Dagblaðið - 12.03.1979, Side 29

Dagblaðið - 12.03.1979, Side 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979. 29 meira fyrir augað en eyrað Þegar bandaríska Capitol-hljóm- plötufyrirtækið gaf út sína fyrstu myndplötu (það er hljómplötu með innþrykktri mynd) komu aðeins fá eintök í smásöluverzlanir. Alls var upplag plötunnar, Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band með Beatles, 50.000 eintök. Starfsfólk Capitol.notaði sér hins vegar aðstöðu sína og keypti plöturnar í heildsölu. Þegar eintökin sem eftir voru komu í verzlanir voru þau rifin út af stórhrifnum kaupendum. Eðlileg afleiðing þess áhuga var að sjálf- sögðu stórfelld verðhækkun á þessum plötum. King Karol hljóm- plötuverzlunin á Manhattan seldi þær til dæmis á 7.500 krónur sem er um það bil þrjú þúsund krónum meira en platan átti að kosta upphaflega. Nú er verðmætið mun meira og tæpast hægt að fá Sgt. Peppers myndplötu fyrir minna en 22 þúsund krónur. Til skamms tíma voru það aðeins starfsmenn plötuiðnaðarins sem gátu eignazt myndplötur. Framleiðslan var einfaldlega svo dýr að ekki borgaði sig að fara út í fjöldafram- leiðslu. Hvað er myndplata Áður en lengra er haldið er rétt að fræðast nánar um það í hverju fram- leiðsla myndplötu er frábrugðin venjulegri svartri hljómplötu. Mynd- platan er í raun og veru glær með tveimur myndum eða teikningum innan í. Fljótt á litið virðist því myndin vera pressuð eða þrykkt í plastið. Myndirnar snúa hins vegar baki hvor í aðra og sjást greinilega í gegnum plastið. Niður í það eru rák- irnar síðan grópaðar eins og á venju- legri plötu. Myndplötur eru ekki nýtt fyrir- brigði á hljómplötumarkaðinum. Á árunum 1949—52 voru gerðar plötur með heitinu Vogue — The Picture Record. Þá eru einnig á lofti sögu- sagnir innan iðnaðarins um að árið 1914 hafi myndplata verið pressuð. Hins vegar komst fyrirbrigðið ekki i tízku fyrr en fyrir um tveimur árum. Þá hófu hljómplötuútgáfur að gefa útvarpsstöðvum og plötusnúðum myndplötur sem lítilsháttar þakk- lætisvott fyrir að hjálpa til við söluna. Til dæmis lét A&M fyrir- tækið pressa fjögur þúsund eintök af myndplötu með Peter Frampton. Þeim var síðan dreift til þeirra sem talið var að hefðu átt stærstan þátt í að skapa hið vel kunna Peter Frampton-æði. Sú plata gengur nú kaupum og sölum meðal safnara fyrir 25 þúsund krónur. Verðið á áreiðanlega eftir að fara ört hækkandi. Fjöldaframleiðsla á myndplötum er enn ómöguleg Hár framleiðslukostnaður og sein- virk framleiðsla standa í vegi fyrir því að veruleg fjöldaframleiðsla geti hafizt á myndplötum að svo stöddu.Reyndar kvarta útgáfurnar yfir því að pressufyrirtækin haldi ekki áætlun og tefjist því útkoma myndplatna gjarnan. Helztu vandræðin, sem að steðja, eru þau að ekki er hægt að fjölda- framleiða myndplöturnar. Enn hafa engin sjálfvirk tæki verið fundin upp sem láta lag af glæru plasti í pressu- mótið, leggja myndirnar tvær ofan á plastið, koma svo með annað lag af plasti þar ofan á og pressa síðan tón- listina í allt saman. Þetta þarf að gerast í höndunum og þvi er svo lengi verið að framleiða myndaplötur miðað við svartar, grænar, bláar, gular röndóttar og guð má vita hvernig litar. Handaflið hækkar líka ® A&M hljómplötufyrirtækið bandariska lét pressa fjögur þúsund mynd- plötur meö Peter Frampton sem fyrirtækiö