Dagblaðið - 12.03.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
3
Ólafur Þorláksson skrifar:
Steindór Guðmundsson Stokkseyri
sendir undirrituðum smákveðju i
Dagblaðinu þ. 30. jan. sem svar við
greinarkorni, sem kom eftir mig í
sama blaði 8. des. siðastliðinn, um
brú yl'ir Ölfusárós.
Þar sem ekki hafa komið fram nein
haldbær rök fyrir því að brúarhug-
mynd þessi eigi að hafa forgang fyrir
öðrum þarfari (að ég tel) vegafrant-
kvæmdum, bjóst ég við að eitthvað
nýtt kæmi fram þar að lútandi, sem
rökræða mætti i grein Steindórs.
Hn það var siður en svo. Þess í
stað virðist Steindór hafa lesið grein
mína 8.12. allhressilega ,,á ntilli lin-
anna”. í svargrein sinni gerir
Sleindór lítið til að rökræða málið,
en gerir mér þess í stað upp orð og
hugsanir eða misskilur orð min á
hinn herfilegasta máta, svo að ntanni
gæti helst dottið i hug að höfundur
greinar Steindórs væri taugaveikluð
eða móðgunargjörn kona.
Hg hefi haft samúð með Eyrbekk-
ingum og Stokkseyringum vegna
slæmra vega að Selfossi og talið að
bættar samgöngur þangað ættu t.d.
að hafa forgang fyrir brúargerðinni.
En nú upplýsir Steindór að þeir séu
að fá veg þangað með varanlegu slit-
lagi innan tiðar,svo nú er það ntál úr
sögunni.
Ein aðalröksemdin fyrir brúargerð
þarna yfir ósinn hefur verið að
þorpin við sjóinn væru ein atvinnuleg
heild eins og þeir kalla það brúar-
sinnar. í mörgum blaðaviðtölum og
blaðagreinum hafa þeir brúarsinnar
sagt berum orðum að brú þarna
þýddi líf eða dauða fyrir þessi þorp.
Flestir munu hafa skilið þessi
ummæli á þann veg (og þannig skildi
undirritaður þau) að atvinnuhorfur
væru þarna svo slæmar að helst væri
fyrir þorpsbúa að leita eftir atvinnu í
Þorlákshöfn. En nú ber Steindór
þetta alll til baka og segir alvinnu-
ástand þarna i besta lagi og er það
sannarlcga gott. Þess vegna hefi ég
verið að hvetja íbúa þessara þorpa til
að treysta fremur á sjálfa sig í
atvinnumálum en aðra, svo nú eru
þessi rök fyrir brúargerð úr sögunni.
Um sparnað i fiskflutningum er
það að segja, að ansi er ég hræddur
um að 15—20 milljóna sparnaður
verði litill hluti af vaxtakostnaði
brúargerðarinnar.
Steindór telur Ölfusárbrú ntuni
verða öryggisleið þegar stóri jarð-
skjálftinn kemur. Þetta mun vera það
jákvæðasta sem komið hefur fram í
þessu máli. En spurningin er aðeins
hvar veikasti hlekkurinn er i þeim
málum. Eru ekki öll okkar dýrustu
mannvirki einmitt staðsett á versta
cldgosa- og jarðskjálftasvæði
landsins, svo sem raforkuverin og
raflinurnar o.fl. o.fl.? Ég held að
minnsta kosti að hvorugur okkar geti
svarað þeirri spurningu.
Brúarsinnar vilja hefja fram-
kvæmdir við brúna sem allra fyrsl og
Steindór segist treysta verkfræðing-
um vegagerðar til að leysa allan
vanda við byggingu hennar. Þvi
miður hafa verkfræðingum orðið á
mörg og dýr mistök og oft vegna
ónógs undirbúnings og þekkingar-
skorts á verkefninu. Þess vegna hefði
ég talið rétt að biða enn um stund og
kynnast betur hegðun árinnar og
sinna á meðan meira aðkallandi verk-
efnum í vegagerð, t.d. koma mörgum
niðurgröfnum vegum upp úr snjó
leggja varanlegt slitlag á fjölfarna
vegi o.s.frv. og sjá hvernig Borgar-
fjarðarbrúin stendur sig.
