Dagblaðið - 15.06.1979, Page 28
frjálst, úháð dagblað
Af húnvetnskum hrossamálum:
Graðhestamir seldir er Bjöm
mætti ekki hjá sýslumanni
— söluverðið samtals 232 þúsund en uppboðskostnaður 180 þúsund. — Björn á Löngumýri kærír
til Hæstaréttar
Graðhestar Björns á Löngumýri
verða seldir á uppboði og hann fær
söluverðið að frádregnum kostnaði
ef hann mætir ekki við embættið og
gerir hreint fyrir sínum dyrum. Svo
einfalt er það mál. Svo segir Jón
ísberg sýslumaður á Blönduósi í bréfi
til DB, en Björn Pálsson fyrrum al-
þingismaður á Löngumýri hefur kært
sýslumann og heldur því fram að
hann hafi logið í þá i dómsmálaráðu-
neytinu um hvernig staðið hafi verið
að töku tveggja stóðhesta hans.
Björn Pálsson varð ekki við til-
mælum sýslumanns og voru stóðhest-
arnir seldir á uppboði í gær. Söluverð
þeirra var 80 þúsund og 152 þúsund
en kostnaður við uppboðið varð 180
þúsund. Björn hefur kært uppboðið
til Hæstaréttar en hann telur að ólög-
lega hafi verið staðið að töku grað-
hestanna.
Jón ísberg sýslumaður segir í bréfi
sínu, að sú grein laga, sem graðhest-
arnir voru teknir eftir sé efnislega
samhljóða grein í búfjárræktarlögun-
um, sem Björn Pálsson hafi átt þátt í
að samþykkja, sem alþingismaður í
sinni tíð. Fyrrnefnda lagagreinin er
nr. 21 frá 1965 en núgildandi grein
nr.31/1973.
Sýslumaður telur í bréfi sínu að
fregnir af máli þessu, það er töku
stóðhestanna tveggja, sýni hvernig
gera megi úlfalda úr mýflugu. Slík
mál komi fyrir í Húnavatnssýslum
næstum á hverju ári og til dæmis í
fyrra og nú i vetur. Hafi menn þá
beygt sig undir lögin og greitt útlagð-
an kostnað og smásekt. Hafi því ekki
komið til framkvæmda á ákvæðum
laga um uppboð á hestunum. Sýslu-
maður segir að Birni verði einnig
gefið þetta tækifæri. Noti hann sér
það ekki verði hestar hans boðnir
upp eins og áður segir.
Með bréfi Jóns ísbergs sýslumanns
til DB fylgir ljósrit af lögregluskýrslu
og skýrslu þess er náði hestunum.
Eru þær undirritaðar af Frímanni
Hilmarssyni lögreglumanni og Þor-
steini Gunnarssyni bónda Syðri-
Löngumýri.
Efnislega styðja þessar skýrslur tví-
menninganna málflutning hún-
vetnskra yfirvaldai málþófinu vegna
graðhestanna tveggja.
Segir þar meðal annars, að Björn á
Löngumýri hafi sagzt mundu láta
lúskra á Þorsteini Gunnarssyni
bónda ef hann ætti eitthvað við að
taka hestinn. Kemur þetta fram í
skýrslu Þorsteins af málsatvikum.
Þorsteinn segir einnig tvo syni
Björns á Löngumýri hafa fælt grað-
hestana tvo með því að aka með
feikna hraða að þeim, þar sem þeir
voru í vörzlu lögreglu og fleira fólks.
Hafi þó tekizt að handsama þá aftur
og þeir verið afhentir hreppstjóra
Svínavatnshrepps.
- ÓG
Lánveitingar til frystihúss kaupfélagsmanna á Patreksfirói:
Slagur í ríkisstjóm og
Framkvæmdastofnun
Harðar deilur hafa staðið í Fram-
kvæmdastofnun og ríkisstjórn um
lánveitingar til byggingar frystihúss á
Patreksfirði.
Málið sat fast í Framkvæmda-
stofnun, þar til Olafur Jóhannesson
forsætisráðherra skarst i leikinn.
Vildi Ólafur, að ríkisstjórnin sendi
Framkvæmdastofnun bréf og bæði
um, að lánveiting yrði samþykkt.
Eðlilegast hefði verið, að slíkt bréf
kæmi frá sjávarútvegsráðherra,
Kjartarii Jóhannssyni, en Kjartan
neitaði. Ólafur sendi þá bréfið á eigin
vegum. í þessu máli halda and-
stæðingar lánveitinganna því fram,
að hraðfrystihúsið Skjöldur hf.,
Vatneyri, geti annað allri vinnslu
fyrir Patreksfjörð. Skortur sé á hrá-
efni og \innuafii, og 50 manns frá
Ástralíu þar við vinnu. Kaupfélagið
og Regiun hl. eru með annað hrað-
frystihús í uppbyggingu og biðja um
fjármagn til þeirrar framkvæmdar.
