Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 15
Nýja Mannakomaplatan
heitir Brottfór klukkan 8
Vinnslan ístúdíói tókyfir þrjú hundruð tíma
heldur áfram nokkrar helgar til
viðbótar.
Mannakorn hafa áður sent frá sér
tvær LP plötur, í gegnum tíðina og
Mannakorn.
Brottförklukkan8. —————— 1 . ■ ■ ...........................................■■■■"■■...........—
Næsta plata Mannakoma er í
vinnslu erlendis um þessar mundir. Að
sögn útgefandans er stefnt að því að
hún komi út seinni partinn í apríl.
Nafn plötunnar hefur verið ákveðið,
Guðmundur Ingólfsson og Halldór
Pálsson, saxófónleikari.
Áformað er að Mannakorn taki til
starfa á ný í maíbyrjun og leiki þá á
skemmtistöðum um einar fjórar helg-
ar. Að sögn Björns Valdimarssonar
hjá Fálkanum verða „helztu staðir”
úti á landi heimsóttir auk þess sem
leikið verður sunnanlands. Síðan
verður látið ráðast, hvort hljómsveitin
MAGNÚS EIRÍKSSON Manna-
kornaforingi á Stjörnumessu Dag-
blaðsins og Vikunnar. Þar veitti hann
viötöku verðlaunum fyrir aö hafa
samiö lag ársins 1978.
DB-mynd Árni Páll.
„Þetta er langvandaðasta plata
Mannakorna til þessa, enda tók hún
langan tíma í vinnslu,” sagði Björn
Valdimarsson hjá hljómplötudeild
Fálkans, sem gefur plötuna út.
„Vinna við plötuna hófst í ágúst
síðastliðnum. Alls fóru í hana rúmlega
þrjú hundruð tímar í stúdíói.”
Á Brottför klukkan 8 eru tíu lög.
Aðallagasmiður Mannakoma er
Magnús Eiríksson, sá kunni tónlistar-
maður. Aðrir í hljómsveitinni eru
Baldur Már Arngrímsson, Björn
Björnsson og Jón Cortes, bassaleikari,
sem leysir Pálma Gunnarsson af
hólnii.
Pálmi hefur þó aldeilis ekki sagt
skilið við gömlu félagana þvi að á
Brottför klukkan 8 syngur hann þrjú
lög. Þá kemur Ellen Kristjánsdóttir,
söngkona Poker nokkuð við sögu.
Hún syngur þrjú lög til viðbótar.
Aðrir aukamenn, sem koma við sögu
Brottfararinnar eru píanóleikarinn
JAZZPLATA JAKOBS
VÆNTANLEG UM
NÆSJV MÁNAÐAMÓT
Breiðskífa Jakobs Magnússonar,
sem hann hefur verið að vinna að
undanfarna mánuði í Los Angeles í
Bandaríkjunum var væntanleg á
markaðinn um mánaðamótin
marz/apríl síðast þegar fréttist. Upp-
haflega var miðað við að hún kæmi út
í byrjun febrúar, en útgáfunni hefur
verið frestað tvisvar síðan.
Hljómsveitin Wings
seturígang
Lítilplata erað koma út ogstóráleiðinni
Hljómsveitin Wings er vökn-
uð til lífsins á ný. Ef ekkert hefur
farið úrskeiðis er einmitt um
þetta leyti að koma út með
hljómsveitinni tveggja laga
plata. Stór plata er á leiðinni og
kemur út síðla vors eða snemma
sumars og loks stendur fyrir
dyrum heljarmikið hljómleika-
ferðalag, — hið fyrsta síðan
Wings bættist liðsauki á síðasta
ári.
Liðsfólk Wings er nú að leggja
síðustu hönd á upptöku LP plöt-
unnar nýju. Hún er sú fyrsta
sem þeir Steve Holly trommu-
leikari og gítaristinn Lawrence
Juber leika inn á. Þeir eru þó
einnig með á litlu plötunni. Á
henni eru tvö lög, Goodnight
Tonight og Daytime Nightime
Suffering. Hið fyrrnefnda er
aðallag plötunnar. Hvorugt
þeirra verður á stóru plötunni.