Steindór telur mig hafa haldið þvi
fram i grein minni frá 8. 12. að
Eyrbekkingar og Stokkseyringar eigi
að standa undir kostnaði við brúar-
gerðina.
Þetta veistu nú vel að er hreinn
útúrsnúningur, Steindór minn. Eins
og þú getur séð, ef þú átt grein mina
frá 8.12., er þessi tala, sem ég nefndi
um hinn hrikalega vaxtakostnað af
brúargerðinni, að atvinnutekjur fólks
þarna i þorpunum myndu vart nægja
fyrir vöxtunum af verkinu, aðeins
suðrænar þjóðir. Og, ef ég man rétt,
litu Eyrbekkingar og Stokkseyringar
hvorir aðra nteð stakri fyrirlitningu
hér fyrr meir.
Steindór býður fram hjálp sina og
annarra þorpsbúa til að nýta hlunn-
indi jarðarinnar sem ég bý á. Það vill
nú svo til að bæði Stokkseyringar og
Eyrbekkingar hafa á siðastliðnum
árum hjálpað landeigendum hér til að
nýta hlunnindi þessara jarða.
Ákjósanlegri samvinnu get ég vart
hugsað mér en samvinnu þessara
ntanna (enda hafa þeir malað land-
eigendum mikið fé á þessum áruni).
Og ef þú, Steindór, getur senl okkur
marga slika er það að sjálfsögðu
þegið með þökkum.
Steindór lýkur grein sinni nteð
pinulitilli illgirni, eigingjörn sjónar-
mið standi að baki þvi, að ég er á
möti brúargerð þarna að svo stöddu.
Þama er enn einn misskilningurinn
hjá honum. Hafi hann áhyggjur af
tckjurýrnun hjá bændum vestan ár i
sambandi við brúargerð, ætti hann
bara að kynna sér 67. gr. stjórnar-
skrárinnar.
Aldrei hefir mér komið i hug að
brúin stöðvaði sandburð fram úr
ánni eða laxagöngu upp i hana. Þá er
ég nú hræddur um að færi að hcyrast
hátt i öðrum en mér.
En hvern fjandann meinar þá
maðurinn með að vera á móti brúnni,
ef liann tapar ekki á byggingu hennar
heldur kannski græðir á öllu saman,
niuntu þá náttúrlega spyrja.
Ég vil svara í hreinskilni. Eg er
vcnjulegur skattþegn og opinberir
aðilar taka 70—80% af tekjum
minum i alls konar tollum og
sköttum eins og af öðrum lands-
mönnum. Þetta fé vil ég einfaldlega
láta renna þangað sem það kcmur
þjóðfélaginu að mestum notuni, t.d. i
betra vegakerfi. En ekki að það sé
jafnvel notað sem agn, af pólitiskum
sprellikörlum til atkvæðaveiða.
Að lokum; ég þakka þér tilskrifið,
Steindór. Og ef þú skyldir sjá þcssar
linur, skaltu nú ekki lesa þær cins og
fjandinn les faðirvorið. Þú skalt lcsa
linurnar sjálfar en ekki á ntilli þcirra.
HOOVER MEÐ 1000 W MOTOR,
ELEKTRÓNÍSK SOGSTILLING!
íhvert sinti sem þú notar “HOOVER CONGO" verðurþér Ijósar,
hve valþitt á ryhsugu var rétt. Hún er falleg og hefuralla þákosti
sem ryksugu má prýða. Sjálfvirkt snúruinndrag. Gefur merki
þegar skipta þarf um poka. Stór hjól og m. m.fl. Auk þess býr
“CONGO“ yfir nokkrum sérstökum kostum sem ekki finnast
samankomnir hjá neinni annarri ryksugu á sambœrilegu verði.
