Dagblaðið - 27.06.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1979.
Spurning
dagsins
3
Hong Kong 13. júni: Flóttamenn frá Víetnam bfða eftir að komast inn í einar af mörgum yfirfullum búðum flóttamanna. Rauði krossinn álitur að aðeins einn af
hverjum þremur sem flýr Víetnam lifi af flóttann.
Bergný Guðmundsdóttir skrifar:
Flótamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna hefur beðið um hæli fyrir 50
flóttamenn frá Víetnam á íslandi. í
Dagblaðinu 21.6. ’79 er frá því skýrt
að margir haft látið frá sér heyra
varðandi þetta en „allir reyndust
ákaflega andvígir hugmyndunum.”
„Upphaf úrkynjunar kynstofns
vors”, er haft eftir „einum". Já,
göfugir erum vér íslendingar, af vík-
ingum og kóngum komnir! En hvers
virði er sú ættartala ef við höfum
ekki hlotið kærleik að erfðum. Og á
erlendri grund erum við því miður
allt of víða illa kynntir sökum
drykkjuskapar og skrilsláta.
Hjálp! Þið sem viljið hjálpa þessu
hrakta fólki látið í ykkur heyra. Og
látum það finna að það sé velkomið.
Stöndum saman í jákvæðri og gleði-
legri afstöðu að hjálpa náunganum.
Engin gleði er meiri en að gefa.
Veitum okkur þá gleði að hjálpa
bræðrum okkar. „Ekki rúm fyrir
kynþáttafordóma í okkar litla
heimi,” sagði utanríkisráðherra,
Benedikt Gröndal, í viðtali við Dag-
blaðið. Þetta vil ég taka undir. Ekki
er heldur rúm fyrir hatur og illdeilur.
En sköpum rúm fyrir kærleikann.
Herra biskup á íslandi, Sigurbjörn
Einarsson, prestar landsins og aðrir
kirkjunnar menn. Hjálpið okkur að
berjast gegn mannvonzku, hroka,
neikvæðni og fordómum. Hjálpið
því óhamingjusama fólki sem þekkir
ekki gleðina að gefa. Það segir sem
svo: Ég á ekki að gæta bróður míns
því við erum svo ólíkir. Hans augu
eru brún en mín eru blá. Vart erum
við Jesú Kristi æðri en hann sagði:
„Komið til mín, allir þér sem
áhyggjum og þunga eru hlaðnir.. .”.
Hikum ekki, bætum heiminn!
Þingmenn eru
þarfaþing
Þingmenn eru þarfaþing, Ekta krossa eiga að fá,
þegar þeir sitja heima. ekki má því gleyma,
Um skyldustörf og skuldbinding, bæði brjóst og bökin á,
skyldi þá vera að dreyma? bara ef þeir sitja.
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið
Gylfi Ægisson hljómlistarmaður
skrifar:
Mig langar til að taka undir það
sem Diddi fiðla skrifaði í DB mánu-
daginn 25. júní. Við vorum að mig
minnir samskipa þessa eftirminnilegu
nótt. Óneitanlega var maður feginn
að stíga á land í Þorlákshöfn og sjá
og finna hve íslendingar eru sam-
stilltir þegar eitthvað bjátar á. En því
skrítnara finnst mér að það sé eitt-
hvert mál þegar fátækt flóttafólk á í
hlut að því sé hjálpað og leyft að vera
á skerinu á meðan það er að ná sér
upp. Ég tel það ómannúðlegt að vera
alltaf að benda á litarháttinn. Þetta
er fólk sem hefur ekki minni tilfinn-
ingar en við og hefur liðið það miklar
kvalir að mál er til komið að það fái
að sjá eitthvað annað en svarta litinn
á tilverunni. Ég hugsa að við yrðum
fegin að fá skjól í öðru landi ef hér
yrðu svo miklar náttúruhamfarir að
ekki væri líft fyrir ösku, eiturgufum
og rennandi hrauni.
En þetta er alltaf fyrir hendi eftir
því sem Hafnarfjarðarhraun segir
mér.
Ég læt svo þessar fáu línur nægja
og vona að ef flóttafólkið kemur
hingað sjái fólk sóma sinn í því að
sletta skyrinu í verri átt en að því.
Hringið
ísíma
GOLFTEPPI
fyrir
heimili—stigahús—skrifstofur
AXMINSTER
Grensásvegi 8 — Sími 82499
Gylfi Ægisson
„VH> YRDUM FEGIN
AÐ FÁ SKJÓL”
Á að gefa sólarfrí
þegar sól er?
Ágústa Þórðardóttir: Já, alveg skil-
yrðislaust, alla vegaeftir hádegið.
Helgi Guðfinnsson: Já, það væri ekk-
ert sem mælti á móti því.
Valur Arnórsson: Já, það er svo sjald-
an gott veður hér og það ætti að vera
fri allan daginn.
Eiður Steingrímsson: Nei, alls ekki,
það er alveg nóg að nota þcnnan
klukkutíma sem maður hefur i mat.
Atli Þórsson: Já, alveg tvimælalaust.
Nota sólina á meðan hún gefst.
Gerða Jónsdóttir: Já, það væri ægilega
heillandi að hugsa um það en ég býst
bara við að það mundi ekki ganga.