Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1979, Qupperneq 17

Dagblaðið - 12.03.1979, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979. 17 ; síðan með bolvindu kom hann þrumu- knötturinn — Einar er kominn heim. DB-mynd Hörður. Sýning Víkinga —Víkingur vann yf irburðasigur á Fram í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í Höllinni—32-20 — Einar Magnússon lék sinn fyrsta leik með Víking Víkingar héldu sýningu í Laugar- daishöll í gærkvöld i 1. deild Islands- mótsins. Þeir gjörsigruðu Fram 32—20 og sýndu allar sínar beztu hliðar. Víkingar höfðu mikla yfirburði, sterkir í vörn, markvarzlan góð og í sókninni var hvert markið öðru fallegra. Gegnumbrot og þrumuskot Viggós Sigurðssonar, inn úr hornunum fóru þeir Óiafur Jónsson og Erlendur Her- mannsson og skoruðu falleg mörk. Árni Indriðason af línunni, Páll Björg- vinsson með gegnumbrotum sínum, Steinar Birgisson með góðum skotum sínum og stórskyttan Einar Magnússon er lék sinn fyrsta leik heima eftir langa dvöl í V-Þýzkalandi. Hann rétt sýndi við hverju má búast er hann í lok leiksins lyfti sér upp og skaut þrumuskoti neðst í markhornið — Einar var kominn aftur. Við þessu átti Fram ekkert svar — Víkingur lék stór- kostlegan handknattleik í Höllinni i gærkvöld — yfirburðirnir voru algerir og aðeins Gústaf Björnsson virtist hafa getu á við Víkinga. Bilið milli forustuliðanna í 1. deild — Vals og Víkings, og annarra liða eykst því enn. Valur trónir nú efst með 19 stig, Víkingur 17 stig — stefnir í mikið uppgjör þessara risa. En snúum okkur að leiknum í gærkvöld. Einar Magnússon lék sinn fyrsta leik með Víking eftir að hafa horfið á braut frá meistaraliði Víkings 1975. Raunasaga Víkings — síðastliðið vor missti Víkingur tvo landsliðsmenn, þá Björgvin Björgvinsson og Þorberg Aðalsteinsson. í vor missa Víkingar Viggó Sigurðsson en það koma fram nýir og efnilegir leikmenn hjá Víking. Þeir Sigurður Gunnarsson, Erlendur Hermannsson og Ólafur Jónsson hafa allir blómstrað í vetur. Það var mikil harka í upphafi viðureignar Víkings og Fram — rétt eins og i fyrri leik liðanna í vetur. En ni og Steinunni inu á ísafirði ur leik bæði í svigi og stórsvigi Björn Olgeirsson — tvöfaldur sigur á Isa.'irði DB-mynd Þorri. það var aðeins á meðan Fram hélt nokkurn veginn í við Víking, sem komst í 3—1 en Fram jafnaði 3—3. Síðan náði Víkingur aftur undirtökunum, komst í 8—4, en með góðri baráttu náði Fram að minnka muninn í eitt mark — 9—8, síðan 10— 9, en þar skildi á milli liðanna. Yfir- burðir Víkinga komu þá berlega í Ijós og Víkingur hafði yfir í leikhléi, 14—9. Og I síðari hálfleik voru yfirburðir Víkinga algerir. — Víkingur náði sjö marka forustu, 17—10. Um miðjan síðari hálfleik kom Einar Magnússon inn á í fyrsta sinn og heldur byrjaði illa fyrir honum. Hann missti knöttinn, einn leikmanna Fram náði honum og brunaði upp. Einar sá sér þann kost vænstan að brjóta á honum og var um- svifalaust rekinn út af — eftir aðeins tæpa mínútu frá þvi að hann gerði „come-back” sitt í íslenzkan hand- knattleik. En Einar var mikill ógnvaldur vörn Fram, skoraði skömmu síðar sitt fyrsta mark, úr víti. Þegar Víkingar fengu knöttinn þá komu leikmenn Fram mjög út á móti Einari og hann átti laglegar línusendingar. En í lokin koni þrumuskotið sem hinir 700 áhorfendur í Höllinni biðu eftir. Einar lyfti sér upp og þrumufleygur hans hafnaði neðst í markhorninu. Gull af marki — Einar er kominn heim. Á 18. mínútu var forusta Víkinga orðin 10 mörk, 23—13 og