Dagblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 28
Tjaldanesmálið:
Gaf landlækni glögga
skýringu á fjarverunni
— segir f ormaður Réttarverndar um f jarveru sína af Tjaldanesf undinum
, ,Ég gaf landlækni glögga skýringu
á ástæðum fyrir því að ég gat ekki
komið á fundinn að Tjaldanesi í
fyrrakvöld,” sagði Ellert Guðmunds-
son, formaður Réttarverndar, í
viðtali við DB í gær.
Á fundi að Tjaldanesi i fyrrakvöld
kom fram gagnrýni á talsmenn
Réttarverndar fyrir að formaður
samtakanna hefði ekki talið sig geta
mætt til fundar um svo brýnt mál
fyrr en eftir hálfan mánuð.
,,Ég skýrði landlækni frá því að ég
kenndi nú við tvo skóla og nú stæðu
yfir próf í þeim báðum, auk þess sem
kennsla færi einnig fram í öðrum,”
sagði formaður Réttarverndar.
„Laus er ég ekki úr vinnu fyrr en
klukkan 23 á hverju kvöldi og hef
auk þess verið að vinna bæði síðustu
helgi og þessa. Eftir helgi verð ég að
snúa mér að því að meta próflausnir
svo skólaslit geti farið fram.”
Ellert Guðmundsson sagði það
vera algjöra reglu hjá sér að láta
aldrei kennslu falla niður hjá nem-
endum sínum nema lífsspursmál sé
eða hann rúmliggjandi.
Hann sagði enga tregðu hafa verið
á upplýsingum frá Réttarvernd.
Landlæknir hefði aftur á móti spurt
sig hvers vegna hann hefði ekki
afhent sér þau gögn sem fyrir lægju.
Sagðist Ellert hafa svarað því til að
Réttarvernd ætlaði að þiggja boð
ráðherra um að afhenda honum
gögnin beint. Landlæknir hefði áður
verið búinn að annast rannsókn máls-
ins og því ekki ástæða til að senda
honum gögnin að þessu sinni.
Ellert sagðist hafa spurt landlækni
hvort Réttarvernd mundi fá aðgang
að þeim gögnum öllum sem væru i
höndum landlæknis. Hefði hann
svarað því neitandi þar sem þar væri
um trúnaðarmál að ræða.
Ellert sagðist vilja ítreka að boð
landlæknis um að hann kæmi að
Tjaldanesi hefði ekkert með málið að
gera „þar sem við höfum rannsókn
málsins ekki með höndum.”
-ÓG.
Líf og sumarstemmning
er aðTærast i útimarkaðinn á Lækjartorgi og i gær var þar fjörugt viðskiptalif.
DB-mynd Hörður.
Landlæknir:
Til nokkuð sem
„Þetta er misskilningur hjá þessum
ágæta manni,” sagði Ólafur Ólafs-
so.n iandlæknir um óskir formanns
Réttarverndar um að fá aðgang að
gögnum landlæknisembættisins um
Tjaldanesmálið. „Það er tii nokkuð
sem heitir trúnaður.
Ég sendi ekki trúnaðarmál sjúkl-
inga út um hvippinn og hvappinn,”
sagði landlæknirT
„Það hefur verið margendurtekið
að öli gögn varðandi þetta þriggja ára
mál voru send ráðherra á sínum tima
og aðstandendur þessa máls ásamt
foreldrafélaginu og stjórn heimilisins
hafa ailtaf haft fulla innsýn i þau
gögn.”
Yfirlýsing foreldrafélagsins um
málið var birt i DB i gær.
-ÓV.
; Árni Egilsson meðal 10 beztu bassaleikara
íLos Angeles:
Gef ur út sólóplötu
— eftir að hafa verið „hjálparkokkur” hjá t.d.
André Previn og Elton John
íslendingurinn Arni Egilsson, sem
um árabil hefur verið meðal fremstu
,,session”-hljómlistarmanna í Los
Angeles í Bandaríkjunum og unnið
með mörgum fremstu tónlistarmönn-
um heims, svo sem André Previn og
Elton John, er nú að vinna að sinni
fyrstu sólóplötu þar ytra.
Árni er tvímælalaust talinn í hópi 10
eftirsóttustu bassaleikara í Los
Angeles, þar sem tugir þúsunda eru um
slíka upphefð, að sögn Sigurjóns Sig-
hvatssonar, fréttaritara DB í Los
Angeles. Kunningi Árna, Bruce
Broughton, semur efni plötunnar og
stjórnar upptöku með Árna. -GS.
Árni Egilsson við upptöku á plötu sinni f Los Ángeles i vikunni.
DB-mynd SS, Los Angeles.
UIVARP AUSTURLAND?
Ríkisútvarpið er nú komið með
stúdió á Akureyri og Austfirðingar
vilja verða næstir í röðinni. Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, þingmaður Aust-
firðinga og fv. menntamálaráðherra,
skrifar grein í Austra, málgagn fram-
sóknarmanna á Austurlandi, nýlega
þar sem hann reifar þessi mál.
