Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979. 12 I Iþróttir iþróttir Iþróttir Salómonsdómur KKI — ákvað í gær að Valur skyldi leika við KR. Haf naði beiðni Valsmanna um að leika við ÍR, þrátt fyrir skeyti FIBA Körfuknattleikssamband Islands felldi i gœr mikinn salómonsdóm þegar beifini Valsmanna um að endurtaka taplcik félagsins við ÍR var tekin fyrir. KKÍ úrskurfiaði að sá leikur skyldi ekki endurtekinn en bæði félög, Valur og ÍR, höfðu lýst sig fús til að leika aftur. Mikil mistök áttu sér stað í skýrslugerð. ÍR-ingum voru vanreiknuð tvö stig en það kom ekki fram á Ijósatöflu. Þar kom fram að Valur hafði yfir — Vals- menn héldu knettinum síðustu 49 sekúndur leiksins í vissu um að vera yfir. Þeir fögnufiu síðan sigri — en mis- tökin komu siðar í Ijós. ÍR hafði sigr- að. Valsmenn kærðu þetta til KKRR og þar var ÍR dæmdur sigur, en ÍR-ingar lýstu því yfir að þeir teldu ekki rétt að úrslitin stæðu. Þeir væru reiðubúnir að leika aftur. Valsmenn kærðu áfram til dómstóls KKÍ. Þá lá fyrir skeyti frá FIBA — Alþjóða körfuknattleikssam- bandinu um að í svona tilvikum gæti stjórn KKÍ heimilað, ef bæði lið vildu, að endurtaka leikinn. Dómstóll KKÍ staðfesti dóm KKRR. Valsmenn sendu síðan stjórn KKÍ bréf þar sem þeir vildu að stjórn KKÍ úrskurðaði hvort Valur og ÍR fengju að leika leikinn aftur. KKÍ hafnaði í gær. Stjórn KKÍ hafnaði, þrátt fyrir að skeyti lægi fyrirfráFIBA um að í svona tilvikum þætti rétt að endurtaka leik- inn. Þrír stjórnarmenn greiddu því at- •kvæði að leikur Vals og ÍR færi ekki 2. deild kvenna Barátta f jögurra liða á toppnum — en ÍBK er í ef sta sæti Þótt hljótt hafi verið um keppnina i 2. deild kvenna i íslandsmótinu i hand- knattleik í vetur er nú undir lokin orðin hörkukeppni fjögurra af sjö liðum um tvö efstu sætin. Lið Keflavíkur stendur bezt að vígi, þegar 6 leikir eru eftir í deildinni, með 17 stig og einn leik eftir. Lið Grinda- víkur er með 15 stig og einnig einn leik eftir — við lið Keflavíkur og geta því Grindavíkurstúlkurnar náð stöllum sínum í Keflavík að stigum með sigri í þessum leik. En liði Keflavíkur nægir hins vegar jafntefli til sigurs í deildinni. Þetta er þó ekki nóg, þvi tvö önnur lið geta náð 17 stigum. Það eru ÍR- liðið, sem hefur nú 15 stig og á einn leik eftir, og Þróttar-liðið, sem hefur 11 stig en á þrjá leiki eftir. Þessi tvö síðar- nefndu lið eiga eftir að keppa sin á milli, svo að ekki getur nema annað hvort þeirra náð 17 stigunum. En þannig gæti þá farið, að þrjú lið yrðu jöfn að stigum. Raunar má telja afar líklegt að a.m.k. verði tvö lið um annað sætið og þar með réttinn til þess að leika við næstneðsta lið í 1. deild um sæti þar. Ef svo fer að þrjú lið verði um efsta sætið eða tvö um það næstefsta, verður að leika heima og heiman um röðina, svo að það gæti orðið tafsamt að ljúka keppninni. Athyglisvert er, að eitt af þessum fjórum liðum, sem berjast til sigurs, á eftir 3 leiki, en hin aðeins einn hvert. Það er Þróttar-liðið sem á eftir, auk leiksins við ÍR, leiki við Eyja-Þór úti í Eyjum, en hann átti að vera 3. marz, og við lið Njarðvíkur, en sá leikur finnst ekki í leikjaskrá! Óneitanlega sýnist þettaóhagstætt fyrir Þrótt. Staðan í deildinni er nú þessi: ÍBK 11 8 1 1 2 144:115 17 ÍR 11 7 1 I 3 166:120 15 UMFG 11 7 1 1 3 138:125 15 Þróttur 9 5 I 1 3 133:95 11 Þór Eyjum 10 4 0 6 