Dagblaðið - 08.06.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1979.
7
Ólafur Ketilsson (til hægri) og Meyvant á Eiði, tveir þrautreyndir bílstjórar, á FIB-fundinum í fyrrakvöld.
DB-mynd Ragnar Th.
FÍB var „flautað til
dáða” f bensínmálinu
— Fámennur en einhuga f undur að Hótel Borg
,,Við vorum á dögunum flautaðir
til dáða og látum það ekki á okkur fá
þó heldur hafi verið fámennt á fundi
FÍB um bensínmálin á Hótel Borg á
miðvikudaginn,” sagði Sveinn Odd-
geirsson, framkvæmdastjóri FÍB.
„Þarna komu fram margar góðar
hugmyndir sem unnið verður úr -og
þær vegnar og metnar eftir helgina.
Það er ljóst að eitthvað verður að
gera gegn því ófremdarástandi sem
ríkir í bensínverðlagningunni,” sagði
Sveinn og taldi að skoðanir fundar-
manna sem urðu flestir 30—40 hefðu
verið einróma.
„Ef um frekari hækkanir verður
að ræða á bensíni verður meiri þungi
í aðgerðum FÍB. Mælirinn fylltist við
síðustu verðhækkun.”
Það var skoðun fundarmanna að
ríkið hlyti að geta gefið eitthvað eftir
af sínum mikla hlut í bensínverðinu.
Menn voru, að sögn Sveins, sammála
um að frekari verðhækkanir drægju
úr akstri bíla og þýddu í raun færri
lítra selda. Sagði Svein það óraun-
hæfan samanburð að vera að bera
saman sölu fyrstu fjögurra mánaða
þessa árs og hins síðasta. Raunhæf-
ara væri að líta á samanburð 4—6
mánuðum eftir síðustu verðhækkun,
sem fékk marga bíleigendur til að
kippast við.
Á fundinum fluttu Hörður Einars-
son ritstjóri og Sveinn Torfi Sveins-
son verkfræðingur framsöguerindi
um bensinmálin og kom Sveinn Torfi
einnig nokkuð inn á vegamál. Ólafur
Ketilsson ræddi svo talsvert um vega-
málin og var gerður góður rómur að
máli allra ræðumanna.
- ASt.
Áfengisútsalan í
Amarhvolskjallara
—skerðir tekjur ÁTVR líklega um 4-5 milljónir
„Fjármálaráðuneytið kaupir áfengi
hjá ÁTVR eins og öll hin ráðuneytin.
Við spyrjum þau ekki hvað gera eigi við
áfengið og okkur kemur það heldur
ekki við. Þess vegna get ég með góðri
samvizku sagt að ég veit ekki hvert
magn áfengis fór í söluna til stjórnar-
ráðsstarfsmanna sem DB hefur rætt
um.”
Þannig mælti Ragnar Jónsson, skrif-
stofustjóri ÁTVR, er DB ræddi við
hann i sumarleyfisfjarveru Jóns Kjart-
anssonar forstjóra.
ÁTVR er þriðji aðilinn sem leitað er
til og ekkert veit um áfengissölu til
stjórnarráðsmanna, en sú sala hefur
farið fram í kjallaraherbergi í Arnar-
hvoli. Hver stjómarráðsmaður hefur
þar getað keypt pakka með tveimur
flöskum af áfengi, viskí og vodka, og
greitt fyrir 3000 krónur.
í starfsmannafélagi stjórnarráðsins
eru um 220 manns að sögn skrifstofu
BSRB. Auk þess starfa í stjómarráðinu
allmargir sem tilheyra BHM. Hér er því
ekki um stómpphæðir að ræða. Mis-
munur á raunverulegu söluverði hjá
ÁTVR og á „útsölunni” i kjallara
Arnarhvols gæti verið um 4—5 millj-
ónir króna. Um þá upphæð er ÁTVR
svikin. Ýmsir líta alvarlegri augum að
þessi „áfengisútsala” fer fram í kjall-
ara fjármálaráðuneytisins án vitundar
bæði ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Hver fyrirskipað hefur tilflutning
áfengisins frá ÁTVR til útsölunnar í
Arnarhvolskjallaranum er enn óupp-
lýst.
- ASt.
Merkilegt kort á uppboði Félags íslenzkra f rímerkjasaf nara:
Eitt af elztu litpóst-
kortum í heimi
— með mynd af eina hjólaskipinu sem íslendingar eignuðust
Vorið 1892 keypti athafnamaðurinn
Otto Wathne hjólaskipið Njörð og fór
með það upp á Lagarfljót. Það sem
vakti fyrir honum var að bæta sam-
göngur Héraðsbúa. Tilraun þessi mis-
tókst fyrst og fremst vegna þess að
skipið reyndist of djúpskreitt. Hafði
Wathne 15 þúsund króna skaða af
þessari tilraun. Það skip sem þarna
ræðir um er eina hjólaskipið sem
Islendingar hafa eignazt og jafnframt
fyrsta stálskipið sem smíðað var i Dan-
mörku. Eftir því sem bezt er vitað urðu
endalok þessa skips þau að það grófst í
sand við Hornafjörð, eftir að hafa
gegnt þar í senn hlutverki verzlunarhús-
næðis og bryggju um sinn.
