Dagblaðið - 24.03.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. MARZ 1979.
\
Fjölmiðlar, kosningakrf-
orð og geistlegar stéttir
Haraldur Guðnason í Vestmanna-
eyjum skrifar:
Margt er nú skrafað og skrifað um
fjölmiðlana sjónvarp-útvarp.
Orðaskakið hefur borizt inn á „hið
'háa alþingi” vegna kosningaraeðu
Lúðvíks austfirðingagoða í sjórivarpi
fyrir nokkru. Sumir skamma frétta-
menn, sem er ósanngjarnt. Það vita
hins vegar allir að þegar
höfuðpaurum flokkanna er hleypt í
útvarp eða sjónvarp í þeim fróma
tilgangi að leita frétta úr „leikhúsinu
við Austurvöll”, sem þingmenn eru
farnir að kalla löggjafar-
samkunduna, til þess að skýra
einhver mál, þá flækja þeir þau. Út
úr þeim stendur óstöðvandi buna um
úrraeði Flokksins þeirra, og loksins er
þjóðin beðin þess lengst orða að efla
Flokkinn. Þá verði dásamleg dýrð á
ísaköldu láði. Lengst ganga þeir
Lúðvík og Geir í þessum hókus
pókus.
Allt að fara
í hnút
Nú eru fögru loforðin fyrir
kosningar farin að bögglast eitthvað
fyrir þeim, sem kosnir voru til að
standa við þau. Samningarnir frá
1977 eru ekki í gildi, en launamisrétti
hefur aukizt, sbr. hinn makalausa
dóm BHM-manna. Og nú er allt að
fara í hnút út af 5—6% til eða frá,
sem fljótt verða að engu eins og vant
er en 1. des. þótti ekki ofrausn að
gefa eftir 8 vísitölustig. Reyndar var
lofað „félagsmálapakka”, hvað sem
það nú þýðir. En pakkinn sá kvað
vera ókominn og sum verkalýðsfélög
orðin langeyg eftir sendingunni.
En þótt sambúð þessa stjórnar-
þrihyrnings hafi verið stirð, sem
stundum hendir um slíkt fyrirbæri,
virðist ekki góðra kosta völ, þótt
breytt yrði. Og vorkunn er þessum
efnilegum strákum, sem vilja vera
hæstvirtir eitthvað lengur. Þeim
gömlu þykir líka vænt um stólana.
Lúðvík ætti að fara sér hægt þó
hann langi i kosningar. Uppskeran
gæti orðið rýrari en hann hyggur,
þótt stjórnmálarefur sé. Flokkurinn
hans mundi kannski halda sínu, því
söfnuðurinn er samhentur vel.
íhaldið mundi vinna verulega á, þótt
viðskilnaðurinn væri ekki betri en
raun var á (um 50% verðbólga,
lokuð fiskiðjuver o.s.frv.). Ungkrata
á þingi vil ég nú minna á þessi orð í
Ljósvíkingnum: „Ekki fara allir á
kirkjugarðsballið í haust sem
hlökkuðú til þess ívor.”
Kosning
útvarpsráðs
Úr því ég fór að minnast á
fjölmiðla, þá nokkur orð í viðbót.
Sem útvarpsnotandi mótmæli ég því
að útvarpsráð sé kosið pólitiskri
kosningu eftir hlutaskiptareglu
flokkseigenda. Þá mótmæli ég því að
iþróttafréttir tröllríði þessum
fjölmiðlum. Er ekki nög að hafa 4—8
síður í hverju dagblaði? Þessar fréttir
eru of einhliða; knattspyrna og
körfubolti virðast hafa forgang.
Hvers vegna er sjónvarp ekki notað
sem kennslutæki?
Það er að bera í bakkafullan
lækinn að kvarta vegna lélegra kvik-
mynda og brezkra langlokuþátta.
Þetta er víst orðið náttúrulögmál. Ef
gott efni er of dýrt, væri ráð að loka
1—2 daga í viðbót vikulega og vanda
meir til efnis hina dagana.
Raunar voru peningar til þess að
gera Silfurtúnglið að eins kbnar
tunglæði.
I útvarp eru lesnar skáldsögur sem
fjölmargir kannast við, en sjaldan
flutt verk merkra höfunda, erlendra,
t.d. nóbela.
Morgunpóstur var stundum
hressilegur, en sjaldan i seinni tíð.
Furðulegt uppátæki þessi matseðijl
vikunnar og úrtöku leiðinlegt.
Hverjir setjast við mataruppskriftir
kl. 7 og nokkrar minútur að morgni?
Er ekki til nóg af matreiðslubókum?
Þá er líður að vertíðarlokum held
ég að gott væri að gefa „Bróður
Páli” og „Félaga Sigmari” langt
sumarfrí og mætti Hannes Hólm-
steinn fylgja þeim, svo og fleiri
skritnir póstar.