Ekki er komin dagsetning á
hvenær hljómleikaferð Wings
hefst og hve vítt á að fara. Paul
McCartney mun hins vegar vera
að velta því fyrir sér að leika
bæði í stórum og litlum hljóm-'
leikasölum auk þess að troða
jafnvel upp i danshúsum. Minni
hljómleikarnir verða þá jafnvel
ekki auglýstir, heldur látið spyrj-
ast að Wingsséu á leiðinni. Þetta
er svipuð aðferð og Rolling
Stones viðhöfðu í Bandaríkjun-
um í fyrra.
ÚrMELODYMAKER.
Jakob mun nú vera kominn fram
fyrir bæði tíma- og peningatakmark-
anir þær, sem hann átti að halda sig
innan. En yfirmenn hans hjá Warner
Brothers gáfu honum frjálsar hendur
með að halda áfram verkinu, svo að
eitthvað virðist vera í það spunnið.
Á plötu Jakobs leika með honum
sömu menn og sáu um hljóðfæraleik á
plötunni Jobbi Maggadon. . .. sem út
kom hér á landi fyrir síðustu jól, að
viðbættum nokkrum bandarískum
sessionleikurum, sem Jakob hefur
ráðið eftir hendinni.
Ráðgert er að Jakob og hljómsveit
hans fari í hljómleikaferð fljótíega eftir
að nýja platan kemur út. Ekki er víst
um, hvort hljómsveitin kemur fram
sem aðal- eða aukanúmer á þeim
hljómleikum. Sumir hljóðfæraleikarar
verða árum saman að leika á undan
þeim stóru áður en þeir ávinna sér
nafn sjálfir. Sem dæmi má nefna
gítarleikarann Larry Carlton, en hann
starfar einmitt hjá Warner Bros eins
og Jakob. Hann er nýfarinn að troða
upp sem aðalmaður á hljómleikum,
þó að hann eigi að baki margra ára
starf, t.d. með Steely Dan.
W WINGS -
Hljómsveitin full-
skipuð sendir nú
frá sér bæði litla og
stóra plötu, auk
þess sem verið er
að skipuleggja við-
tækt hljómleika-
ferðalag. Komið
verður við bæði i
stórum og litlum
hljómleikasölum,
auk þess sem leikið
verður á dansstöð-
um. í Wings eru
nú, talið frá vinstri,
Steve Holly,
Denny Laind,
Linda McCartney,
Paul McCartney
og Lawrence
Juber.
JOHN MILES hefur ekki látið frá sér
heyra um átján mánaða skeið.
JAKOB MAGNÚSSON — YBr-
mönnum Warner Bros. virðist lika svo
vel það sem Jakob hefur verið að gera
að hann fær grænt Ijós þrátt fyrir að
hann sé kominn fram yfir tfma- og fjár-
magnstakmarkanir.
JOHNMILES
LÆTURFRÁ
SÉRHEYRA
John Miles, sem íslendingum er
að góðu kunnur frá tveimur heim-
sóknum fyrr á árum, hefur ekki
verið mikið í fréttum undanfarið, en
er þó með sæmilegu lifsmarki. Hann
lauk nýlega vinnu við nýja LP plötu,
sem kemur væntanlega út í lok þessa
mánaðar. Platan sú ber nafnið More
Miles Per Hour.
Plata þessi var hljóðrituð í Frakk
landi undir verkstjóm Alan Parsons.
1 kjölfar útkomu hennar fer John
Miles ásamt hljómsveit sinni i hljóm-
leikaferð um England. Hann hefur
ekki haldið hljómleika um átján
mánaða skeið, svo að mörgum þykir
áreiðanlega timi til kominn að hann
láti frá sér heyra.
Úr MELODY MAKER