddist á fæti, hinn illa í andliti. Gert var að meiðslum þeirra og fengu þeir síðan að fara heim. Um tveimur tímum síðar kom Gunnar með háseta, sem hafði dottið á þilfarinu og hlotið meiðsl af. Hann reyndist ekki brotinn og er nú að ná sér heima. -VÓ, Reyðarfirði. SÍMAR: 84848 35035. SKEIFAN 11

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.