Því er saga þessa skips rifjuð upp
hér, að á morgun fer fram uppboð í
Álftamýrarskólanum á vegum Félags
íslenzkra frímerkjasafnara. Meðal þess
sem þar verður boðið upp er kort með
mynd af áðurnefndu skipi. Póstkort
þetta er trúlega eitt af elztu litpóstkort-
um i heimi. Þetta kort er úr frægri
þýzkri seríu, sem nefnd hefur verið
„Gruss aus”. Sum póstkortin í þessari
seríu hafa farið á ótrúlegu verði.
„Svona hluti er ekki hægt að meta til
fjár,” sagði Björgúlfur Lúðvíksson í
uppboðsnefnd Félags íslenzkra frí-
merkjasafnara. Hann sagði, að lág-
marksboð í kortið væri 50 þús. krónur
en sú upphæð væri „bara til að setja
eitthvað” byrjunarverð á kortið.
Póstkort þetta er sent héðan 18.6.
1900 og sendandinn er maður að nafni
Franz Himmer og það er sent til ein-
hvers Straub Meyer í Ziirich. Líklegt
þykir að kona að nafni Nikoline Wey-
wadt, sem var islenzk þrátt fyrir nafn-
ið, hafi tekið myndina. Hún bjó á
Djúpavogi og var með elztu ljósmynd-
urum hér á landi. Kortið er í lit en það
er tekið í svarthvítu en hefur síðan
verið „reduserað” með lit. Kort þetta
er nú i eigu íslenzks aðila, sem komst
yfir það hjá Bandaríkjamanni. Lengra
er ekki hægt að rekja sögu þess.
Þess má geta að Burmeister & Wein
hafa skrifað hingað til lands og boðið
mikið fé fyrir þó ekki væri nema eitt-
hvert brot úr umræddu skipi, þar sem
það er, eins og áður segir, fyrsta stál-
skipið sem smíðað var i Danmörku.
Skipið var smíðað hjá Baumgarter &
Burmeister árið 1857. Nafn þess fyrir-
tækis breyttist siðar í Burmeister &
Wein.
Uppboð þetta hefst kl. 15 í stofu I í
Álftamýrarskólanum og verða alls
boðnir um 90 númer, aðallega frí-
merki, stimplar og bréfspjöld.
-GAJ
Margareth Gardiner, ungfrú Allieim-
ur, hefur forfallazt um stund en
kemur væntanlega innan tiðar.
SEXTAN SÓTTU
UM HÁSKÓLABÍÓ
— Friðbert Pálsson viðskiptaf ræðingur ráðinn
Friðbert Pálsson viðskiptafræðing-
ur hefur verið ráðinn forstjóri Há-
skólabíós frá næstu áramótum að
telja. Kemur Friðbert í stað Friðfinns
Ólafssonar, sem lætur þá af störfum.
Alls sóttu sextán manns um stöð-
una. Jónatan Þórmundsson prófess-
or, formaður stjórnar Háskólabíós,
sagði í gær að stjórnin hefði afráðið
að birta ekki nöfn hinna umsækjend-
anna, enda hefðu nokkrir þeirra
óskað eftir að það yrði ekki gert.
-ÓV
Alheimsgyðjan
forfallaðist
— því frestast krýning ungf rú íslands um stund
„Hún forfallaðist alheimsgyðj
an,” sagði Guðni Þórðarson, for
stjóri ferðaskrifstofunnar Sunnu, ei
fresta verður af þeim sökum hátú
sem vera átti á Hótel Sögu á morgun
laugardag. Á þessari hátíð átti aí
velja ungfrú ísland.
Ungfrú Alheimur, Mafgaretl
Gardiner frá Suður-Afríku, á a(
krýna ungfrú ísland en hún hefu
forfallazt um stund. „Við vonums
til að geta haldið hátíðina eftir tvæi
vikur með ungfrú alheimi,” sagð
Guðni. „Ef það tekst ekki verðui
reynt að fá Miss World til þess aí
krýna ungfrú ísland,” en Margaretf
ber titilinn Miss Universe.
„Það var búið að bóka talsvert af
miðum, en litið hafði verið selt. Þeii
sem höfðu keypt hafa verið látnir vita
og geta fengið endurgreiðslu sé þess
óskað, ella gilda miðarnir áfram.
- JH
Kortið sem boðið verður Upp á morgun. Hjólaskipið Njörður ó Eskifirði.
Súðavík
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Súðavík er.
Jónína Hansdóttir
Túngötu
Sími 94-6959.
MMBLAÐIÐ