Dagblaðið - 28.03.1979, Page 1
5. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979 — 74. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMtLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
f
Endurheimtalaxa í Laxeldistöð ríkisins í Kollafirði hefur hrapað:
Ræktaður lax getur kostað
allt upp í 120 þúsund krónur
— miðað við 1% endurheimtu—300 króna seiðaverð og 25% meðalveiði í á
Hrun hefur orðið í endurheimtu
laxaseiða í Laxeldistöð rikisins í
Kollafirði, eðaúr 13% 1973, sem var
bezta ár frá byrjun, niður í um eitt
prósent sl. ár, að því er DB hefur eftir
áreiðanlegum en óstaðfestum
heimildum. Til samanburðar er 10—
15% endurheimta talin eðlileg í Sví-
þjóð úr slíkum stöðvum og náttúrleg
endurheimta hér er talin um 26%
skv. athugunum Veiðimálastofn-
unar. Hafa seiöakaupendur nú veru-
legar áhyggjur af þessari þróun og
krefjast nánari skýringa.
Er það að vonum þar sem væntan-
legt verð sjógönguseiða í sumar
verður líklega um 300 krónur fyrir
seiðið. Þarf því að kaupa 100 seiði
fyrir samtals 30 þús. krónur til að fá
eitt til baka miðað við 1% endur-
heimtu. Nærri mun láta að fjórði
hver lax sé veiddur úr góðri laxveiðiá
árlega, svo hægt er með nokkurri
sanngirni að framreikna laxinn eina,
sem kostaði orðið 30 þúsund, upp í
120 þúsund.
Því velta forráðamenn laxveiði-
ánna nú mjög fyrir sér hvort verjandi
sé að gera slík viðskipti þegar þess er
gætt að 75% laxastofnsins verður
eftir í ánni og á fullkomlega að geta
séð um eðlilega endurnýjun og jafn-
vel vöxt stofnsins, þeim að
kostnaðarlausu. Blaðið hefur borið
þessar niðurstöður undir vísinda-
menn, sem telja raunhæft að setja
það svona fram miðað við 1 % endur-
heimtu.
Árni ísaksson, hjá Veiðimála-
stofnun, sagði í viðtali við DB í gær,
að á það væri að líta að Kollafjarðar-
stöðin væri tilraunastöð og því ýmsar
aðferðir reyndar með misjöfnum
árangri. Einnig væri stöðin í fjár-
svelti, sem kæmi mjög niður á allri
aðstöðu. Þannig hafi seiðunum, sem
sleppt var með þessum árangri, verið
sleppt við slæm skilyrði. Þá benti
hann á að þótt þau hafi skilað sér svo
illa í Kollafjarðarstöðina, kunni þau
að hafa skilað sér mun betur í aðrar
ár, sem þeim var sleppt í sem t.d.
liggur fyrir í Súgandafirði. Loks gat
hann þess að það tæki stöðina 2 ár að
leiðrétta slæma útkomu þar sem eitt
árið væri seiðum sleppt, næsta ár
væri útkoman ljós og ekki væri hægt
að bæta úr eða breyta til fyrr en í
ljósi þe'ss. í fyrra fengust fram nokkr-
ar lagfæringar og bindur stofnunin
vonir við mun betri árangur í sumar.
-GS.
• r*
Hafísinn:
Greiðfært víðast
fyrir Norðurlandi
„Það sást litið til fssins f gær en hann hefur aukizt töluvert f nótt og að sögn sjó-
manna hér i morgun er á takmörkunum að fært sé út úr höfninni,” sagði Einar
Ólason fréttaritari DB á Húsavík í morgun. ,,í gær var nánast allur ís horfinn
héðan nema það sem var landfast á fjörum. Núna er hins vegar komin norðanátt
aftur svo það má búast við að ástandið versni aftur en hér var allt lokað þar til á
laugardag, að skip náði að brjótast út.”