lokatölur urðu 32—20. Stórsigur Víkings — stærsti sigur Vikings á Fram í 1. deild. Viðureignin undirstrikaði mátt Víkings, því Fram lék alveg þokkalega framan af en Ieikmenn Fram einfald- lega stóðust Víkingum ekki snúning, þegar á leið. Mun betri æfing leikmanna Víkings, beittara spil sagði til sín. Og viðureignin undirstrikaði ennfremur í raun muninn — annars vegar Víkingur er Ieikur nútímahand- knattleik, sterkan varnarleik, fjölbreyttan sóknarleik með fallegum fléttum jafnframt einstaklingsfram- taki, og hins vegar Fram — er lék eins og íslenzk lið hafa leikið síðastliðin 15 ár. 1 dag er það einfaldlega ekki nóg, — ekki gegn þeim beztu. Fram brá á það ráð að taka Viggó Sigurðsson úr umferð en þrátt fyrir það var Viggó markhæstur, með 9 mörk, 2 víti. Víkingar losuðu laglega um Viggó. Ýmist með því að opna fyrir hann eða leikfléttu sem losaði um aðra leikmenn og oftar en einu sinni kom fyrir að Árni Indriðason var einn frír fyrir miðju marki með knöttinn eftir laglega leikfléttu. Upp úr miðjum síðar hálfleik gáfust Framarar upp á því að taka Viggó úr umferð og hann átti ekki í erfiðleikum með að finna leiðina í netið, með föstum skotum sínum. „Lofaðu Einari líka að’ skjóta,” kallaði Bogdan, þjálfari Víkinga inn á. Slikir voru yfirburðirnir en það var sama hvar borið var niður í liði Víkings — alls staðar áttu menn góðan dag. Og sérlega ánægjuleg hlýtur að vera fyrir Víking markvarzla Kristjáns Sigmundssonar, er loks virðist vera að ná sér upp úr þeim öldudal er hann hefpr verið í lengst af í vetur. Varði markið mjög vel. Fram mætti ofjörlum sínum í Höllinni — og aðeins Gústaf Björnsson sýndi skemmtilega takta i liði Fram. En jafnvel í sérgrein hans — að fara innúr horninu og skora lagleg mörk — gekk ekki upp hjá Gústafi, því Kristján Sig- mundsson sá við flestum skotum hans þar. Þá sýndi Theódór Guðfinnsson skemmtilega takta undir lokin, skoraði lagleg mörk með góðum skotum. Aðrir leikmenn komust lítt áleiðis gegn vörn Víkings. Mörk Víkings skoruðu — Viggó 9, 2 viti. Erlenaur 6, Ólafur Jónsson 5, Steinar og Páll 4, Árni lndriðason og Einar Magnússon 2 mörk hvor. Hjá Fram skoraði Gústaf 9 mörk, 5 víti. Theódór Guðfinnsson 4, Atli og Sigur- bergur 2 hvor. Pétur Jóhannsson, Viðar Birgisson og Erlendur Davíðsson I mark hver. Leikinn dæmdu þeir Jón Hermannsson og Gunnlaugur Hjálm- arsson. H. Halls. Heimsmet ílóðkasti — og stúdentametin félluíUSA Yuri Seykh, Sovétríkjunum, setti nýtt hcimsmct í lóðkasti innanhúss í landskeppni Kanada og Sovétríkjanna i frjálsum íþróttum í Montreal á laugar- dag. Kastaði 23.46 metra en eldra heimsmetið var 22.60 m. Það átti Bandaríkjamaðurinn Georgc Frenn, 1969. Sovétrikin höfðu mikla yfirburði í landskcppninni. Suleiman Nyambui, Tanzaniu, sem stundar nám við háskólann í Texas, sigraði í 2ja mílna hlaupi í keppni bandarísku háskólanna í Detroit i gær. Hann hljóp á 8:37.87 mín. og klukku- stund síðar gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í míluhlaupinu á 3:57.89 mín., sem er góður (ími innanhúss. Þar með bætti hann 12 ára gamalt met hlaupar- ans fræga, Jim Ryan, sem var 3:58.6 mín. Tvö önnur NCAA-met voru sett. Renaldo Nchcmiah, háskólanum í Maryland, bætti met sitt í 60 jarda grindahlaupi. Hljóp á 6.90 sek. og Don Paige, Villanova, setti met í 1000 jarda hlaupi. Hljóp á 2:07.27 mín. Curtis Dickey, Texas, sigraði Harway Glance, Auburn, í 60 jarda hlaupi. Hljóp á 6.15 sek. en Glance 6.17 sek. Von Stjörnunnar slokknaði í Eyjum - Þór sigraði Stjömuna 