Dagblaðið - 12.03.1979, Blaðsíða 32
%
Ummæli
talsmanna
stjórnar-
flokkanna:
L /
„Það mun vafalaust koma
Vilmundi, vini minum, á óvart, sfém
var búinn að tala um að stjórnin væri
dauð, hvað hún er sprelllifandi,”'
sagði Ölafur Ragnar Grímsson
alþingismaður (AB) í morgun.
„Þetta er á lokastigi. Auðvitað
hefur maður alltaf vaðið fyrir neðan
sig, unz búið er að ganga frá öllu,”
sagði Ólafur. „Forsætisráðherra
„STJÓRNIN ER
SPRELLUFANDI”
sendir frá sér hinn breytta texta
frumvarpsins í dag. í höfuðdráttum
hafa allir kaflar frumvarpsins tekið
stakkaskiptum frá upphaflegri mynd
þess.”
„Það hefur náðst samkomulag
um frumvarpið og Ólafur Jóhannes-
son vinnur nú að því að láta gera það
í sinni endanlegu mynd,” sagði
Tómas Árnason fjármálaráðherra i
viðtaii við DB í morgun. „Það hafa
verið gerðar ýmsar breytingar á
upphaflegu gerðinni, en þær sem ég
hef mestar áhyggjur af eru að óbeinir
skattar og niðurgreiðslur verða áfram
inni í vísitölunni. Það tel ég ekki vera
neina kjarabót og ákaflega vafasamt,
sérstaklega fyrir þá lægstlaunuðu.”
„Helztu póstar okkar eru inni,”
sagði Vilmundur Gylfason alþingis-
maður (A). „Þó eru nokkur atriði
enn óljós.”
Stjórnarflokkarnir halda fundi í
dag til að ræða hina nýju útgáfu
efnahagsfrumvarpsins. Meðal annars
verður framkvæmdastjórnar- og
þingflokksfundur hjá Alþýðubanda-
laginu og flokksstjórnarfundur hjá
Alþýðuflokknum. Hjá Alþýðuflokki
er búizt við nokkrum deilum.
-HH/HP.
Svona nú, krakkar,
standið alveg beinir og
brosið! Snjórinn á allur
að vera með á mynd-
inni!
-DB-mynd: Ragnar Th.
Fíkniefnamálið íKhöfn:
Ekkert bendir
til að málið nái
til íslands
Guðmundur Gigja rannsóknar-
lögreglumaður er nú kominn til starfa
hjá dönsku rannsóknarlögreglunni í
Kaupmannahöfn.
Hann mun þar eiga að kanna
hugsanleg tengsl milli íslands og Dan-
merkur í kókaínmálinu svonefnda en
að sögn Thorsted deildarstjóra í fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Kaupmanna-
höfn hefur enn ekkert komið fram við
yfirheyrslur þær, er fram hafa farið,
sem bendir til að málið tengist milli
landanna.
„Það er þó réttara að kanna málið
og eins eru þeir íslendingar sem sitja
inni hér tengdir einhverjum afbrotum á
íslandi, sem lögreglan þar vill kanna,”
sagði Thorsted í morgun.
Að öðru Ieyti kvað hann ekki neitt
nýtt af málinu að frétta og vildi engu
spá um það, hversu langan tíma
rannsókn þess tæki.
-HP.
Ungir sem aldnir á
kappreiðum
Gífurlegt fjölmenni var á
kappreiðum Fáks á ísilögðu
Rauðavatni í gær. Veður var líka með
afbrigðum gott eftir óveðurskaflann
fyrir helgina og að sögn forráðamanna
mótsins var ánægjulegt, hversu margt
ungt fólk var viðstatt og tók þátt
í keppni. Það voru hinir eldri einnig,-
hér má sjá Þorlák Ottesen, hinn fræga
hestamann á hesti sínum, en Þorlákur
verður 85 ára í vor.
-HP. DB-mynd SVÞ.
Ekkert lát virðist vera á
loðnuveiðunum í Faxaflóa nema
hvað í morgun brældi á miðunum.
