Dagblaðið - 12.03.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
7
N
Islandsmeistaramót unglinga fdiskódansi 1979:
DISKOSTUÐ
í KLÚBBNUM
— Smjörgreiddir Travoltar í leður-
jökkum og Olivíur með tagl
Glymjandi diskótónlist, Oliviur og
Travoltar, svartir leðurjakkar og
brilljantín, stuttir sokkar og tögl.
Það var ekki um neitt að villast, við
erum á réttum stað.
Staðurinn er veitingahúsið Klúbb-
urinn, en þar gengust Klúbburinn og
ferðaskrifstofan Útsýn fyrir keppni í
diskódansi unglinga í gær. Kepp-
endur voru fjölmargir, 15 einstakl-
ingar, 4 pör og 25 hópar. Sigurvegari
úr hverjum flokki var svo krýndur ís-
landsmeistari unglinga í diskódansi
1979.
Það má segja að allt húsið hafi
verið undirlagt af dönsurum og
áhugasömum áhorfendum.
Á fyrstu hæð fór fram sjálf keppn-
in og sá Vilhjálmur Ástráðsson plötu-
snúður þar um fjöruga diskótónlist.
Þeir frændur Reynir Ulfarsson og Reynir Jónsson fengu sér smáhlé frá dansinum og spiluðu fótboltaspil. Og áhorfend-
urnir voru nokkrir klístraðir og áhugasamir leðurjakkagæjar. Ljósm. Hörður.
danshópi sem ekki ætlaði að verða of
seinn út á danseólfið
Sigurvegari i einstakling -keppni.
varð Hulda Lárusdóttir, 14 ára stúlka
úr Njarðvík. Sigurvegarar í para-
keppni urðu Sigþór Þórarinsson og
Drífa Óskarsdóttir, bæði 15 ára
Reykvíkingar, og fimm stúlkur frá
Jassballettskóla Báru urðu sigurveg-
arar í hópkeppni. RK.
Áhorfendur virtust vera á öllum
aldri. Allt frá smákrökkum upp í
fullorðna og allir virtust skemmta sér
hið bezta.
Á annarri hæð sá Ásgeir Tómasson
blaðamaður og plötusnúður um tón-
list fyrir yngsta fólkið sem gaf þeim
eldri ekkert eftir.
Á efstu hæðinni var aftur á móti
ekki margt um manninn. Þar voru
seldar veitingar, kók, prins póló o;
kökur. Vitanlega má enginn \ era að
þvi að hugsa um svoleiðis hluti þegar
dansinn dunar á neðri hæðum.
í kjallaranum var mikið að gera.
Þar voru æfingabúðir fyrir keppend-
urna og æfðu þeir dansa sína af
miklu kappi og létu ekkert trufla sig.
Og þegar við yfirgáfum kjallarann
var okkur nærri því rutt um koll af
MAGNINNKAUP BEINT
FRÁ FRAMLEIÐANDA^
LÆGSTA VERÐIÐ.
5
Bráðfalleg stereosamstæða
frá I tfoHuba
I kjallaranum hafði verið komið upp nokkurs konar æfingabúðum og var
mikið að gera. Ekki var laust við smátaugaóstyrk á nokkrum stöðum og mátti
heyra upphrópanir eins og ,,guð, við erum næstar” og ,,þetta er allt i lagi.
stelpur, við fríkum bara”. Ljósm. Hörður.
á super verði
HVERNIG ER ÞETTA HÆGT... ?
I svörtum sokkabuxum með hvíta satínsvuntu og hvíta slaufu æfði þessi unga
stúlka dansinn sinn fyrir keppnina. Og það þarf einbeitni til þess að dansa dans
þar sem líkt er eftir brúðu sem hefur snöggar hreyfingar. Annars er stúlkan
sjálfsagt kattliðug eins og hinir keppendurnir. Ljósm. Hörður.
„Aftar, aftar, aftar. Þið verðið að færa ykkur aftar svo að keppendurnir
komist fyrir. Og svo fara þeir sem búnir eru að keppa upp á aðra hæð og dansa
þar svo það er um að gera að fara þangað og næla sér í gott sæti,” sagði
Vilhjálmur Ástráðsson plötusnúður. Og það var eins og við manninn mælt.
Hópur unglinga ruddist upp á aðra hæð. Samt var eins og hópurinn þynntist
ekkert. Ljósm. Hörður.
Þetta tæki býður upp á allt:
Stereo-útvarp, kassettusegulband, plötuspilara og 2 stóra hátalara.
Magnarinn er 28 vött 2 hátalarar eru í hvorum kassa. Stór renndur 28
sm plötudiskur tryggir réttan snúning. Otvarpstækið er með miðbylgju,
langbylgju og FM stereo. Gjörið svo vel að skoða þetta bráðfallega tæki
og sannfærizt um að Toshiba SM 2700 stereosamstæðan er ekki aðeins
afburða stflhrein I útliti heldur lika hljómgóð.
SM 2700 gefur yður mest fyrir peningana.
1 Jú, Toshiba er stærsti framleiðandi rafeindatækja I heimi. Þeir framleiða
allt I tækin sin sjálfir. Þvi eru þeir algerlega óháðir öðrum um af-
greiðslu og verð á hlutum til tækjanna. 180.000 starfsmenn Toshiba og
j 30.000 visindamenn tryggja það nýjasta og bezta á hverjum tima.
I Við flytjum heim stórar sendingar af Toshiba tækjum beint frá Japan i
upphituðum járnbrautarvögnum gegnum Siberiu eða með flutninga-
skipum á vegum Toshiba. Á þann hátt er tryggð bezta meðferð tækj-
anna. Þau verða ekki fyrir óeðlilegum kulda og hitamismun sem getur
haft skaðvænleg áhrif á viðkvæma hluti tækjanna.
i
EF
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.I«*
f Nafn
1 4 Heimilisfang
^ Póstnúmer .. /
v**444444444444444444'
BERGSTAÐASTRÆTI 10 A
Sími 16995.
/*12*t!StííWN\ ,
sareSð már mynda
” vsráista. q ^
....................4
}
Útsölustaðir: • Akranes: Bjarg h.f. Borgarnes: Kaupf. Borgf. Bolungarvik: Verzl. E.G. Isafjörður: Straumur s.f. Hvammstangi: Verzl. S.P. Blönduós: Kaupf. Húnvetninga. Sauðárkrókur: Kaupf. Skagf. Akureyri: Vöruhús Kea Hljómver h.f. | Húsavik: Kaupf. Þingeyinga Egilsstaðin Kaupf. Héraösbúa. Ólafsfjörðun Verzlunin Valberg Siglufjörður: Gestur Fanndal. Hornafjörður: K.A.S.K. Hvolsvöllur: Kaupf. Rangæinga. Vestmannaeyjar Kjarni h.f. Keflavik Duus. Neskaupstaður: Rafsilfur s.f.