Vilhjálmur hefur það fyrir satt að í
húsnæði Landssímans á Egilsstöðum
fmnist ekki aðeins skot sem unnt
væri að nýta fyrir upptökur. Þar
komi einnig saman þræðir þeir, sýni-
legir og ósýnilegir, sem nauðsynleg-
astir eru til slíkra athafna.
Því er síðan beint til Austfirðinga
sjálfra að hafa frumkvæði að þvi
aðdrífa upp stúdíó á Austurlandi og
nefnt er i því sambandi Samband
austfirzkra sveitarfélaga og fleiri
svæðissamtök sögð koma til greina.
Fyrst og síðast beinir Vilhjálmur
þó ásjónu sinni til Rikisútvarpsins
sjálfs, þar sem þar sé góður vilji, þó
geta sé takmörkuð á stundum.
„Þetta er ekki ofarlega á fram-
kvæmdalistanum hjá okkur,” sagði
Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri
Ríkisútvarpsins. Miðað við forgangs-
röð er stúdíó á Austfjörðum neðan
við 5. sæti. Það er svo margt sem er
yfirvofandi að leysa úr.
Aðstaðan á Akureyri er til komin
afbrýnni þörf og var tiltölulega ódýr.
En ekki er hægt að sjá að hægt sé að
sinna útsendingum frá Egilsstöðum í
bili. Það hefur lítið verið rætt um
þennan möguleika hér og raunar eru
iandshlutastöðvar ekki á dagskrá.
Það má þó búast við því að þetta
komi en ekki á næstunni. Það er
algert frumskilyrði að fyrst komi
viðunandi aðstaða fyrir Ríkisút-
varpið í Reykjavík. Það er ekki
hægt að dreifa kröftunum.”
-JH.
frjálst, nháð dagblað
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1979.
Húsaleigufrumvarpið:
ÓlafurRagnar
lagði Magnús H.
Magnús H. Magnússon félagsmála-
ráðherra varð undir í atkvæðagreiðslu
um húsaleigufrumvarp sitt í gær.
Atkvæði voru greidd um breytingartil-
lögu Ólafs Ragnars Grimssonar (AB)
um að stofna skyldi húsaleigunefndir í
kaupstöðum. Ráðherra lagðist gegn til-
lögunni en hún var samt samþykkt með
7 atkvæðum gegn 5.
Hið viðamikla húsaleigufrumvarp
var síðan samþykkt með frekari
breytingum og sent neðri deild þar sem
búizt er við skjótum framgangi þess.
-HH.
Diskóið íKópavogi:
„FREKJA
ÍGERPLU”
— segir formaður
„Okkur hefur aldrei verið neitað um
leyfi tij þess' að halda diskótek hér í
Kópavogi,” sagði Hinrik Lárusson,
formaður íþróttafélags Kópavogs.
„Við höfum haldið 10 diskótek að
Hamraborg 1 og alltaf gengið vel, utan
einu sinni er smáóhapp varð er krakk-
arnir söfnuðust saman eftir ball.
Lögreglan hefur enda gefið okkur
góð orð og okkar ábyrgðarmenn hafa
verið starfi sínu vaxnir. Það hefur
aldrei staðið á bæjarfógetanum í Kópa-
vogi að gefa okkur leyfi. Aðeins hefur
þurft að sækja um þau timanlega. Ég
hef leyfi nú og diskótek yerður hjá
okkur í kvöld.
Það var aðeins um að ræða frekju og
yfirgang hjá Gerplu að komast yfir
þessar skemmtanir. Konan sem sótti
um leyfið fyrir Gerplu vissi heldur ekki
hvað hún var að gera enda sótti hún of
seint um leyfið. Gerpla hefur a^eins
haldið eina skemmtun en ÍK alls 10.
-JH,
Sjómannafélagið
Jötunn íEyjum:
Helgarfrí
fyrir allar
togveiðar
„Við í Sjómannafélaginu Jötni í
Vestmannaeyjum höfum nú tekið af öli
tvímæli um það hvað eru togveiðar þar
sem sprælingsveiðar og humarveiðar
eru það jafnt og veiðar með fiskitrolli.
Þar með höfum við ákveðið að humar-
og spærlingssjómenn fái helgarfrí aðra
hverja helgi eins og hinir og að þau
hefjist fyrr en eftir sjómannadaginn 10.
júní, eins og hingað til,” sagði Elías
Björnsson, formaður Jötuns, í viðtali
við DB í gær.
Fyrsta helgarfrí hefur nú verið
ákveðið 13. maí en hefði annars orðið
24. júní. Að sögn Elíasar er full eining
um þetta meðal sjómanna þótt a.m.k.
sumir útgerðarmenn hafi lýst sig mót-
fallna.
-GS.