Dagblaðið - 28.03.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1979.
BORGARDÓMUR STYÐUR LÖGIN
UM JÖFN LAUN KVENNA OG KARLA
V.
en ríkissjóður áf rýjar til Hæstarettar
Jafnréttisráð hefur nú unnið sitt
fyrsta mál fyrir dómstólunum. Eins
og nýlega var sagt frá hér í blaðinu
voru málavextir þeir, að Sóknarkona
ein, Guðrún Emilsdóttir, vildi ekki
una því að fá lægra kaup en karl-
menn sem unnu sömu störf og hún á
Kópavogshæli. Þeir báru starfsheitið
gæzlumenn og voru á BSRB-taxta.
Jafnréttisráð tók kröfu hennar upp,
og eftir að bréfaskriftir til fjármála-
ráðuneytisins, sem greiðir laun starfs-
fólks á Kópavogshæli, höfðu engan
árangur borið, var málið lagt fyrir
borgardóm Reykjavíkur. Það var
prófmál að því leyti, að fengi Guðrún
Emilsdóttir kröfu sína viðurkennda,
mundu Sóknarkonur, sem vinna á
Kópavogshæli og Kleppsspítala, eiga
rétt til sömu kjarabóta. Þær eru tals-
vert á annað hundrað.
Dómur var kveðinn upp i fyrradag
og var dómsorðið á þessa leið:
„Krafa Jafnréttisráðs fyrir hönd
Guðrúnar Emilsdóttur er viður-
kennd á þann veg, að Guðrún eigi
rétt á, að um kjör hennari fari að
sömu meginreglum og kjör þeirra,
sem vinna undir starfsheitinu gæzlu-
maður við geðhjúkrun á Kópavogs-
hæli. Stefndi, fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs greiði stefnanda,
Guðrúnu Emilsdóttur kr. 450.000
með 19% ársvöxtum frá 30. marz
1978 til greiðsludags.”
Þess má geta að dagsetningin 30.
marz 1978 er miðuð við þingfestingu
málsins.
Aðaldómari í málinu var Hrafn
Bragason, en meðdómendur
Sigurður Líndal og Guðríður Þor-
steinsdóttir.
Jafnréttislögin
viðurkennd
,,Við fögnum þessum úrslitum,”
sagði Bergþóra Sigmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs,
,,og erum mjög ánægð með þennan
dóm. Við teljum, að hér hafi rétt-
lætið náð fram að ganga.
Við höfum nú unnið okkar fyrsta
sigur fyrir dómstólunum og fengið
viðurkenningu á lagagrein nr.
2/78/1976, en þar segir svo: Konum
og körlum skulu veittir jafnir mögu-
leikar til atvinnu og menntunar og
greidd jöfn laun fyrir jafn verðmæt
og sambærileg störf.”
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Sóknar, tók í sama streng.
„Þetta verður kjarabót fyrir talsvert
á annað hundrað Sóknarkonur, sem
eru í sömu aðstöðu og Guðrún Emils-
dóttir,” sagði hún. „Við erum mjög
glaðar yfir þessum dómsúrslitum. Ég
tel, að málið hafi verið ákaflega vel
unnið, bæði frá hendi Jafnréttisráðs
og þess lögfræðings, Jóns Steinais
Gunnlaugssonar, sem sótti það. Ég
efast ekki um, að dæmi Hæstiréttur
eins, þá eigi þetta mál eftir að hafa
mikil áhrif.
Nóg er til af óréttlætinu, sem þarf
að laga,” sagði Aðalheiður að
lokum.
Máliðfertil
Hæstaréttar
DB hafði ennfremur samband við
Gunnlaug Claessen, deildarstjóra
eigna- og málflutningsdeildar í fjár-
málaráðuneytinu. „Ég var rétt að
heyra um niðurstöðu borgardóms og
hef enn ekki fengið forsendumar
fyrir dómnum, svo ég get ekki mikið
sagt um málið ennþá. Þó er hægt að
ganga út frá því, að við munum
áfrýja málinu til Hæstaréttar. Þessi
dómur hefur mikla fordæmisþýð-
Þegar jafnréttislögin voru sett vildu ýmsir halda þvi fram, að þau væru orða-
gjálfur og varla meira virði en pappírinn, sem þau voru prentuð á. En niður-
staða borgardóms i fyrradag er spor í áttina til að bæta hag verkakvenna, enda
er Bergþóra Sigmundsdóttir hjá Jafnréttisráði sigurhress á svip. DB-mynd: H
ingu, ekki aðeins fyrir ríkið, heldur
einnig fyrir aðila vinnumarkaðarins.