Um helgina tilkynntu 57 bátar um
tæplega 26 þús. tonna afla og eru
þrær nú allar fullar á suðvestur
horninu. Það er ekki laust fyrr en á
Siglufirði, austur um til Hafnar í
Hornafirði. Er heildaraflinn nú
orðinn um 455 þús. tonn, eða liðlega
100 þús. tonnum meiri en
fiskifræðingar töldu ráðlegt í haust.
Siðan hefur orðið vart meiri loðnu en
menn áttu von á.
Hins vegar gengur sala
loðnumjöls fremur treglega þessa
stundina og eru víða miklar birgðir í
verksmiðjunum.
Að sögn Jónasar Jónssonar,
framkvæmdastjóra Síldar og fiski-
mjölsverksmiðjunnar í morgun, sem
á verksmiðjurnar að Kletti og í
Örfirisey, hefur mjölnotkun
minnkað verulega síðustu ár í hinum
hefðbundnu markaðslöndum i
Vestur-Evrópu. Sagði hann að hefði
mjölútflytjendum ekki tekizt að afla
nýrra markaða í fjarlægari löndum,
svo sem i Rúmeníu, á Kúbu, og í
íran, væri ástandið í sölumálum
alvarlegt og verðið mun lægra.
Grynnkað var á nýju lausamjöls-
tönkunum i Örfirisey um helgina, en
þeir fyllast aftur um miðja viku.
Hafi ekki tekizt að selja meira fyrir
þann tíma, sem Jónas bindur vonir
við að takist, verður að fara að
sekkja mjölið upp á gamla mátann.
-GS.
Múlafoss lestar 500 tonn af ósekkjuðu mjöli úr mjöltönkum verksmiöjunnar i
Örfirisey. DB—mynd: Sv. Þorm.
Nýir
fjarlægir
markaðir
bjarga
sölumálunum
Loðnan:
r
GOD VEIÐIEN SOLU-
TREGDA Á MJ
N
irfálst, nháð dagblað
MÁNUDAGUR 12. MARZ 1979.
Hiibnerog Anderson
efstir íMiinchen:
FRIÐRIK
TEFLIRVIÐ
SPASSKY
ÍDAG
„Ég tel mig hafa átt ágæta mögu-
leika í þessu móti þar til ég tapaði fyrir
Pfleger,” sagði Friðrik Ólafsson skák-
meistari í samtali við DB í morgun frá
Mtinchen í V-Þýzkalandi.
Tvær umferðir voru tefldar á alþjóð-
lega skákmótinu í Munchen um
helgina. Friðrik Ólafsson sat yfir í
báðum þessum un ferðum, þ.e. hann
átti að mæta heimsmeistaranum
Karpov og ungverska stórmeistaranum
Adorjan en þeir hafa báðir hætt þátt-
töku í mótinu sem kunnugt er.
Hubner og Anderson hafa nú
örugga forystu á mótinu með 7 1/2
vinning. Spassky hefur 6 vinninga og
biðskák. Friðrik hefur 5 vinninga.
Guðmundur gerði jafntefli við
Pachman og hefur nú 3 vinninga
og biðskák. í dag teflir Friðrik við
Spassky. -GAJ-
Félagsmálaráðherra
um flugmannadeiluna
Sýnist allt
stef na í
bráða-
birgðalög
— væntanlega
tekið fyrir á
ríkisstjórnarfundi
ífyrramálið
„Mér sýnist því miður allt
stefna í að leysa málið með
bráðabirgðalögum úr því sem
komið er,” sagði Magnús H.
Magnússon félagsmálaráðherra í
morgun er hann var inntur eftir
næsta skrefi opinberu sátta-
nefndarinnar i flugmannadeil-
unni eftir að þriðja formlega
sáttatillaga hennar var felld fyrir
helgi.
Magnús átti von á skýrslu eða
upplýsingum frá nefndinni í
dag og vonaðist til að á grundvelli
hennar væri hægt að taka málið
upp á ríkisstjórnarfundi í fyrra-
málið.
Ef gripið yrði til lagasetningar
taldi Magnús rétt að láta hana
einnig ná til starfsaldurslistans
þar sem lausn á kaupi og kjörum
flugmanna þessa stundina mundi
vart skapa frið til frambúðar í
röðum þeirra.
-GS.