118:131 8 UMFN 10 2 1 1 7 94:133 5 Fylkir 10 0 1 1 9 79:153 1 -herb. 1 m VESTURÞÝSKU LITSJÓNVARPSTÆKIN HAFA ALDREI VERIÐ ÓDÝRARI ITT VESTUR-ÞÝSKU UTSJÓNVARPSTÆKIN LF OG SJÁIÐ m Bræðraborgarstlgl-Slmi 20080 (Gengiöinn frá Vesturgötu) fram, heldur úrslitaleikur KR og Vals. Einn meðlimur stjórnar KKÍ vildi að Það hefur veríð hart barízt þegar KR og Valur hafa leikið saman í vetur. Á morg- un mætast þessi lið i úrslitum bikar- keppni KKÍ. leikur Vals og ÍR yrði endurtekinn. Þannig var ekki einhugur í stjórn KKÍ '— einn sat hjá. En af hverju neitaði stjóm KKÍ Val og ÍR um að leika? Valsmenn voru mjög óhressir eftir að ákvörðun stjórn- arinnar lá fyrir. Skiljanlegt — og senni- lega ræður mestu um ákvörðun KKÍ að sambandið fær 20% af aðgangseyri á viðureign Vals og KR — sem áreiðan- lega verður stór upphæð á mælikvarða févana sambands. Viðureign Vals og KR verður á morgun í Höllinni kl. 20.30 — sá „stærsti” leikur í körfu sem farið hefur fram hér á landi fyrr og síðar. Stjórn KKÍ var nokkur vorkunn að vilja ekki sleppa þessu tækifæri. Það er að láta Val og KR leiða saman hesta sína eftir þann mikla meðbyr sem karfan hefur haft í vetur. Viðureign Vals og KR yrði hápunkturinn á ákaflega vel heppnuðu tímabili. Tímabili þar sem karfan hefur alvarlega farið að veita þjóðaríþrótt ís- lendinga — handknattleik — sam- keppni. H.Halls. Aðeins slagur um 3ja sætið! —Týr þegar meistari og Afturelding í öðru sæti Eins og kunnugt er hefur lið Týs f Vestmannaeyjum þegar fyrir nokkru hreppt sigur í 3. deild karla í íslands- mótinu í handknattleik. Yfirburðir Týs-liðsins hafa verið verulegir og það aðeins tapað einu stigi, til liðsins sem tryggt hefur sér annað sætið í deildinni, en það er lið Aftureldingar. Hin 6 liðin í þessari deild hafa staðið þessum tveim talsvert að baki í stigasöfnuninni og miklar sveiflur verið i leikjum þeirra .flestra. Þó má segja að slagurinn sé ekki allur enn, þótt tvö efstu sætin séu frá og aðeins 4 leikir eftir í deildinni. Þrjú lið bitast um 3. sætið, sem a.m.k. „fræðilega” getur þýtt keppnisrétt um sæti í 2. deild! Þ.e. ef lið í efri deildun- um heltist úr lestinni fyrir næsta mót. Það er aldrei að vita! Staðan er nú þessi: Týr 13 12 1 0 285—223 25 UMFA 13 9 2 2 237—217 20 ÍA 12 6 0 6 243—226 12 Grótta 13 6 0 7 271—274 12 UBK 13 5 2 6 268—274 12 ÍBK 14 4 2 8 277—299 10 UMFN 13 3 1 9 253—275 7 Dalvík 13 2 2 9 264—310 6 -herb. Kubala velur gegn Rúmenum — Sporting Gijon íforustu á Spáni Ungverjinn Ladislao Kubala, sem þjálfar spánska landsliðið valdi 17 manna hóp til að mæta Rúmenum í Craiova i næstu viku. Real Madrid, Barcelona og Athletic Bilbao eiga þrjó leikmenn, hvert félag. En spánski landsliðshópurinn er, markverðir — Arconanda, Real Sociedad, Urruticoe- chea Espanol. Aðrir leikmenn, Felipe Las Palmas, Migueli Barcelona, Alesanco Athletic Bilbao, Saj Jose Real Madríd, Perez Atletico Madrid. Cunde Sporting Gijon, Asensi Barce- lona en hann er fyrírliði, Del Bosque Real Madrid, Saura Valencia, Villar Athletic Bilbao, Quini Sporting Gijon, Cano Atletico Madríd, Heredia Barce- lona, Santillana Real Madríd og Dani Athletic Bilbao. Um helgina fór fram ein umferð á SKÍDHDEILD Skíða- kennsla Einkatímar, fjölskyldu- tímar og almennir tímar. Kennari: Ágúst Björnsson. Uppl. í símum 31295, 33242 og í Skíðaskála ÍR í Hamragili. Skíðadeild