I fyrsta lagi er sogstyrknum stjórnað elektrónískt, svo hcefir hvort
sem er þykkasta teppi eða viðkvœmasta lampaskermi. í öðru lagi
er “CONGO“ búin sérstakri “HOOVER-pokalosunþú þarft
aldrei að snerta fullan pokann við tœmingu, hreinlegt ogþœgilegt.
íþriðja lagifylgir “HOOVER-tœkjáberinn“, hann er settur ofan
á ryksuguna svo öll hjálpartceki séu við hendina meðan unnið er.
Hann má svo hengja upp í skáp.
HOOVER er heimilishjálp
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Með „HOOVER CONGO“
getur þú samtímis unttið
erfiðustu verkin jafnt og þau
viðkvcemustu, eins og t.d. að
hreinsa viðkvceman lampa-
skerm. Þú ákveður sogstyrk-
inn með þvt að stilla hnapp-
inn sem stýrir mótornum
elektrónískt.
H
SENDUM
BÆKLINGA
viðmiðun til að sýna fram á hve
verkið er óarðbært cins og sakir
standa.
Af söniu rótunt held ég það sé hjá
þér, Steindór.að þú klifar á því að ég
kalli Eyrbekkinga og Stokkseyringa
tartara og betlilýð. Ég hygg að þú
teljir grein þina verða eitthvað áhrifa-
meiri með svona blekkingum. En til
þcss arna gripa menn oft þegar þeir
l'ara að verja vondan málslað og
skortir rök. Orðrétt sagði ég í grein
niinni frá 8. des.: „Væru þcir þá likl
settir og Arabar, Tyrkir og Tartarar i
iðnaðarlöndum Evrópu þar sem þeir
leita að vinnu o.s.frv.” Þið brúar-
sinnar voruð nefnilega búnir að
skrökva að þjóðinni (eins og kemur
fram i grein þinni), að atvinnuhorfur
væru mjög slæmar hjá ykkur. Af þvi
var dregin sú ályktun, að áhugi ykkar
fyrir brúargerð væri sprottinn af þörf
til að sækja vinnu í Þorlákshöfn. En
eins og þú vcist er aðkomufólk viða
litið hornáuga, konti það i vinnu.
T.d. er sagt að Sviar liti mjög niður á
íslendinga, Þjóðverjar líta niður á
Hefurðu trú á
skoðanakönnunum
Dagblaðsins?
Ásgeir Bragason, nemi i Háskóla ís-
lands: Mér fannst tölurnar í siðustu
skoðanakönnun ótrúlegar en ég rengi
samt ekki niðurstöðurnar. Ég Itcld þó
að traustari niðurstöður fáist með
þjóðskrárúrtaki.
Trausti Valdimarsson, nemi i Háskóla
íslands: Samkvæmt fyrri reynslu ætti
eillhvað að vera að marka þetta. Þó var
"" ó-' n'i'-Anr m»A r>iAi<rstÖðÚmar I
siðustu sKoðanakon.tim.
Þórir V. Þorsson, nemi í Háskóla ís-
lands: Það er að marka þetta þó að úr-
takið sé of lítið. Mér fannst Sjálf-
stæðisflokkurinn fá allt of mikið. Ég
var mjög hissa á þvi vegna þess að hann
hefur ekki sýnt neina stjórnarand-
stöðu.
Þorkell Sigurðsson, nemi í Háskóla
Íslands: Ég hef enga trú á þessunt
skoðanakönnununt Dagblaðsins. Þær
bitna helzt á húsmæðrum.
Þór Erlingsson offselprenlari: Já, ég
hef það að vissu marki. Skoðanakann-
anirnar gefa hugmynd en ég skal ekki
segja hvort þær eru alveg marktækar.
Halla Sigurðardóttir, vinnur hjá
lampagerð: Já.éghefþað.