Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 2
2,
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979.
Vi
Ánægðír með Skonrokk
vilja meira punk, Kiss og Queen
Kissaðdáendur skrii'si:
Við viljum bvrja á því að þakka
fyrir Skonrokkþátt sjónvarpsins.
Hann mætti reyndar vera oftar á
dagskrá. Þorgeir Astvaldsson er frá-
bær stjórnandi og ætti hann að halda
sig að miklu leyti við nýbylgjutónlist í
þáttunum. Einnig sakaði ekki að fá
fleiri punkhljómsveitir. Okkur langar
til að vita hvort ekki er til efni með
hljómsveitunum Kiss og Queen, þvi
þær eru mjög vinsælar hér á landi.
Að lokum: Væri ekki hægt að endur-
sýna þáttinn Boom Town Rats? Sú
hljómsveit var ekki svo ýkja vel þekkt
hér þegar þátturinn var sýndur.
Margir álíta meðlimi hljómsveit-
arinnar Queen konunga popptónlist-
aridag.
RAGNHEIÐUR
Laugardagsfár útvarpsins
—einhæf ur f lutningur danslaga
Ingibjörg Jónsdóttir hringdi:
Mig langar til þess að fara þess á
leit við útvarpið að það leiki fyrir
okkur fjölbreyttari danstónlist á
laugardagskvöldum. Nú heyrir
maður varla annað en danstónlist
fyrir unga fólkið, einhverja æðislega
popptónlist. En það eru bara fleiri en
unga fólkið sem hlusta á danslögin á
laugardagskvöldum. Við eldra fólkið
vildum gjarnan fá eitthvað við okkar
hæfi, s.s. harmónikutónlist oggömlu
góðu lögin, sem hægt er að dansa
eftir. Mig langar til þess að stinga
upp á því að Pétur Pétursson þulur
verði látinn velja þessi lög. Hann fet-
ar nefnilega vel milliveginn á
morgnana. Spilar lög fyrir alla
aldursflokka.
Einnig langar mig að spyrja hvort
nauðsynlegt sé að þylja sömu
fréttirnar á klukkutíma fresti á
morgnana. Er ekki nóg að þylja
fréttir á tveggja tíma fresti ef það eru
sömu fréttirnar. Ef aftur á móti nýjar
fréttir berast, mætti skjóta þeim inn
i.
»
Hvernig væri að fá Pétur Pétursson
til þess að velja danstónlist út-
varpsins á laugardagskvöldum?
Dreifingarklúbbur
Dagbiaösins og Vikunnar.
Um leiö og þú byrjar að bera Dagblaðið út til
kaupenda á höfuðborgarsvæðinu, eða selja
annað hvort Dagblaðið eða Vikuna gerist þú
félagi í Dreifingarklúbbi DB og Vikunnar.
Fyrir það færð þú að sjálfsögöu þín laun, en
auk þess skorar þú mörk í dreifingarkeppn-
inni standir þú þig vel.
Fyrir mörkin sem þú skorar færðu viður-
kenningarseóil. Seðlunum safnar þú og
þegar þeir eru orðnir nógu margir skiptir þú á
þeim í afgreiðslu blaðanna og þeim verð-
launagrip sem þú kýst þér úr sýningar-
skápnum.
Hér á myndinni sérðu nokkra af verðlauna-
gripunum, en þeir eru miklu, miklu fleiri.
Komdu á afgreiðsluna í Þverholti 11, líttu í
verðlaunaskápinn og fáðu þetta allt saman
útskýrt frekar. Þórunn, Júlía eða írena segja
þér allt sem þú þarft að vita ætlir þú að dreifa
Dagblaóinu, en Anna eða frena ef þú ætlar
að selja Vikuna.
Afgreiðslan er í Þverholti 11, rétt hjá Hlemm-
torgi.
Eininga-
vísur
— urðu til vegna f réttar
ÍDB
Verði ég eitt sinn á varirnar kysst....
Nesjari skrifar:
Kynlíf og kossar eru mjög
megrandi, var fyrirsögn afar
glæsilegrar fréttagreinar i Dag-
blaðinu 22. marz sl. Vegna þessa
stórmerku tiðinda urðu til eftirfar-
andi einingavísur:
Dagblaðið oft með fréttirnar fyrst
framúrskarandi greiningar
verðiégeitt sinn á varirnar kysst
vantar 12 hitaeiningar.
Þarviðbætistþetta oghitt
þar má allt fara til leyningar
hamagangurinn heimtar nú sitt
hann fer í 300 einingar.
Tvisvar í viku er talið fínt
til að verjast ofreyningar
trútt eftir árið þá tölvan sýnt
rúmar 20.000 einingar.
Kyssist oft hjónin með
kroppleikjum flott
kemur út árið til meiningar.
Þá munu upp brenna
og þykirvist gott
32.000 einingar.
Ef fitan bölvuð þig festist á
færa vilt kroppinn strax í lag.
Heillaráð til að horast þá
hafa samfarir tvisvar á dag.
-l