ÍR. Spáni í I. deild. Sporting Gijon heldur enn forustu sinni eftir 2—0 sigur á Mario Kempes, Rainer Bonhof og félögum þeirra hjá Valencia. Real Madrid sigraði Recreativo 2—1 á úti- velli en Barcelona tapaði fyrir Burgos, 1—0. Las Palmas er nú í fjórða sæti en tapaðií Bilbao, 3—0. Staða efstu liða er: Sporting Gijon 25 15 5 5 40-22 35 Real Madrid 25 11 12 2 44-29 34 Atletico Madrid 25 10 10 5 44-30 30 LasPalmas 25 II 7 7 38-31 29 Barcelona 25 12 3 10 37-31 27 Rangers sigraði St. Mirren — á Paisley, 2-1 Einn leikur fór fram í gærkvöld í skozku úrvalsdeildinni — Rangers sigraði St. Mirren á Paisley 2—1 og komst Rangers við það upp I annað sætið með 30 stig — stigi á eftir Dundee United, sem leikið hefur tveimur leikj- um meira. St. Mirren er nú I þríðja sæti með 29 stig. En staðan í Skotlandi er: DundeeUtd 26 12 7 7 37—27 31 24 11 8 25 12 5 25 8 10 Rangers St. Mirren Aberdeen Morton Hibernian Celtic Partick Hearts Motherwell 26 25 20 23 22 25 9 8 7 11 9 5 8 7 6 6 4 5 5 32—22 30 8 36—27 29 7 43—26 26 9 38—39 26 7 29—29 25 6 29—22 23 8 23—22 23 10 29—42 18 16 22—52 13 Iþróttir Iþr Malcolm MacDonald á æfingu I Stokkhólmi n með honum Tommy Bergren. ,SuperM inn til S’ — hef ur haf ið æf ingar < sem hann mun lc Malcolm MacDonald, ,,Super-Mac” eins og hann er kallaður á Englandi, hefur byrjað æfingar með sænska liðinu Djurgarden en hann mun leika með Djurgarden í Allsvensk- an í sumar. „Super-Mac” vonast til að ná sér fullkom- lega af meiðslum og hyggst leika í Allsvensk- an í sumar svo hann verði í góðu formi þegar enska deildin byrjar aftur i haust. Hann verður í láni frá Lundúnafélaginu Arsenal í sumar. Birmingi sér af b< — með 1-0 sigrigegnl Birmingham City vann þýðingarmikinn sigur í baráttu fyrir tilverurétti sínum í 1. deild er Birmingham sigraði Norwich 1—0 á St. Andrews í Birmingham. Með sigri sínum gegn Norwich lyfti Birmingham sér úr neðsta sæti 1. deildar — Chelsea vermir nú það sæti. Don Givens skoraði eina mark leiksins á St. Andrews og tryggði liðinu hin þýðingar- miklu stig. Þrátt fyrir sigur, aðeins fimmta sigur Birmingham í vetur, er staða liðsins vonlítil. Þrjú neðstu liðin falla í 2. deild. Staða neðstú liða er nú: Bolton 30 9 Derby 32 9 Wolves 31 9 QPR Birmingham Chelsea 31 4 Úlfarnir hrepptu einnig dýrmæt stig i gær- kvöld — jafntefli á Molyneux gegn Manch- ester City. Willie Carr náði forustu fyrir Úlf- ana en völlurinn í Wolverhampton var ákaf- lega erfiður vegna aurs. Joe Corrigan hélt City á floti og 15 mínútum fyrir leikslok jafnaði Mike Channon — 7. mark hans í níu leikjum. Hefur blómstrað eftir að Malcolm Allison kom til City. Úlfarnir mæta Arsenal á laugardag í undanúrblitum Bikarsins — og greinilegt að leikmenn höfðu nokkuð hugann við þá viðureign. Manchester United mætir Liverpool á laugardag en það kom ekki í veg fyrir að United hlyti stig á Ayresome Park í Middles- brough, 2—2. Middlesbrough hafði yfir, 2— 0 í leikhléi með mörkum David Armstrong, úr víti og Mark Proctor. En United skoraði tvívegis í siðari hálfleik. Fyrst Gordon McQueen og síðan Steve Coppell. En lítum áúrslitin áEnglandi í gærkvöld: Birmingham—Norwich 1—0 Middlesborough—Manch. Utd. 2—2 Wolves—Manch. City 1 — I 2. deild Charlton—Crystal Palace 1 — 1 Notts County—Cardiff 1 —0 Orient—Fulham 1—0

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.