Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979.
<S
23
Útvarp
Sjónvarp
i
ÁFENGISMÁL Á NORÐURLÖNDUM - sjónvarp kl. 22.30:
Myndast morff ín
við víndrykkju?
Síðasti þátturinn af þrem um
áfengismál á Norðurlöndum er á dag-
skrá sjónvarpsins í kvöld. Þýðandi er
eins og áður Jón O. Edwald.
Jón sagði að þessir norsku þættir
væru sérstakir að því leyti að í þeim
gætti mikils raunsæis, meira en oft
væri í umræðu um áfengismál. í
síðasta þætti var komið inn á þá stað-
reynd að i hvert sinn sem drykkja ykist
um helming, ferfaldaðist fjöldi áfengis-
sjúklinga. Þessi staðreynd verður um-
ræðuefni þáttarinsí kvöld.
í þáttunum kemur glögglega fram að
áfengi er fíkniefni og meira að segja
hafa no.kkrir vísindamenn haldið því
fram að við drykkju áfengis myndaðist
morfín í líkamanum. Vísindamenn i
Bandaríkjunum vinna nú að þvi að
rannsaka hvort þessi fullyrðing fær
staðizt. En hvort sem svo er eða ekki er
áfengi orðið það gamalgróið í þjóðfé-
laginu að hæpið er að hugsa sér að hætt
verði að neyta þess vegna lagaboða.
Áfengis hefur verið neytt síðan áður en
Biblían var skrifuð og það eina sem vís-
indamenn telja að gæti dregið úr
drykkju er breytt almenningsálit.
En að breyta almenningsálitinu er
ekkert smámál. Fyrir þá sem neyta
áfengis án þess að bíða af því tjón er
fræðsla oft flutt fyrir daufum eyrum.
Menn telja sig ekki þurfa á því að halda
að vita neitt um áfengisböl, telja að að-
eins smáhópur fólks sé þrúgaður af því
böli. En fyrir þann smáhóp kemur
fræðslan yfirleitt of seint. Þeir menn
sem áfengisbölið þrúgar mest vita
néfnilega manna mest um vin. En þeir
ráða samt ekki við það.
Það er reynsla þjóðanna, eftir því
sem Jón sagði, að því auðveldara sem
sé að ná í vín, því meira sé drukkið.
Finnar stigu fyrir nokkrum árum mikið
spor til frjálsræðis og leyfðu þá meðal
annars sölu á milliöli í matvörubúðum.
Neyzla áfengis jókst þá gífurlega. Það
sýndi sig að bjórinn bættist við neyzlu
manna án þess að neyzla sterkra
drykkja minnkaði. Sá hópur sem drakk
bjórinn var einfaldlega nýr. Áður en
lögin voru rýmkuð voru 70% Finnar á
því að slíkt bæri að gera. En við nýlega
könnun var helmingur þjóðarinnar á;
því að herða bæri lögin aftur, reynslan
hefði verið slík.
mm
hvert sinn sem drykkja áfengis tvöfaldast, ferfaldast fjöldi áfengis-
sjúklinga.
Jón vinnur hjá Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins og var hann spurður
um afstöðu yfirmanna sinna til þeirrar
fræðslu sem fram kemur í þáttunum.
Sagði hann að yfirmennirnir væru eng-
ir sérstakir áhugamenn um það að
halda uppi drykkju. Það væri aðeins
þeirra hlutverk að sjá til þess að vín
væri á boðstólum á meðan lög kvæðu
svo á um. Enda væri ekki um það að
ræða að hætta að selja vín, slíkt dytti
víst engum í hug. Hitt væri hægt, að
líta á áfengisvarnir eins og hverja aðra
heilsugæzlu og hætta þeim undanslætti
og útúrsnúningum sem oft hefðu
heyrzt. DS.
HLÁTURLEIKAR—sjónvarp í dag kl. 18.15
Jóki og steinaldar-
menn keppa í íþróttum
„Þetta eru 13 þættir eftir þá frægu
teiknara Hanna og Barbera sem teikna
Steinaldarmennina, Björninn Jóga og
fleiri fræg kvikindi,” sagði Jóhanna
V
Jóhannsdóttir um nýju þáttasyrpuna
Hláturleika sem hefst í dag í sjónvarpi.