Segja má að i gær hafi verið greiðfært frá Horni og að Rauðunúpum en siðan
erfið sigling frá Rauðunúpum og að Langanesi. Þá var til þess að gera greiðfært
fyrir Austurlandi með jökum og spöngum þó suður að Gerpi. En þótl greiðfært sé
víðast fyrir Norðurlandi er víða ís uppi við land og lokar hann einstaka höfnum. í
morgun var norðanátt en að sögn Veðurstofunnar er hún sem óðast að ganga
niður. -GAJ-/DB-mynd Einar Ólason, Húsavík.
önnur raf væöíng
sveitanna
íburðarliönum
og nú fyrir
tæpa níu
milljarða króna
— sjábls.8
Vandamál
aldraðra skilja
allirnema
ráðamenn
— sjá bls.9
Sjálfseignar-
stofnun um
vistunarmál
aldraðra
— sjá bls. 9
Alþýðubandalagið ber fram tillögur:
4-5 þús. bætur á laun undir 250 þús.
—alþýðuf lokksmenn nefna skattalækkanir
Alþýðubandalagið lagði i gær fram
tillögur um láglaunabætur. Þar er
gert ráð fyrir, að 4—5 þúsund króna
bætur komi á laun undir 250 þúsund-
um á mánuði, og verði uppbótin föst
krónutala.
Flokkurinn lagði einnig fram til-
lögur um breytingar á verðbótakafl-
anum í frumvarpi forsædsráðherra.
Tillögurnar eru nokkuð svipaðar því,
sem DB sagði frá í gær. Gildistöku
viðskiptakjarávísitölu skuli skipt í
tvennt, og meðferð búvörufrádráttar
og áfengis og tóbaksverðs í vísitölu
skuli vera' óbreytt frá þvi, sem nú er.
Þegar tillögurnár voru lagðar fyrir
Alþýðu- og Framsóknarflokk, vísuðu
þeir á Jón Helgason (F) og Ágúst
Einarsson (A), sem sitja í fjárhags-
og viðskiptanefnd efri deildar. Jón
og Ágúst tóku tillögunum illa. Höfðu
þeir útreikninga um, að verðbólgan
yrði tæp 40%, ef að tillögunum yrði
gengið.
Einn þingmaður Alþýðuflokksins
sagði í morgun, að nær lagi væri að
reyna að mæta tillögum Verka-
mannasambandsins með skattalækk-
unum til láglaunafólks. -HH.
Ráðherrar Framsóknar:
„Við erum óhressir með tillögurnar...”
— Það var ekki tekin nein ákveðin af-
staða til tillagna Alþýðubandalagsins
í gærkvöldi, sagði Tómas Árnason
fjármálaráðherra í viðtali við DB í
morgun, en Framsóknarmenn þing-
uðu um tillögur Alþýðubandalagsins
i gærkvöldi. „Mér sýnist hins vegar
að ef menn vilja reyna að ná ein-
hverjum árangri í baráttunni við
verðbólguna, séu þetta ekki réttar að-
ferðir. Mér finnst sjálfsagt að taka
tillit til lægstu launanna en eins og
þetta er sett fram, aðeins er talað um
dagvinnu og miðað við 250 þús. á
mánuði, þá erum við komnir hátt
upp í launataxtana,” sagði Tómas
ennfremur.
„Við erum ákaflega óhressir með
tillögur Alþýðubandalagsins,” sagði
Steingrímur Hermannsson dóms-
málaráðherra í morgun. ,,Þær ganga
allt of, allt of langt, ef menn eru að
hugsa af alvöru um verðbólguna.
Það eru mörg atriði sem þarf að
skoða en ég vi! benda á eitt, samning-
ana við BSRB. Það er til lítils að vera
að semja um brottfall 3ja% kaup-
hækkunar við þá og ætla að veita
öðrum stéttum 2% launahækkun
minnst og meira á lægri laun er 250
þús. í dagvinnu,” sagði Steingrímur.
-HP.