Dagblaðið - 24.03.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 24.03.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. MARZ 1979. 7 Rækjustríð Bolvíkinga og ísfirðinga: Bolvíkingar telja sig svikna Mikill hiti mun nú í Bolvíkingum vegna þess að þeim hefur verið gert að hætta veiðum fyrr en öðrum aðilum við ísafjarðardjúp. MáUð á sér langan aðdraganda og byggist á því að aflanum hefur verið skipt niður á rækjustöðvarnar við {safjarðardjúp. Skipting þessi kæmi nú þannig út, að sögn Bolvikinga, að ef veidd hefðu verið 2400 tonn hefðu 48 tonn komið í hlut hvers báts frá Bolungarvík en 64 tonn í hlut annarra báta. Óánægja Bolvíkinga með þetta fyrirkomulag hefur staðið lengi og hafa þeir margoft reynt að fá sinn hlut leiðréttan. Þeir segja að Einar Ingvarsson, fyrrum aðstoðarsjávarútvegsráðherra, hafi fengið nokkra þeirra til að ganga í smábátafélagið Hugin á Isafirði gegn því að þeir fengju að leggja aflann upp hvar sem væri. Þetta mun svo hafa gengið þannig til í vetur að einn bátur frá Bolungarvík lagði afla sinn upp í Hnífsdal. En núna er þessum báti, eins og öðrum bátum frá Bolungarvík, gert uð hætta viku fyrr en aðrir bátar. Finnst Bolvíkingum sem þeir hafi verið plataðir í þetta félag sem hafi engu breytt fyrir þá, þegar á reyndi, og að ekki hafi verið staðið við það sem segir í leyfunum frá í haust, um að þeim væri heimilt að landa hvar sem er við ísafjarðardjúp. „Klassískt vandamál" Dagblaðið hafði samband við Pétur Bjarnason, fulltrúa sjávarút- vegsráðuneytisins á ísafirði, og spurði hann út í þetta mál. Hann sagði að hér væri um að ræða hið klassíska vandamál, hvernig ætti að skipta aflanum Sagði hann að aldrei hefði verið hægt að koma þessu þannig fyrir að úthaldstíminn væri jafnlangur hjá öllum bátum. Hann sagði að heildarkvóti fyrir allt Djúpið væri ákveðinn strax á haustin. Þessi tala hefði verið ákveðin 2500 tonn i haust en síðan lækkuð í 1700 tonn. Þessum kvóta er síðan deilt á öll byggðarlögin eftir ákveðnum reglum. Bolvíkingar hefðu verið látnir hætta hinn 16. marz vegna þess að þeirra hluti hefði þá verið búinn. Hér spilaði líka inn í að stefnt hefði í bátafækkun á ísafirði á meðan, bátum fjölgaði á Bolungarvík og hefði þá komið minna í hlut hvers báts og hlutföllin raskazt. Hann benti hins vegar á að fsfirðingar hefðu orðið að hætta hinn 23. marz ánþess aðgetalokið viðkvótasinn. -GAJ- Bolvikingar eru ekki sáttir við sinn hluta rækjunnar sem veiðist i Djúpinu og telja tsfirðinga fá ríflegri hluta. Norrænir matreiðslumeistarar sem sóttu þingið. Norrænir kokkar þinga: „Gleymdu ekki gamla? norræna eldhúsinu” Félag norrænna matreiðslumeistara ! þinginu var mest fjallað um skóla þingaði hér á landi dagana 13. og 14. og kennsluhætti á Norðurlöndum, marz. Er þetta í fvrsta sinn sem félagið matargerð og matarvenjur. Einnig var kemur saman hér en klúbbur mat- rædd endurvakning á gömlum matar- reiðslumeistara á íslandi gekk í félagið venjum, þannig að hið gamla norræna 1974. í norræna félaginu eru núna um eldhús falli ekki í gleymsku. þúsund manns, þar af 24 á íslandi. -DS. Fjölmiðlaráðstefna verkalýðshreyfingar „Lítill hlutur verkalýðshreyfing- arinnar í islenzkri fjölmiðlun stafar ekki einvörðungu af áhugaleysi fjölmiðla,” segir í frétt frá Nemenda- sambandi Félagsmálaskóla alþýðu. Nú boðar nemendasambandið til ráðstefnu á morgun, laugard. Er tilgangurinn sá að fá sem flesta til að skiptast á skoðunum um tengsl og hlut verkalýðshreyfmgarinnar í fjölmiðlun. Ráðstefnan er opin öllum, sem áhuga hafa á þessum málum. Ráðstefnan verður haldin í ráðstefnusal Hótels Loftleiða og hefst kl. 10 árd. Sérstaklega er boðið út- varpsráði, útvarpsstjóra, ritstjórum og fréttastjórum dagblaðanna, frétta- og dagskrárstjórum útvarps og sjónarps. Þá er miðstjórn ASÍ boðið, sem og stjórn MFA. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Menningar- og fræðslusamband alþýðu og ritstjóra Vinnunnar, tímarits Alþýðsambands Islands. Meðal framsögumanna á ráðstefnunni má nefna Helga Guðmundsson, formann Trésmiðafélags Akureyrar, Hauk Má Haraldsson, ritstjóra Vinnunnar, Elías Snæland Jónsson blaðamann, Ólaf R. Einarsson fréttamann. Milli fram- söguerinda verða stuttar fyrirspurnir. Að þeim loknum er gert ráð fyrir umræðum í starfshópum. Loks verða kynntar niðurstöður starfshópa og umræður um þær. Þátttaka er að sjálf- sögðu ókeypis og sem fyrr segir öllum heimil sem áhuga hafa á málefninu sem fjallað er um. -BS. Sumarnámskeið Sameinuðu þjóðanna Sameinuðu þjóðirnar efna til tveggja alþjóðlegra námskeiða á sumri komanda sem islenzkum há- skólastúdentum og háskólaborgurum gefst kostur á að sækja um. Annað námskeiðið er haldið í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York en ekki er ákveðið hvenær það verður. Hitt námskeiðið verður haldið í Gefn dagana 16.-27. júlí og er það ætlað háskólaborgurum. Megintilgangur námskeiðanna er að gefa þátttakendum kost á að kynnast til nokkurrar hlítar grund- vallarreglum, markmiði og starfi SÞ og sérstofnana þeirra. Sameinuðu þjóðirnar annast sjálfar val þátttakenda en Félag Sameinuðu þjóðanna á fslandi hefur milligöngu um tilnefningu úr hópi íslenzkra umsækjenda. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um ástæður fyrir um- sókninni, skulu sendar Félagi Sam- einuðu þjóðanna á íslandi, pósthólf 679, fyrir21. marz næstkomandi. -GAJ- UPPBOÐ! Til styrktar GLEYMDUM BÖRNUM 79 Hótel Loftleiðum SUNNUD. 25. mars kl.1500-1800 MÁLVCRK Eftir bestu núlifandi listamenn landsins! KARLAKOR REYKJVIKUR syngur til að byrja með VEITINGAR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.