Dagblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. MAl 1979. I Vandræðaástand á Kópavogshæli — ekki ráðinn mannskapur ístað þess sem hættir Einn sem á börn á Kópavogshæli skrifar: Nú á barnaári datt mér í hug að vekja athygli á því að það eru viða gleymd börn, þetta segi ég vegna þess að svo virðist sem þau börn sem alltaf verða börn, og á ég þar við hin van- gefnu er dveljast á hælum, svo sem Kópavogshæli, virðast hafa gleymzt í kerfinu. Á barnadeild Kópavogshælis hefur verið fækkað starfsfólki um nær þriðjung frá sl. áramótum. Til að annast þessi börn svo að vcl sé þarf mikið starf að vinna svo að þau geti lifað eðlilegu lifi og öðlazt þann þroska er greind þeirra leyfir. Svo viröist komið að forstöðu- menn hælisins verði að grípa til þess neyöarúrræðis að útskrifa börnin um tíma, það þýðir að senda verður þau heim til foreldra. Það geta allir séð hvaða erfiöleikum það getur valdið þessum börnum sem flest hafa dvalizt á hælinu í mörg ár og fengið þar meðferð og þjálfun. Foreldrar þessara barna hafa e,kki látið þau frá sér nema í algjörri neyð og hafa þar af leiðandi ekki þjálfun eða reynsli lil að annast þau sem skyld: i heimahúsum. Þær upplýsingar hefi ég fengiö að ástæðan fyrir þessari fækkun á starfsfólki sé sú að ráðningar um- fram heimildir í fjárlögum höfðu fengizt fyrir áeggjan sérfræðinga hælisins. Þeir töldu þær nauðsyn- legar og þær fengust fyrir skilning forráðamanna ríkisspítalana, en nú hefur fjárveitingavaldið bannað allar umframráðningar og heimtað niður- skurð. Því var gripið til þess ráðs að ráða engan í stað þeirra er hættu störfum. Með þessu móti stefnir að því að Kópavogshæli getur ekki talizt þjálf- unar- eða meðferðarstofnun heldur aðeins geymslustofnun. Ég hefi kynnt mér aðrar meöferðarstofnanir. Er t.d. 1,8 starfsmaður á hvern vistmann á geð- deild Barnaspítala Hringsins og sums staðar meira en á barnadeild Kópa- vogshælis er 0,7 til 0,8 starfsmaður á Elzti kjarni Kópavogshælisins. vistmann. Þetta verður að leiðrétta strax ef halda á hinu góða og fórn- fúsa starfsfólki. Nú er á ferðinni frumvarp til laga um aðstoð við þroskahefta. Við lestur þessa frumvarps má sjá að það er verið að samræma þessa ríkisað- stoð á ýmsan hátt og víkka verksvið laganna frá fyrri lögum sem heita lög um fávitastofnanir. í sambandi við heildarlöggjöf fyrir þroskahefta datt mér i hug hvort orðið fáviti eða vangefinn væri ekki orðið nógu fínt, og svo á að setja undir sömu lög jafnt blinda, heyrnar- daufa og fatlaða sem og vangefna. Þarna er ég hræddur um að hinir vangefnu verði útundan í þessu þjóð- félagi sem hinir ýmsu þrýstihópar virðast ráða að mestu. í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir því að aðalhæli ríkisins, Kópavogs- hæli, verði ekki lengur afgerandi um neinn þátt í kerfinu heldur skal stofna nýtt bákn (báknið burt) með öllum sérfræðingum og kalla greiningarstöð. Meðan allar reglugerðir um van- gefna eða þroskahefta eru ekki nálægt því að vera fjármagnaðar af Alþingi sé ég ekki annað en þetta frumvarp verði bara pappírinn einn því það kemur til með að kosta ríkis- sjóð milljarða ef það verður samþykkt óbreytt. Ég vonast til þess að þessar linur verði fleirum til umhugsunar og ýti fram á ritvöllinn um þessi málefni. Ráðningar f lugfreyja —aðeins hægt að ráða lítinn hluta umsækjenda Már Gunnarsson, starfsmannastjóri Flugleiöa, skrifar: Það tíðkast ekki hjá Flugleiðum að fjalla á síðum dagblaðanna um hæfni umsækjenda til starfa, hvort sem um er að ræða flugfreyjustörf eða önnur störf hjá félaginu. Um flugfreyju- störf sækja fjölmargir ár hvert og einungis'er hægt að ráða lítinn hluta þeirra sem til greina koma. Ráðning- ar og mat á umsækj.'