24-18 íEyjum Þýðingarmikill leikur í 2. deild íslandsmótsins var háður í Eyjum i gær. Stjarnan úr Garðahæ sótti Þórara heim og skemmst er frá bví að segja að heimamenn sigruðu örugglega 24— 18. Þór styrkti þar með stöðu sina i 2. deild verulega og er með í baráttunni um sæti i 1. deild að ári. Viðureign Þórara og Stjörnumanna stóð í járnum allan fyrri hálfleik, en Stjörnumenn þó öllu frískari i byrjun. Þórarar, sem ekki höfðu leikið í sex vikur vegna sífelldra frestana, héldu þó vel í við Stjörnuna og náðu að komast yfir fyrir leikhlé, 12—10. Góður kafli Þórs í byrjun hálfleiks gerði út um leikinn, er þeir komust i 17—12. Þann mun náði Stjarnan aldrei að vinna upp og öruggur sigur Þórara var staðreynd. Þórsliðið var áberandi betri aðilinn í þessum leik. Hæst ber snilldar- markvörzlu Sigmars Þrastar hins bráðefnilega markvarðar Þórs en hann varði eins og berserkur allan leikinn. Þór Valtýsson og Hannes voru mjög góðir en Hannes var eins og venjulega tekinn úr umferð. Hörður Hilmarsson var mest áberandi ásamt Magnúsi Teitssyni hjá Stjörnunni. Hannes Leifsson skoraði 6 mörk fyrir Þór, Ragnar Hilmarsson 5, Her- bert og Þór 4 mörk hvor. Eyjólfur Bragason var langmarkhæstur Stjörnumanna, með 9 mörk, 5 víti. Magnús Tcitsson og Hörður Hilmars- son 3 mörk hvor. Góðir dómarar voru þeir Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson. FÓV. Tíundi sigur Fram í 1. deild — kvenna gegn Víkingi. Valur sigraði Breiðablik Fram stefnir nú í meistaratign i 1. deild kvenna. Enn einn sigur Fram í gærkvöld — tíundi sigur Fram í 1. deild og Víkingur varð fórnarlamb Fram, 16—12. Fram komst í upphafi í 3—0 og staðan í leikhléi var 7—5, síðari hálf- leik vann Fram einnig með tveimur mörkum, — öruggur sigur, 16—12. Þá sigraði Valur lið Breiðabliks að Varmá í gærkvöld 16—13 svo baráttan í bolni 1. deildar er eingöngu milli Blikanna, Víkings og Þórs, Akureyri. Staðan í 1. deild er nú: Fram 11 10 0 1 144- -91 20 FH 8 6 1 1 109- -88 13 Haukar 12 6 1 5 125- -131 13 KR 11 6 0 5 124- -117 12 Valur 9 5 1 3 122- -116 11 Breiðablik 10 2 1 7 87- -126 5 Víkingur 10 1 2 7 102- -128 4 Þór 9 1 0 8 91- -124 2 íþróttir HALLUR HALLSSON Staðaní 1. deild Úrslit leikja í 1. deild. ÍR-Fylkir HK-Valur Fram-Víkingur Staðan í 1. deild ernú: Valur 10 9 1 0 179- -147 19 Víkingur 10 8 1 1 245- -202 17 FH 10 5 1 4 196- -190 11 Fram 11 5 1 5 213- -236 11 Haukár 9 3 2 4 182- -181 8 ÍR 11 3 I 7 197- -214 7 Fylkir 10 1 3 6 181- -193 5 HK 11 1 2 8 165- -194 4 Markhæstu leikmenn eru nú: Geir Hallsteinsson, FH, 62/24 Gústaf Björnsson, Fram, 61/29 Stefán Halldórsson, HK, 58/13 Hörður Harðarson, Haukum, 57/21 Viggó Sigurðsson, Víking, 48/5 Guðjón Marteinsson, ÍR, 47/3 Jón Pétur Jónsson, Val, 44/7 Gunnar Baldursson, Fylki, 43/8 Páll Björgvinsson, Víking, 41/7 Púaðá leikmenn áSpáni — vegna verkfallsins um síðustu helgi Þegar lcikmenn gengu á völlinn á Spáni púðuðu áhorfendur á þá víðs vegar um Spán. Ástæðan var sú að leikmenn fóru um síðustu helgi í verkfall. Áhorfendur voru með færra móti og félögin tóku 10% af launum leikmanna sem refsingu. Sporting Gijon heldur öruggri forustu eftir 2—0 sigur gegn Sevilla. Atletic Bilobao og Real Madrid skildu jöfn, 3—3 i Bilbao. Úrslitin urðu: Hercules-Real Zaragoza 1—0 Espanol-Real Sociedad 2—0 Gijon-Sevilla 2—0 Celta-Racing 2—0 Recrcativo-Valencia 4—3 Burgos-Salamanca 1—0 1 Bilbao-Real Madrid 4—3 1 Atlctico Madrid-Vallecana 0—0 Las Palmas-Barcelona 2—1

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.