Þarna stangast á tvö sjónarmið,
annars vegar jafnréttislögin og hins
vegar meginreglur um forræði hvers
stéttarfélags á sínum eigin kjara-
samningum,” sagði Gunnlaugur.
IHH.
Engin læknisskoðun í Menntaskóla Kópavogs
Ráðuneytið úrskurðar um verð
Jóni L.
boðið á
skákmót
íPóllandi
Jóni L. Árnasyni hefur verið
boðið að taka þátt í 16 manna al-
þjóðlegu skákmóti sem haldið
verður í Póllandi í ágúst næst-
komandi. Er þetta sextánda
minningarmót skákmeistarans
Rubinsteins og verða keppendur
frá 10 löndum. Að sögn Einars S.
Einarssonar formanns berast
Jóni L. mjög mörg tilboð eftir að
hann varð heimsmeistari sveina.
Mót þetta er það fjölmennt að ef
Jón L. næði þar tilskildum
árangri þá nægði sá árangur
honum til að hljóta alþjóðlegan
meistaratitil en að undanförnu
hefur Jón oft aðeins vantað
herzlumuninn í þann árangur.
-GAJ-
Landhelgisbrot
Fjölnis
kostaöiá7.
milljón
Skipstjórinn á Fjölni GK 17 var
í Sakadómi Grindavíkur í gær-
morgun dæmdur í milljón króna
sekt og að auki voru veiðarfærj
gerð upptæk, en verðmæti þeirra
var talið vera um 5.2 milljónir kr.
Að auki greiðir skipstjórinn máls-
kostnað.
Skipstjórinn viðurkenndi brot
sitt um veiðar áalfriðuðu svæði á
Selvogsbanka, en bar fyrir dómi
að hann hefði ekki vitað um út-
færslu friðaða svæðisins til
austurs. Var báturinn kominn
með 8 netatrossur í sjó er varð-
skip kom að honum. -ASt.
Maður
undir lyftara
áHöfn
Maður varð undir lyftara á
Höfn í Hornafirði fyrripartinn á
sunnudaginn. Hann var fluttur á
slysadeild Borgarspítalans í
Reykjavík og þaðan á gjörgæzlu-
deild þar sem hann liggur nú.
Maðurinn var illa brotinn en ekki
talinn í lífshættu. Líðan hans í
gærdag \ar sæmileg eftir at-
vikum.
-DS.
Miklar áhyggjur bæjarráðsmanna í
Kópavogi komu fram á fundi þeirra
fyrir nokkrum dögum af því að engin
læknisskoðun hafði farið fram í
Menntaskólanum í Kópavogi þetta
skólaár. Var þess krafizt að Mennta-
málaráðuneytið sæi til þess að eðli-
legri heilsugæzlu yrði komið á við
skólann hið bráðasta.
DB sneri sér til Ingólfs Þorkels-
sonar skólameistara Menntaskólans í
Kópavogi og spurði hann um ástæðu
þess að nemar hefðu ekki verið skoð-
aðir. Sagði hann að undanfarin þrjú
ár hefði hjúkrunarkona skoðað
nemendur en núna hefði verið sett
upp svo hátt vérð fyrir þjónustu
hennar að honum hefði þótt ástæða
til þess að senda Menntamálaráðu-
neytinu bréf þar sem farið var fram á
úrskurð þess í því hvað hæfilegt væri
að greiða. Það er heilsugæzlustöðin í
Kópavogi sem sendir hjúkrunarkon-
una samkvæmt nýjum lögum og
sagði Ingólfur dýrara að fá hana
hetdur en verið hefði undanfarin ár
að semja við hjúkrunarkonu úii i bæ
sérstaklega. Þar til ráðuneytið úr-
skurðar i málinu verða nemendur
ekki skoðaðir.
-DS.
Hver annar en BINATONEgetur boðið
stereoútvarpstæki með kassettuseguibandi
á svipuðu verði og mono.
Verðkr. 119.720
V- LW MW SW VHF -
MW/SW/LW/VHF MPX
STEREO RADIO
CASSETTE RECORDER
2'S’S’XíX
PAiJSE tjttí
ft PtOMI MtN t4AX
BALAMCE VOLUMl:
...
uiuTTTl
Þú ættir að kynna þér
þetta stórglæsilega stereoútvarpstæki með kassettubandi.
ER TIL BETRIFERMINGARGJÖF?
w
D i. . i
Kdaiooær
i r
ÁRMÚLA 38 (Selmúla megin) - 105 REYKJAViK
SÍMAR: 31133 - 83177 PÓSTHÓLF 1366