Kaupfélagsmenn telja, að full þörf sé
á frekari aukningu aðstöðu á Pat-
reksfirði.
Bréf forsætisráðherra var tekið
fyrir í stjórn Framkvæmdastofnunar,
sem hefur með Byggðasjóð að gera,
en lánsbeiðni var stíluð til. Kjartan
Ólafsson (AB) bar þar upp tillögu um
að lána 40% af stofnkostnaði. Karl
Steinar Guðnason (A) lagði til, að af-
greiðslu yrði frestað og málið kannað
nánar. Tillaga Karls var felld en lán-
veitingin samþykkt. Sjálfstæðismenn
klofnuðu í afgreiðslunni. Með lán-
veitingunni voru Kjartan Ólafsson,
Ólafur Jónsson (AB), lngvar Gísla-
son (F) og Jón G. Sólnes (S). Á móti
voru Karl Steinar Guðnason, Sig-
hvatur Björgvinsson (A) og Ólafur
G. Einarsson (S). Gert er ráð fyrir, að
100 milljónir gangi til frystihússbygg-
ingar kaupfélagsmanna í fyrstu lotu.
- HH
FÖSTUDAGUR 15. JUNÍ1979.
Sjórall 79:
Fjarskipta-
netið reynt
*
á morgun
Á morgun hyggst Félag farstöðvaeig-
enda reyna til fullnustu fjarskiptakerf-
ið, sem félagið hefur komið upp vegna
Sjóralls Dagblaðsins og Snarfara 1. júlí
í sumar.
Eru viðkomandi FR menn beðnir að
hlusta á rás 6 á milli kl. 14 og 16 á
morgun. Að sögn Reynis Einarssonar,
FR manns, sem hefur umsjón með
framkvæmd málsins, er þetta gert til að
finna út hvort einhvers staðar sé veik-
an hlekk að finna í kerfinu, þar sem úr-
bóta sé þörf.
- GS
Bdur íbát við
Grandagarð
Slökkviliðið var kallað út á Granda-
garð Iaust fyrir klukkan 4 í nótt vegna
reyks er lagði frá trillubátnum íris RE-
138. Er að var komið þurfti að brjóta
upp lokaðan lúkarinn en reykinn lagði
frá eldavél niðri í honum. Var hún af-
tengd og klæðning umhverfis hana rif-
in frá og slökkt með vatni. Litlar
skemmdir urðu á bátnum.
- ASt.
Auðurvann
r ballett
Auður Bjarnadóttir, hin efnilega
unga ballettdansmær, sigraði í ballett-
keppni er fram fór í Finnlandi í gær.
Keppendur voru 20 samtals, bæði
piltar og stúlkur, frá öllum Norður-
löndum, á aldrinum 16—22 ára.
Var balletthátíð þessi haldin í borg-
inni Kuopio í tilefni 10 ára afmælis
listahátiðarinnar þar í borg.
í öðru sæti í keppninni varð finnsk
stúlka, en í því þriðja sænsk. Mótdans-
ari Auðar var Þjóðverji, samstarfs-
maður hennar frá ballettinum í
Múnchen þar sem Auður er starfandi
ballettdansari.
- BH
Auður Bjarnadóttir, hin tvítuga ballett-
dansmær.
LFVIRK
SLÁTTUVÉL
Þrátt fyrir slæmt vor er nú komið
að því að garðeigendur í Reykjavík eru
farnir að slá bletti sína, með ýmsum
aðferðum, eins og gengur. Einn
garðeigandi við Bústaðaveginn notaði
hestinn sinn sem alsjálfvirka sláttuvél á
blettinn, jafnframt því sem hesturinn
dreifir þar áburði og örvar þar með enn
frekari sprettu.
Skammt þar frá sem eitt hestafl
vann að „slætti” unnu þrjú
„mannöfl” að snyrtingu umhverfisins
á vegum borgarinnar. Þær heita, frá
vinstri talið, Ingibjörg, Linda og
Brynja og eru í vinnuskóla borg-
arinnar.
G.S./DB-mynd: Sv. Þorm.
Fylgifískur
skenmrti-
feröaskipsins
„Það verður suðvestan átt og
rigning um vestanvert land í dag, væta
sunnanlands en líklega þurrt á NA-
landi,” sagði Páll Bergþórsson veður-
fræðingur í morgun.
í ljósi þess að erlent skemmtiferða-
skip var á höfninni í morgun eiga þessi
tíðindi ekki að koma á óvart. Það skip
sem hér um ræðir er italskt að nafni
Achille Lauro um 24 þúsund tonn að
stærð. Það kom inn á höfnina kl. 7 i
morgun og fer aftur i kvöld.
-GAJ-