gaf síðan því fólki sem talið var hafa unnið góð störf til að auglýsa stjörnuna upp. Plata þessi gengur nú kaupum og sölum meðal safnara ytra fyrir 22 þúsund krónur. verðið á plötunum þrefalt að minnsta kosti. Plötur fyrir augað en ekki eyrað Það er með myndplötur eins og börn: þær eru skemmtilegri fyrir augað en eyrað. „Framleiðendurnir fullyrða að hljómgæði myndplatn- anna séu að minnsta kosti áttatíu prósent á við svartar plötur,” segir bandarískur myndplötusafnari. „Staðreyndin er samt sú að gæðin eru ekki meiri en svo sem 50—60%. ’ , Kaupendur myndplatna sam- 'þykkja þessa skoðun. Þeir kvaria helzt yfir því að hávaði frá yfirborði platnanna sé allt of mikill. Sömu- leiðis vill það koma fyrir að nálin leitar upp úr grópunum og æðir yfir plötuna með tilheyrandi sargi. Hljómplötufyrirtækin svara þvi til, er þessir óskostir eru nefndir, að myndplöturnar séu fyrst og fremst gerðar fyrir safnara en ekki til notkunar. Tvær milljónir framleiddar fyrir almennan markað Öll meiriháttar hljómplötufyrir- tæki í Bandaríkjunum hafa nú látið frá sér fara myndplötur á almennan' markað. Mushroom Records kom í raun og veru bylgjunni af stað er það lét gera 100.000 eintök af nýjustu plötu hljómsveitarinnar Heart er nefnist Magazine. Capitol fylgdi á hæla Mushroom með Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band sem minnzt var á í upphafi greinarinnar. Og þar með var skriðunni hrundið af stað. Síðan í júní á síðasta ári, er Magazine kom út, hafa tólf hljómplötufyrir- tæki látið gera yfir tvær milljónir myndplatna. Talsmenn útgáfanna eru allir sann- færðir um ágæti þeirra. Myndplatan vekur athygli á framleiðslunni, örvar sölu svörtu plötunnar og gerir við- komandi hljómsveit eða söngvara meiraáb andienella. Enginn treystir sér i dag til að spá um framtíð myndplatnanna. Þær hafa verið á almennum markaði í aðeins níu mánuði og hingað til orkað sem hvati á hljómplötusölu. Látum Ralph Ebler aðalfram- kvæmdastjóra Elektra/Asylum fyrir- tækisins hafasíðasta orðið: „Myndplatan er stórkostlegur hlutur til að vekja spennu fyrir ákveðnum plötum. Ég lít á hana fyrst og fremst sem tæki til að kynna framleiðslu mína. Um sjónarmið neytandans — það er plötukaupand- ans — get ég ekki tjáð mig.” Úr BUSINESS WEEK ÁSGEIR TÓMASSON íO»Í Í_C w Myndplatan af Sgt. Peppers Loncly Ilearts Club Band er til hér á landi og kostar litlar sextán þúsundir króna. Fálkinn flutti inn tiu eintök af plötunni fyrir nokkru og á föstudagskvöldið var ein plata óseld. Hér heldur afgreiðslu- maður Fálkans á Laugavegi á þessari vinsælu plötu. — Svolítið hefur verið um að myndplötur væru boðnar til sölu hér á landi. Til dæmis hefur hljómplötu- 'verzlunin Skifan flutt nokkrar inn, meðal annars með Meat Loaf og Boston. Þær eru nú allar uppseldar. 29 tonna bátur smíðaður á Akureyri 1976 með Volvo Penta 300 ha.til sölu. Veiðarfæri á línu og net geta fylgt. Leiga kemur til greina og geta veiðar hafizt strax. Aðalskipasalan Vesturgötu 17, Sími 2-88-88. Kvöldsfmi 51119. RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H/F ÆGISGÖTU 7 - SÍMI SÖLUMANNS 18785 Southwind Super Luxus HARÞURR með fœti og með veggfestingu aftur fyrirliggjandi. Áldarfjórðungs reynsla hjá ísl hárgreiðslustofum. Varahlutir fyrirliggjandi.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.