Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979. Deilt um sýningar Borgarhúsgagna Haukur Óskarsson Borgarhúsgögnum: „Má fólk ekki skoða húsgögn ífrítíma sínum?” „Lögregluyfiryöld hljóta að eiga i erfiðleikum með þessa menn. Ég skil ekki hvers vegna Kaupmannasam- tökin eru að meina fólki aö koma og skoða húsgögn í sínum frítíma, þaö er allt of lítið um það að hjón hafi tækifæri á öðrum tíma til þess að ákveða kaup á húsgögnum, eða hverju sem er, ef þvi er að skipta og ég skil bara ekki þessa afstöðu kaup- manna,” sagði Haukur Óskarsson, kaupmaður í Borgarhúsgögnum, en deild húsgagnakaupmanna í Kaup- mannasamtökunum hefur kært hann fyrir brot á lögreglusamþykkt um opnunartíma verzlana. Hefur Haukur auglýst sýningar á húsgögn- um í verzlun sinni um helgar og hafa þær verið fjölsóttar. „Fólk er að reyna að stelast i vinnutímanum í búðir og maður þarf ekki að fara langt hér í kring til þess að sjá yfirfull bílastæöi. Ég segi fyrir mig að ég mun halda þessu áfram og ef hert verður að mér, þá er ég alvar- lega að hugsa um að flytja verzlun mína, eða útibú frá henni, í nærliggj- andi byggðir, t.d. í Kópavoginn. Þar gilda ekki þessar reglur,” sagði Haukur ennfremur. SKYNMMYNDIR Af & Vandaðar litmyndir i öll skírteini. bama&fjölskyldu- 5 Ijósmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SÍMI 12644 N< i tré og runna. Tekið á móti pöntunum í síma 18743L I Munió frímerkjasöfnmv Pósthöif 1308 eðs tkrifctoh fðlqpDS Hafnarstrsti 5, sími 13468.___________ Hörður Pétursson húsgagnakaupmaður: „SÝNINGARHALDIÐ ER ÓLEYFILEGF „Jú, það er rétt, við höfum haft samband við lögregluna vegna þess- ara sýninga í Borgarhúsgögnum,” sagði Hörður Pétursson, formaður deildar húsgagnakaupmanna í viðtali við DB. „Samkvæmt reglugerð er óleyfilegt að halda sýningar um helgar í verzlunarhúsnæði á þeim vörum sem þar eru seldar á venjuleg- um opnunartímum og við álítum að verzlun sé verulega mismunað með þeim reglum sem nú eru í gildi. Það er tiltölulega auðvelt fyrir eigendur minni verzlana að gangast fyrir sýningum, eða hafa opið um helgar, er við hinir sem erum með stærri verzlanir verðum að leggja aukinn vinnutíma á okkar starfsfólk. Það getur einfaldlega orðið til þess að maður missi gott starfsfólk, sem ekki vill vinna um helgar, og það skýtur dálítið skökku við á sama tíma sem verið er að tala um að minnka vinnu- tíma fólks yfirleitt skuli þessar hug- myndir koma upp.” Hörður sagði að það væri álit Kaupmannasamtakanna að erfitt væri að draga skýr mörk á þessum sviðum og benti á að margar verzl- anir, t.d. blómabúðir, væru ekki orðnar annað en gjafaverzlanir. Það væri þá orðið spuming hvers vegna gjafaverzlanir fengju ekki að hafa opið um helgar. „Það er svo spurning hvort fólk er svo gífurlega hrifið af því að verzla á þessum tima,” sagði Hörður enn- fremur. ,,Það hefur verið reynt að hafa opið á öðrum tímum, t.d. til kl. tíu á föstudagskvöldum, en það hefur fólk ekki viljað nota sér. Ég er ekki viss um að út úr þessu komi nein verzlun að ráði. Ég held að þetta sé einfaldlega liður í sunnudagsbíltúrum fólks, sem heldur að eitthvað nýtt sé á ferðinni, þegar sýningar eru aug- lýstar.” Björgvin Guðmundsson: „Ekki meiríhluti fyrír algjöru frelsi...” „Það hefur komið í ljós við könn-; un á áliti borgarfulltrúa, að meiri- hluti er ekki fyrir því að gefa opnun- artíma verzlana frjálsan hér í Reykja- vík,” sagði Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi, en hann er formaður nefndar sem falið var að kanna af- greiðslutímamálin yfirleitt. í nefnd- inni meö honum eru þau Adda Bára Sigfúsdóttir og Markús örn Antons- son. „Við emm því að vinna að því nú að leggja fram tillögur um breytingar á reglugerö varðandi þessi mál,” sagði Björgvin ennfremur. „Hug- myndir eru uppi um að rýmka af- greiðslutímann verulega og setja kaupmönnum töluvert sjálfsvald í þeim efnum. T.d. hefur verið rætt um að leyfa stórmörkuðum að hafa opið lengur fram á síðdegið á laugar- dögum, að færa afgreiðslutímann til kl. 22 á föstudögum yfir á fimmtu- daga og rýmka verulega kvöldsöluna. Þessi mál em sem sagt í verulegri endurskoðun núna.” Réttur dagsins: Sfld með rauðrófum 3 marineruð sildarflök 1 dós sýrður rjómi 1 epli 3 sn.rauðrófur Uppskrift dagsins 1 msk. sítrónusafi 1 msk. sykur. Efni í uppskrift: ca 450 kr. Þerrið síldarflökin og rauðróf- urnar. Skeriö síldarflökin f bita, eplið og rauðrófurnar í teninga og blandið í sýrða rjómann ásamt sykri og sítrónusafa. Berið fram vel kælt. Gott með rúgbrauði og kartöflu- salati.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.