„Hláturleikarnir, sem á ensku heita
Laughylimpics, og er þá eflaust verið
að gera örlítið grín að Ólympíuleikun-
um, virðast fara um allan heim. Hvað
sem um grínið má segja er óhætt að
fullyrða að teiknimyndafígúrurnar fara
öðru vísi að en almennt gerist á íþrótta-
mótum. Er margt með ólikindum eins
og það er Björninn Jógi hyggur á
skautakeppni. Þar sem hann býst alveg
eins við þvi að detta á hausinn bindur
hann þriðja skautann þar. Nú og sá
sem ætlar í skíðakeppni bindur stól við
rassinn á sér til þess að vera við öllu bú-
inn. Annað er eftir þessu.
Ég geri fastlega ráð fyrir að þessir
þættir veki lukku meðal barna því þeir
«c
Steinaldarmennirnir á íþróttamóti.
eru mjög vel teiknaðir eins og við er að
búast. Tilburðir kvikindanna eru líka
afskaplega hlægilegir á köflum.
Ég veit ekki hversu sterkur gagn-
rýnisbroddurinn í garð íþróttanna er en
eflaust geta menn séð það út ef þeir
vilja," sagði lóhanna.
Hláturleikar eiga eflaust eftir að kæta
marga, bæði fullorðna og börn.
Kvartað hefur verið ytir því í lesenda-
bréfum DB undanfarið að ekki væri
sýnt nógu mikið af léttu og skemmti-
legu efni fyrir börnin, og sérlega hefur
verið fundið að því að teiknimyndir
vantaði. Nú er sem sagt bætt úr þvi.
DS.
J
N
Magnús Pálsson verður heimsóttur í Vöku i kvöld. Magnús á þetta nýlistarverk
sem olli á sinum tíma, i nóvember 1977, miklum deilum. Verkið heitir Njálsbrenna
og á ritvélunum eru nöfn þeirra sem létust i biennunni. Við nöfn þeirra sem dóu i
heysátu eftir að hafa komizi út úr bænum eru festar heylufsur. Bílnúmerið táknar
bruna í Rangárvallarsýslu árið 1010.
VAKA—sjónvarp í kvöld kl. 20.30
Þróun samtíma-
listar og nýlist
Vaka í kvöld snýst um nýlist. Um-
sjónarmaður hennar er Gylfi Gíslason
en stjórn upptöku annaðist Andrés
Indriðason. Andrés sagði um þáttinn
að fjallað yrði um nýlist og þróun sam-
tímalistar á íslandi.
„Talað verður við Níels Hafstein,
Þuríði Fannberg og Magnús Tómasson
í sjónvarpssal. Inn í spjall þeirra flétt-
ast síðan eitt og annað sem tengt er ný-
list.
Til dæmis verður fjallað um það sem
á útlenzku er kallað performance en
hefur verið þýtt með orðinu uppákom-
ur. Eflaust finnst mörgum þetta afar
Y
forvitnilegt listfot in Sýnd verða niynd-
verl af u tri"i og Ijósmyndasyrpur
at uppákomum sem hafðar hafa verið í
frammi.
Við lítum inn í Galleri Suðurgötu 7
og forvitnumst um starfsemi þess.
Skotizt verður upp í Mosfellssveit til
Magnúsar Pálssonar sem hefur fengizt
við þetta listform í allmörg ár og er
einnig kennari í nýlist við Handíða- og
myndlistarskólann í Reykjavik. Heima
hjá Magnúsi er mikið af hlutum sem
flokka má undir nýlist og skoðum við
þá ögn,” sagði Andrés.
DS.
Byggingaþjónusta
Alhliöa neytendaþjónusta
NÝBYGGINGAR
BREYTINGAR 0G VIÐGERÐIR
Upplýsingar í síma 71730 daglega
PPVIUIP llfKI Byggingafélag
ncTiiin n/r smíðjuvegin, kóp.
TILYALIN
FERMINGARGJÖF
y
"7
Rill Hallbjörnsson
-lltl i st.fa
ORÐ
OGÁKALL
Foreldrum fermingarbarna er sérstaklega bent á
bókina til fermingargjata.
BÓKIN ER TILEINKUÐ ÍSLENSKRI ÆSKU.
Ungmenni ættu aö kynna sér ábendingar hennar,
því mesta hamingja þeirra er að finna Jesú Kríst -
og fá aö njóta handleiðslu hans um alla ævidaga.
Höfundurinn.