Dagblaðið - 12.03.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
2
Raddir
lesenda
snora
LITSJONVARPSTÆKI
Á VERÐISEM Á SÉR EKKIHLIÐSTÆDU
22" Kr- 388000 1 Engir | 26" Kr- 421500
Staðgr. kr. 372.000 miUiiiðir Staðgr. kr. 405.000
silora
1. In Line High Bright Black Strip
R.C.A. myndlampi.
2. Kalt kerfi.
3. Aðeins 8 einingar.
4. Spennuskynjari.
5. Touch Control — snertirása skiptari.
6. Stór hátalari music center og hljóðút-
gangur með 2 tónstillum.
7. Ekta viðarkassi með ekta viðarspæni
í palesander — hnotu — eða — tekki
sem tryggir frábær tóngæði ogfallegt
útlit.
Tækin koma í gámum beint
frá framieiðanda
SJÓNVARPSVIRKINN
ARNARBAKKA2
SÍMAR
71640 og 71745
Bakka-
bræður
þegja
Torgsvinur skrifar:
Þann 15. júní sl. birtist grein eftir
mig í Dagblaðinu þar sem ég gagn-
rýndi harðlega hina nýju smjörhús-
byggingu á Lækjartorgi. Ég gat þess
til að afturgengnir Bakkabræður
hefðu komið hér við sögu um staðar-
val. Vitsmunir þeirra endurspeglast
glöggt i þeim sauðheimskulegu
vinnubrögðum að byggja stórhýsi
þvert fyrir mestu umferðaræð
miðborgarinnar — Hafnarstræti og
Hverfisgötu —. Þó svigrúm sé til að
beygja þarna af beinni braut fyrir
húshorn verður staðarval þessarar
byggingar smánarblettur á skipulagi
miðborgar svo lengi sem það stendur.
Síðan áðurnefnd grein birtist hafa
Bakkabræður steinþagað, sem
skiljanlegt er, því ekki munu þeir
hafa aðgang að fjölmiðlum. Það er
einnig skiljanlegt að húsbyggjendur
hafi líka þagað eins og steinar. Þeir
munu nú loks skammast sín fyrir þau
spjöll sem þeir valda með þessari
umferðartálmun sinni, og vilja þegja
málið i hel.
Þegar litið er niðureftir Hverfis-
götu frá Ingólfsstræti blasir við að
þetta hús stendur þvert yfir stefnu
hennar og skildu menn veita því
athygli.
Þó Bakkabræður-Gísli, Eiríkur og
Helgi-mættu mæla mundu þeir enga
afsökun geta fært fram sem réttlætti
þau spjöll sem þetta nýja hús leiðir í
Ijós. Þverstíflu yfir Hafnarstræti og
Hverfisgötu verður aldrei mögulegt
að réttlæta. Ég legg til að þetta bús
verði framvegis kallað Bakkabræðra-
musterið.
Eignakönnun og sparifé
almennings
Aldraður maður skrifar:
Farið er að ræða um eignakönnun
á Alþingi. Ungu mennirnir sem þar
sitja nú virðast ekki vita hve mikið
glappaskot og skelfilegar afleiðingar
sú ákvörðun var á sinni tíð þegar hin
illræmda eignakönnun var boðuð
árið 1947. Þá munu nokkrir af
þessum ungu alþingismönnum hafa
verið drenghnokkar á aldrinum 5—
lOára.
Má segja að þá hafi þeim ráð-
deildarsömu sem lögðu sparifé sitt í
banka verið hegnt en eyðsluklærnar
þurftu engu að kvíða. Ég hefi álitið,
að fyrri tíma gráleikur hefði orðið
víti til varnaðar. Enn eru á Alþingi
aldraðir menn sem muna þá tíð þegar
almenningur streymdi i bankana, tók
út sparifé sitt og fór síðan beint í
verzlanir. Þá var sannarlega
blómatími hjá þeim sem áttu
verzlunarfyrirtæki. Ef þeir gömlu á
þingi minnast þessara tíma í þjóð-
lífinu og ætla að styðja umtalaða
könnun nú hljóta þeir að vera orðnir
í meira lagi kalkaðir.
Almenningur áleit að bönkunum
væri treystandi til þess að varðveita
sparifé, en flestir eru þannig gerðir að
þeir vilja eiga peningaeign sína í friði
án hnýsni. Traustið á bönkunum
brast þegar eignakönnunin átti sér
stað og segja mætti mér að enn væri
ekki gróið þar um heilt. En allir
hugsandi menn vita það t.d. að
undirstaða atvinnuveganna er sparifé
landsmanna. Þeim ber því sannar-
lega að vernda það sem geymt er án
'þess að um það sé njósnað.
Margur er sá maðurinn sem finnst
hann hafa fast undir fótum ef hann á
smávegis upphæð í sparisjóðsbók,
jafnvel á verðbólgutímum. Þá er
m.a. hugsað til elliáranna. Og ég hefi
verið alinn upp við það að fara vel
með sem kallað var. Gert mér það að
reglu alla tíð ef ég hefi átt afgang
af mánaðarpeningum mínum að
leggja þá í sparisjóðsbók mína.
Og nú rifja ég upp æðið sem greip
um sig meðal almennings í eigna-
könnuninni árið 1947 og ég varð
reynslunni ríkari. Ef þessi gráleikur
yfirvalda verður að veruleika á ný
mun ég taka til minna ráða. Það er
hægt að ávaxta sparifé á fleiri
stöðum en í bönkum.
Það var fjölmennt á aðalfundi NLFR.
Nafn ritstjóra
Dagblaðsins notað
f leyf isleysi
Náttúrulækningafélag
Reykjavíkur,
c/o framkvæmdastjórinn,
Laugavegi 20 b,
Reykjavík.
Á aðalfundi NLFR tók ég eftir því,
að i algeru leyftsleyft var nafn, sem
gat verið mitt, á miðum, er dreift var
í anddyrinu. í framhaldi af fundinum
var mér sagt, að nafn mitt yrði sett á
prentaðan kjörseðil í fulitrúaráðs-
kosningum á framhaldsaðalfundi.
Bað ég Egil Ferdinandsson, sem
flutti mér þessa fregn, koma þeim
skilaboðum til stjórnarformanns
NLFR, að ég yrði ekki í neinum
kringumstæðum í slíku framboði.
Þrem dögum síðar hringdi Marinó
Stefánsson, stjórnarformaður
NLFR, til mín og sagði, að skilaboð
þessi hefðu borizt of seint. Kvaðst ég
þá mundu mótmæla þessari endur-
tekinni misnotkun á nafni mínu að
mér forspurðum.
Geri ég það hér með þessu bréfi.
Jónas Kristjánsson
Afrit af bréfi þessu eru send Dag-
blaðinu og Vísi vegna villandi um-
mæla í lesendabréfum um aðild mína
að flokkadráttum í NLFR. Vísa ég til
leiðara í Dagblaðinu 7. marz, þar sem
kemur fram, að ég hef ekki dálæti á
neinum fylkingum í þessu félagi.
JK.
Heimilis-
iæknir
Raddir lesenda taka við'
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.