Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979.
5
Hæstiréttur:
2mánaöa
skilords-
bundiö
fangelsi
fyrir tékkamisferli
í Hæstarétti var nýlega kveðinn
upp dómur yfir Hauki Guðmunds-
syni, fyrrum rannsóknarlög-
reglumanni í Keflavik, fyrir útgáfu
innistæðulausra ávisana á Útvegs-
bankann i Keflavík 1975. Haukurvar
dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og til greiðslu sakar-
og málskostnaðar, samtals 250
þúsund krónur.
Mál þetta kom upp um svipað
leyti og ástæða þóiti til að kanna
starfsaðferðir Hauks i sambandi við
handtökumálið fræga, og olli hvort
tveggja þessa — ásamt ýmsu öðru —
því að Hauki var gert að vikja úr
starfi við lögreglustjóraembætti í
Keflavík.
Tékkana, sem voru alls sex,
sagðist Haukur fyrir réttinum hafa
gefið út i þeirri trú, að skuldunautur
sinn myndi greiða ákveðna upphæð
inn á reikning sinn.
Heildarupphæð fölsku tékkanna,
sém Haukur greiddi alla til fulls
innan árs, var kr. 390.000.-
Dómurinn er nær samhljóða undir-
réttardómi Steingrims Gauts
Kristjánssonar, héraðsdómara, frá i
fyrra. Hæstaréttardóminn kváðu upp
hæstaréttardómararnir Árm^ann
Snævarr, Benedikt Sigurjónsson,
Björn Sveinbjörnsson, Logi Einars-
son og Magnús l>. Torfason.
-ÓV.
Eldur laus í pappabirgðum
í nýrri skólabyggingu
Talsvert tjón varð er eldur varð
laus í nýbyggingu við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti á níunda
tímanum í fyrrakvöld. Þessi hluti
skólans er á byggingarstigi og kom
eldur upp i papparúllum sem verið
höfðu í meðförum við pappalagningu
á þaki byggingarinnar.
Ókunnugt er um eldsupptökin, en
við lagningu svona pappa er notaður
blússeldur sem bræðir pappann
saman.
Slökkviliðið var kvatt á vettvang
kl. 20.36 og slökkvistarfi var lokið
tæpum tveimur tímum síðar. I
skýrslum siökkviliðsins segir að tals-
vert tjón hafi orðið á nýbyggingunni
enda var reykjarkóf mjög mikið, þó
eldur væri á takmörkuðu svæði í
byggingunni.
-ASt.
Bindindisf élag ökumanna og Dagblaðið:
Boða til keppni í
„ÖKULEIKNI79”
tveir þeir hlutskörpustu á aldrinum 18—25 ára hljóta Lundúnaferð
í verðlaun og keppa þar í ökuleikni
Ein þrautanna er í þvi fólgin að aka fram og aftur um imyndað brúarhandrið. Myndin er frá keppni i fyrra.
Bindindisfélag ökumanna og Dag-
blaðið munu í júli og ágústmánuði
boða sameiginlega til keppni i
ökuleikni á 15 stöðum á landinu.
Keppnin felst í því að svara 10
spumingum og reyna sig síðan í akstri á
afmörkuðu keppnissvæði og leysa þar
ellefu ökuþrautir.
Þátttaka í „ökuleikni ’79” er öllum
frjáls sem hafa ökuleyfi og skoðunar-
hæfan bíl. Aldurstakmörk eru engin,
len aftur á móti hafa þeir einir rétt á
jmöguleikum til úrslitakeppni, sem eru
i á aldrinum 18—25 ára.
Þeir tveir, sem standa sig bezt í
ökuleikniskeppnum um allt land, og
eru á aldrinum 18—25 ára, fá í
jverðlaun vikuferð til London í
nóvember nk., þar sem þeir taka þátt i
norrænni keppni í ökuleikni við
keppendur á sínum aldri. Til að finna
þessa tvo fulltrúa íslands verður haldin
úrslitakeppni i Reykjavík í september,
þar sem mætir sá keppandi á aldrinum
18—25 ára sem bezt hefur staðið sig í
hverjum stað sem keppt verður á.
Þetta er annað árið i röð sem BFÖ
efnir til ökuleikniskeppni með þessu
fyrirkomulagi, en árum saman hefur
farið fram góðaksturskeppni á vegum
félagsins.
í fyrra fóru tveir þeirra er fram úr
sköruðu í norræna ökuleikniskeppni
sem haldin var á tilraunabraut
einstaklingskeppni alþjóðamóts í
ökuleikni i fyrra. Hann er hér til hægri.
Sigurvegarar keppninnar í Englandi
halda á bikurunum.
Vauxhall bílaverksmiðjanna í Luton
skammt frá London. Þar varð ísland í
öðru sæti af Norðurlandaþjóðunum og
Einar Guðmundsson frá Kópavogi
varð í 3. sæti í einstaklingskeppni, en)
fjöldi ökumanna frá mörgum þjóðum
tóku þátt. Einar mun nú sjá um fram-
kvæmd ökuleikniskeppna víðs vegar
um landið.
Sem fyrr segir verður keppnin
fólgin í því að svara 10 spurningum i
krossaprófsformi. Síðan eru aksturs-
þrautirnar ellefu sem fólgnar eru í ná-
kvæmnisakstri eftir plönkum, um
ímyndaða brúarstólpa, afturábakakstri
að lausum stöngum, lagningu á bíla-
stæði o. fl. o. fi.
Á undanförnum árum hafa ótal
ökumenn á öllum aldri spreytt sig við
slíkar akstursþrautir og nú vonar BFÖ
og DB að sem flestir mæti til leiks.
Fyrsta keppnin verður við Kársnes-
skóla í Kópavogi kl. 2 á laugardaginn.
Þarf að tilkynna þátttöku í síma 83533
fyrir lokun skrifstofu á föstudaginn.
Þátttökugjald er 1500 krónur.
Næsta keppni verður á Blönduósi
13. júlí, Akureyri 14. júlí og á Húsavík
15. júli. Munið að tilkynna þáttlöku og
nú ættu sem flestir að vera með í
„ÖKULEIKNI ’79”. -ASl.
AUDIOVOX
\r þig vandað hijómtæki í bífínn?
EJEC1
Mikið úrval af hátölurum og kassettutækjum í bíla
er okkar kjörorð.
—
; . ■ ■
___________i r
•15
i\aa io
ARMULA 38 iSelmúla meqirn 105 REYKJAVIK
SlMAR; 31133 83177 POStHÓLF 1366
Attt ttt hljómflutnings fyrir:
HEIMIUD — BÍUNN
OG
DISKÓTEKID