Dagblaðið - 12.05.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1979.
7
Byggingastofnun landbúnaðarins svarar
gagnrýni á vinnubrögð:
Göngum eins
langt til móts
við verk-
beiðendur
og unnt er
— miðað við mannafla
„Undanfarin ár höfum við ekki
getað tekið við verkbeiðnum í maí og
júní til afgreiðslu, þannig að teikn-
ingar liggi fyrir er byggingavertíðin
hefst á sumrin, þar sem við leggjum
fremur áherzlu á að geta gengið frá
þeim verkbeiðnum sem borizt hafa í
tæka tíð,” sagði Gunnar Jónasson
forstöðumaður Byggingastofnunar
landbúnaðarins i viðtali við DB í
gær.
í viðtali i blaðinu í gær segir
byggingafulltrúi landbúnaðarins á
Suðurlandi að þetta kunni að tefja
alvarlega fyrir mönnum. Bréf
stofnunarinnar þessa efnis hafi
komið honum á óvart.
Þessu visaði Gunnar á bug með
þeim rökstuðningi að ætli bóndi t.d.
að byggja í sumar hefði hann þurft
að sækja um lán til Stofnlánadeildar
landbúnaðarins í sept. sl. Þá atti
hann strangt tekið að skila inn verk-
beiðni. Taldi Gunnar stofnunina því
verulega ganga til móts við þá sem
ekki skila beiðnum á réttum tima
með því að taka þær til vinnslu^llt
upp í hálfu ári eftir skUafrest.
Varðandi bréfjð, sem fulltrúunum
var sent, sagði Gunnar það hafa
verið gert í þjónustuskyni og til
glöggvunar fyrir væntanlega verk-
beiðendur á stöðu sinni. Væri enda-
laust tekið við verkbeiðnum fyrir
sumarið kynni það að koma niður á
beiðnum sem borizt hafi snemma.
Miðað við fimm til sex m mna starfs-
lið, sem skilaði svo sem 9 teikning-
um árlega, væri ekki hægt að krefjast
tafarlausrar afgreiðslu.
„Launafólk getur ekki
beðið aðgerðalaust”
— segir miðstjórn ASÍ
„Við þessar aðstæður getur almennt
launafólk ekki beðið aðgerðalaust,”
segir í ályktun miðstjórnar ASÍ.
Miðstjórnin krefst þess að launa-
kjörin verði jöfnuð með kauphækkun
til almenns launafólks.
Rakið er að allir opinberir starfs-
menn muni nú fá 3% grunnkaups-
hækkun frá 1. apríl að telja. Vísitölu-
þakið hafi verið afnumið, með þeim af-
leiðingum að þeir launahæstu hafi
fengið mestar launahækkanir og launa-
mismunur þannig aukizt í þjóðfélag-
inu. Að undanförnu hafi verðbólga
magnazt og miklar verðhækkanir
gengið yfir sem ekki sé unnt að rekja til
hækkana á kaupi almenns launafólks.
Megi í því sambandi sérstaklega minna
á hinar miklu hækkanir á verðlagi
opinberrar þjónustu.
ASÍ hafi stutt ríkisstjórnina og ýmis-
legt hafi áunnizt, sérstakleg megi benda
á félagsleg réttindi, svo sem nýsam-
þykkt lög um rétt verkafólks í veikinda-
og slysatilfellum. Þó hafi ríkisstjórnin í
veigamiklum atriðum brugðið frá yfir-
lýsingum sínum frá síðastliðnu hausti.
Við síðustu efnahagsaðgerðir hafi ekki
verið tekið tillit til vilja ASÍ varðandi
verðbætur.
- HH
Orkuverðiðífyrra:
Rafbflar hefðu fært
ríkissjóði 63%
meira ívegasjóðinn
— bensínbfll notar 218% meiri
frumorku enrafbfll
,,Ég undrast að Samband íslenzkra
rafveitna skuli ekki sýna neitt frum-
kvæði í tilraunum með rafbila hér eins
og raforkuaðilar erlendis gera,” sagði
Gísli Jónsson prófessor í viðtali við DB
í gær er hann var inntur eftir saman-
burði á hagkvæmni raf- og bensínbíla.
Skv. útreikningum Gísla, þar sem
hann reiknar meðalvegagjald til ríkis-
sjóðs í fyrra 41,81 krónu af bensínlítr-
anum, hefði ríkissjóður fengið 63,3%
meiri tekjur í vegasjóð af rafbílum.
Miðar hann þar við bensínbtl sem eyðir
10 litrum á 100 km og sambærilegan
rafbíl. í vegasjóð runnu þá í fyrra 4,18
krónur fyrir ekinn kílómetra bensin-
bílsins en 6,83 krónur hefðu fengizt af
hverjum kílómetra rafbílsins t formi
þungaskatts eins og af disilbílum.
Þá hefur Gísli lauslega áætlað að ef
núverandi bílafloti landsmanna væri
rafbílar skorti ekki nema svo sem 14 til
15 prósent upp á núverandi raforku-
framleiðslu til að fullnægja öllum raf-
bílunum.
Þá hefur hann reiknað út að rafbílar
nota langminnstu frumorkuna, eða 377
vattstundir á kílómetrann, bensínbíll-
inn 823 vattstundir, eða 218,3% meira
miðað við að tala rafbílsins sé 100%,
og vetnisbíllinn 1139 vattstundir, eða
302,1 % meira en rafbíllinn.
- GS
;úömó;
gefíOblóm
Mæðradagurinn er
á morgun
koinið við og kaupið
bkiniin idag
j^Blóma
fiamleiðendur
Það var hægt að fá bæði rikling og hrognkelsi á útimarkaðinum á Lækjartorgi f gær
— fjörug viðskipti í góða veðrinu.
DB-mynd Hörður