Dagblaðið - 12.03.1979, Síða 5

Dagblaðið - 12.03.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 12. MARZ 1979. Alvarleg líkamsárás Alvarleg likamsárás var framin í húsi við Miklubraui á fösludags- kvöld. Ungur maður 22 ára að aldri, veitti miðaldra manni mikla áverka á hálsi og í andliti en maðurinn er þó úr allri lífshættu nú og líður eftir at- vikum sæmilega. Málsatvik voru þau að sögn Erlu Jónsdóttur deildarstjóra hjá Rann- sóknarlögreglu rikisins, að ungi maðurinn kom í húsið um kvöldið, en þar á hann eitt herbergi, sem hann leigir eldri manninum. Ungi maður- inn krafðist peninga af leigjandan- um, en misklið varð og átök. Aðrir ibúar hússins tilkynntu lög- reglu um hávaða kl. 21.37 og þegar lögreglan kom á staðinn lá eldri mað- urinn í blóði sínu á gólfinu, en hinn sat hjá alblóðugur. Hafði ungi maðurinn veitt leigjandanum alvar- lega áverka á hálsi og i andliti. Greinileg merki voru um átökin og húsgögn á víð og dreif. — herbergiseigandi réðst á leigjanda sinn Herbergiseigandinn mun áður hafa stolið 240 þúsundum króna frá leigj- andanum. Ungi maðurinn var úrskurðaður i gæzluvarðhald til 28. rnarz nk. cn yfirheyrslur yfir honum stóðu nú yfir helgina. -JH. Véladeild Sambandsins Ármúla3 Reykjavik Simi 38900 DB-mynd Sveinn Þormóðsson. Kastaðist á staur — eftir árekstur við annan bfl Á áttunda tímanum á laugardags- morgun varð árekstur tveggja bíla á Hringbraut við mót Laufásvegar. l.and Rover og Volkswagen Golf voru báðir á leið vestur Hringbraut cn rákust saman og minni billinn kastaðist á Ijósastaur.. Ökumaður Volkswagen bilsins slasaðist og var fluttur á slysadeild. Minni billinn er mikið skemmdur og staurinn brotnaði. -JH Rúðubrot og opin hurð Tvö rúðubrot í verzlunum voru til- kynnt lögreglunni i Reykjavik um helg- ina. Aðfaranótt laugardags var rúða brotin i verzluninni Rimu i Austur- stræti og stuttu siðar var tilkynnt um rúðubrot í hljómplötuverzluninni Stereo í Hafnarstræti 5. Á hvorugum staðnum var farið inn. Þá urðu lögreglumenn á göngu þessa sömu nótt varir við það að hurð að Miðbæjarmarkaðnum í Aðalstræti var opin. Enginn hafði þó freistazt til að fara inn, heldur hafði gleymzt að loka. -JH. Tveimur bifreiðum í < Til afgreiðslu strax stolið Bifreið af gerðinni Ford Comet var stolið frá bifreiðastæði við Sundhöllina á Barónstig, aðfaranótt sunnudags. Bifreiðin fannst skömmu síðar á Flóka- Þyrstir þjófar Brotizt var inn i geymslu að Suður- hólum 4 i Breiðholti aðfaranótt laugar- dags. Ekki var öðru stolið en kókkassa úr geymslunni og skemmdir voru engar nema á dyraumbúnaði. -JH. götu og hafði þjófurinn ekki komizt lengra. Bifreiðin var óskemmd. Þá var einnig stolið bifreið af gerð- inni Ford Cortina frá Kirkjutorgi sömu nótt. Sú bifreið hefur ekki fundizt. Cortinan er drapplituð af árgerð 1969. Að sögn lögreglu er mjög titt að bif- reiðum af þessari gerð sé stolið, þar sem mjög auðvelt er að opna þær með flestum gerðum lykla. Það er því vissara fyrir Cortinueig- endur að vera vel á verði. -JH. . Loðmiskófla I.H. 500 UÓSWSÞOBGElIiSSON -EFFKT.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.