.nda til starfs eru þess eðlis að fyllsta trúnaðar bera að gæta. Lei'../t er við að vanda val starfsmanna eftir þvi sem við verður komið. Óski fyrirspyrjandi frekari upplýsinga um ráðningarfyrirkomu- lag félagsins þá er honum velkomið að koma á skrifstofu starfsmanna- stjóra til frekari fróðleiks. Ráðningarskrifstofa Flugleiða er á aðalskrifstofu Flugleiða á Reykja- víkurflugvelli, I. hæð. MEÐHÖNDLUN PÓSTPAKKA —f rímerki skemmd og pakkar illa farnir Magnús Óskar Magnússon skrifar frá Noregi: Eitt af mínum áhugamálum eru frí- merki, söfnun þeirra og hugsanlegur tilgangur með þeim. Frá einu sjónar- horni er æskilegt að sem mest af þeim lendi beint í ruslakörfunni, það gefur þeim hlutanum sem sleppur við eyði- legginguna meira fjárhagslegt gildi. Hvort þetta er ástæðan fyrir því að svo illa er farið með þessa litlu brél'- snepla, sem geta veitt ómælda ánægju og uppbyggilegan fróðleik fyrir hvern einstakan um viða veröld og geta m.a. verið stórkostleg þjóðar- og landkynning út á við, veit ég ekki. Nú sem stendur bý ég ásamt fjöl- skyldu minni í Noregi. Fáum við pakkasendingar af og til, með fri- mcrkjum utan á. Það sem mér dettur oft i hug, þegar við fáum pakkann i hendur, er í hverju hefur pakkinn lent, slíkt er útlit pakkans og FRÍ- MERKJANNA oft á tíðum, rifin og illa farin. Ekki er hægt að kenna tækninni eða öðrum dauðum hlutum um allt saman. Ég ætla mér ekki að dæma einn eða neinn fyrir með- höndlunina. Ég ætla aðeins að leyfa mér að spyrja, hvort ekki sé hægt að rifja upp gamla, góða bón um að meðhöndla þessa litlu bréfsnepla, sem kallast frimerki, með það í huga að milljónir manna um allan heim safna þeim og hafa mikið yndi af. Við skulum vona að í framtíðinni fái frímerkjasafnarar um allan heim að njóia glæsilegra. listaverka af ís- len/kum frimerkjum Þökk sé fjölþættum listamönnum lands vors, og póstsijórnarmönnum, fyrir fra nlag þeirra til landkynningar og skapandi tómstunda með útgáfu fallegra islenzkra frimerkja. Að lokum vil ég þakka annars ágæta póstþjónustu og bið ykkur vel að lifa. ENN UM SPARNAÐ — ráðleggingar til útvarpsins Ónafngreindur hringdi: Nú er um það rætt að útvarp og sjónvarp séu í ægilegu fjársvelti og geri ég ráð fyrir að það sé rétt. Aftur á móti er lítið talað um sparnað og vil ég bæta úr því. Legg ég því eftirfar- andi til: 1. Að morgunleikfimin sé aðeins einu sinni hvern morgun. Ég hef reyndar aldrei skilið þörfina á tveimur þáttum sama morguninn. 2. Að miðar á hljómleika sinfóníu- hljómsveitarinnar verði hækkaðir um 100% og að útvarpið lækki framlag sitt til hennar, einnig að innlendir stjórnendur verði látnir um hljómsveitarstjórn. 3. Að í sjónvarpinu verði sami þulur látinn lesa fréttir og veður- fréttir. Það getur varla verið svo mikið álag. 4. Að aðeins einum manni, en ekki tveimur eða þremur, verði falin umsjón ýmissa þátta útvarps og sjónvarps. Hlustaö af athygli. DB-mynd Bj.Bj. Ung stúlka þreytir hér flugfreyjupróf. Raddir lesenda

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.