Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979. 9 DB-mynd: RagnarTh. ERJAKKILEIGU- BÍLSTJÓRANS AÐ BAKIVELGENGNINNI? Ólafur Skagvík — þrautreyndasti siglari sjórallsins — á Ingu 06, sem ekki hefur lent í neinum teljandi óhöppum á leiðinni. Þarna þyrpast peyjarnir að honum á Höfn. Jakkinn, sem Ólafur klæðist, er „verndar- gripur” hans í sjórallinu. Leigubíl- stjóri, sem ók Ólafi niður á bryggju við upphaf rallsins, snaraði sér úr jakkan- um sinum með BSR-merki úr silfri og lét rallkappann hafa til notkunar í rall- inu. Kannski lukkan fylgi jakkanum eftir allt saman, að minnsta kosti hafa félagarnir á Ingu 06 ekki orðið fyrir teljandi skakkaföllum á leiðinni. -ÓV VINDUR í BAKH) á leið sjórallsbátanna norður með Austfjörðum Inga 06 og Signý 08 lögðu af stað frá Neskaupstað um kl. 16.30 í gær, en upphaflega var áætlað að farið yrði af stað til Raufarhafnar kl. 14. Ýmislegt smálegt tafði þó brott- för bátanna. Viftureim vantaði á annan bátinn og ekki var bensínbíll á staðnum, þannig að útvega þurfti bensín á tunnum, en það tók nokkuð lengri tíma. Áætlað var að siglingin til Raufar- hafnar tæki 7—8 tíma ef vel gengi. í gærmorgun var lygnt, en þegar liða tók á dag var kominn suð-vestan landstrekkingur. Rallkapparnir fengu því vindinn skáhallt í bakið á leiðinni norður með Austfjörðum. Það var þó viðbúið að ferðin yrði nokkuð erfiðari eftir að komið væri .fyrir Langanes, er áttin yrði á móti þeim. Kapparnir á báðum bátunum, Gunnar Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson á Signýju og Ólafur Skag- vík og Bjarni Sveinsson á Ingu voru hressir er lagt var upp frá Neskaup- stað, eftir hvíld og góðan viðurgjörn- ing. Skrúfan á Signýju er litillega skemmd, en ekki hefur þurft að skipta um skrúfu. Varaskrúfa er með í förinni. FR-menn á Austfjörðum fylgjast náið með ferðum bátanna og mynda samfellda keðju meðfram ströndinni. -JH/JR Neskaupstað. Ný sending væntanleg. kristjAn ó. SKAGRIORÐ ■ Hólmsgötu 4« PIONER plastbáturinn er eins og kjörinn fyrir íslenzkar aðstæður. Hann sekkur ekki, er mjög léttur í meðförum bæði á floti og á þurru, er ótrúlega fiarðgerður ógætilega sé með hann farið. PIONER báturinn er framleiddur í 8’, 10’, 12’, og 13’, auk kajaka og kanóa á mjög hagstæðu hagstæðu verði. Einn af þeim öruggustu Signý í áföllum við Kögur: KEYRÐUM HANA UPP ÚR STRAUMHNÚTNUM —sátum í sjó upp að mitti—höggið var rosalegt og burðarbiti svignaði „Við vorum búnir að sigla fyrir alla Austfirðina í ágætisveðri og komnir á móts við Kögur. Þá reið straumhnútur skyndilega yfir bátinn. Við höfum verið á um það bil 25 til 30 milna hraða og hann hreinlega kafkeyrði bátinn,” sagði Gunnar Gunnarsson á Signýju í viðtali við DB í Borgarfirði eystra í gærkvöldi. „Með því að gefa fullan kraft á vélina tókst okkur þó að keyra hann upp og þá kom í ljós að gott var að hafa kraftmikla vél. Báturinn lyfti sér svo vel upp úr að töluvert af sjónum helltist úr honum. Þó sátum við Ásgeir í sjó upp að mitti, þegar við ákváðum að snúa til Borgarfjarðar eystra til aðathuga skemmdir.” Gunnar sagði að straumhnúturinn sem skall á bátnum hefði verið rosa- legur. Lúgan framan á bátnum rifnaði af, Ijósin beygðust aftur, og auk þess losnuðu festingar á milli stýrishúss og skrokksins. Nokkur Ásgelr Ásgelrsson á Signýju var ekki Jafn þurr og snyrtilegur, þegar þeir félagnr sigldu báli sínum inn til Borgarfjaróar eystra i gærkvöldi og þegar Ragnar Th. tók þessa mynd af honum í gær á Höfn í Hornafirði. tæki eins og dýptarmælir og radar urðu fyrir hnjaski. „Þegar Signý var kominn inn til Borgarfjarðar var þeim Gunnari og Ásgeiri veitt aðstoð af heimamönn- um þar við að taka bátinn upp til skoðunar. Ekkert virtist vera að skrokki bátsins nema burðarbiti fremst í byrðingi hafði svignað, þó ekki svo að áframhaldandi sigling væri ekki fær. Gunnar sagði að þeim hefði verið vel tekið á Borgarfirði sem og annars staðar og allir boðnir og búnir til að aðstoða þá. Signý væri aftur koinin á flot og bæði áttaviti og ratsjáin í not- hæfu ástandi. Bjóst hann við að leggja aftur í siglinguna til Raufar- hafnar um klukkan tvö í nótt. Veðrið væri að visu orðið mjög slæmt norður fyrir og áttin á móti. „Við Ásgeir höfum það annars ágætt og erum nú rétt að setjast að kaffiborði hjá þeim Svanhildi Guðmundsdóttur og Jóni Helgasyni hér á staðnum.” -ÓG. FR-meim íBorgarfirði eystra sendir ífýluferð: Spuröu hvenær þeir ættuaðmæta aftur! hundblautir af sjónum Sjórallsvaktin hjá þeim FR-mönnum í FR 5000 bregzt ekki. Þaðan er stjórnað öllu starfi FR-manna hringinn í kringum landið. Á stóra íslandskortið á veggnum hjá þeim FR-mönnum er merkt nákvæmlega leið sjórallsbátanna og er litið var inn hjá þeim um miðjan dag í gær, voru línurnar tvær, Signý og Inga komnar til Neskaupstaðar. Á myndinni eru þeir FR-menn er hvað ötulast hafa unnið í stjórnstöð- inni, Júlíus Högnason og Reynir Einarsson. Reynir nefndi sem dæmi um árvekni og dugnað FR-manna víða um land, að í gærmorgun hefði láðst að tilkynna FR-mönnum á Borgarfirði eystra, að tímaáætlun hefði breytzt. Þeir hefðu því farið árla morguns á trillu út á haf, með FR-stöð, svo ná mætti stöðugu sambandi. Þeir hefðu ekki vandað stjórnstöð- inni kveðjurnar er þeir komu blautir og kaldir að landi aftur, en jafnframt spurt hvenær bátarnir kæmu, svo þeir væru örugglega komnir aftur á réttan stað er á þyrfti að halda. -JH SEAFARER-björgunarbátar frá 4ra til 25 manna. Viðurkenndir af skipaskoðun ríkisins.y/vi Tvöfalt ioftrými sem hvort um sig getur haldið uppi fullhlöðnum ... báti Allar nánari upplýsingar'- /IUSTURBAKKI HF Skeifunni 3, sími 81411 «« iL xW&ftWíí. M

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.