Hvunndags
dregur nokkuð
úr þessu
Geistlegrar stéttar menn hafa
Iöngum borið sig illa út af því að
þeim sé smátt skammtaður tími í títt-
nefndum fjölmiðlum. Ég held þeir
þurfi ekki að kvarta, en hér sannast
sem oftar, að „seint fyllist sálin
prestanna”. Þeir fá á sunnudögum
morgunandakt, messu kl. 11 og
kvöldbæn (prédikun). Þar að auki
getur komið gleðistund Daníels og
Guðna og jafnvel fleiri þættir.
Hvunndags dregur nokkur úr þessu
sem eðlilegt er. Og nú hefur
Bernharður blessaður fundið
prédikunarstóla í ólíklegustu
fjölmiðlum. —Ég er ekki viss um að
álagið megi öllu meira á kristnilífið.
VIII sjá teiknimyndir
Disney áfr
í sjón-
varpinu WfcjA
Svava, 13 ára stúlka úr Hafnarfirði,
Ég skora á Sjónvarpið að fá nú til
sýningar teiknimyndir Walt Disney
með það í huga að nú er barnaárið og - -
ég veit að ég tala fyrir munn margra
sem eru lengi búnir að bíða eftir Mikki mús er mjög vinsæll hjá yngstu
þessu sjónvarpsefni. kynslóðinni.
/
•~7> »
CHRYSLER
f SUOURLANDSBRAUT 10. SlMAR; 83330 - 83454
'gnm'"*
ao '^áW1979'
• LAUGARDAGS-
\\\
MARKAÐUR1979
y'J }
DODGE ASPEN SE árg.
1977, 4 dyra, sjálfsk., afl-
stýri, útvarp, ekinn 25.000
km. Glæsilegur einkabíll.
D0DGE:
Aspen Custom 4 dr........1978
Aspen SE 2 dr. 8 cyl.....1976
Dart 4 dr.................1975
DartSwinger...............1974
Charger...................1974
DartSwinger..............1972
Dart 4 dr. sjátfsk.......1968
Concours4dr...............1976
Pontiac Ventura 3 dr....1973
HornetSST................1970
Ambassador SST............1970
D0DGE W 200, fjórhjótadrrfs
pick-up, árg. 1977, óekinn á
mjög hagstæöu verði.
PLYMOUTH VOLARÉ ðrg. 1977 2 dyra, sjátfsk., aflstýri, útv./segulband, ekinn 22.000 km.
PLYMOUTH:
Volaré Premier 2dr 1978
Volarð Custom 4 dr 1978
Volaré Premier 2 dr 1976
Volaré Station 1976
Fury Station 1973
Duster 1971
Volvo 142 DL sjálfsk 1974
AUD1100 GLS 1977
Mazda 929 4dr 1976
Saab 99 2.0 L 1974
BMW2500 1970
SIMCA RANCHO, árg. 1977
ferðabíllinn fallegi ekinn
21.000 km.
AUSTIN ALLEGR0 1500 SDL
árg. 1977, ekinn 20.000 km.
Grænn, mjög vel með farin
bifreið. /
SIMCA:
1508 S....................1977
1307 GLS..................1976
1100 LX........ ..........1977
1100 LE...................1977
1100 LX...................1976
Simca sendibíll...........1977
Peugeot404............... 1974
Citroen DS................1974
Citroen GS1220 .......... 1974
VWMicrobus................1974
VW Pick-up................1974
Datsun pick-up............1974
............1972
VILTU SEUA? VILTU SKIPTA? VILTU KAUPA?
Hjá okkur færðu bíSnn
sem þú /ertar ad
CHRYS
OPIÐ KL10-17 i DAG, LAUGARDAG
SUÐURLAN DSBRAUT 10
SIMAR 83330 -83454
Spurning
dagsins
Áttu einhver
gæludýr?
Gissur Ágústsson pipulagninga-
maður: Nei, ekki núorðið, en ég
hef átt bæði kött og hesta og fyrir
löngu átti ég páfagauk.
Hansenina Jóhannesdóttir afgreiðslu-
stúlka: Nei, en þegar ég var i sveit átti
maður náttúrlega hunda, ketti og allt
tilheyrandi.
Kolbeinn Flnnsson verzlunarmaður:
Nei, það á ég ekki og hef aldrei átt. Ég
hef þó ekkert á móti slíku en hef ekki
haft aðstæður til þess.
Erla Júliusdóttir, vinnur við glugga-
skreytingar: Ég á engin núna en viö
höfum átt bæði fugla og ketti.
Kristin Harðardóttir hjúkrunarfræð-
ingur: Ég hef átt kött en á engin gælu-
dýrnúna.
Jóhannes Norðfjörð sölumaður: Ég
hef átt kanarífugla.