Dagblaðið - 05.07.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 05.07.1979, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1979. Hótel Norðurljós Raufarhöfn Höfurri opnaö aö nýju, bjóöum gistrngu, heitan mat, smurt brauö, kaffi, gosdrykki og glæsilegt morgunveröarhlaöborö. Veriö vel- komin í Hótel Noröurijós Raufarhöfn. Svavar Ármannsson, hótelstjóri. HÚSASMIÐIR geta tekið að sér mótasmíði, nýsmíði eða breytingar. Upplýsingar í síma 36808 frá kl. 6—8 síðdegis eða í síma 76746. I Skalli Lækjargötu 8, Hraunbæ102 Reykjavíkurvegi 60 Hf. C Kvikmyndun Paradísarheimt lokið íoktóber. HLÍDABÆRINN HEIMSÓTTUR „Þeir komu hérna um daginn og litu á staðinn. En ég held ekki aðþeirædi að hefja myndatöku á Paradísarheimt fyrr en í ágúst,” sagði Benedikt Stefánsson, hreppstjóri í Lóninu, er við hittum hann við hinn nýja Hlíðabæ undir Steinahlíðum. Benedikt vann þar við vegghleðslu ásamt tveim sona sinna. Hlíðabærinn nýi stendur undir Hval- nesskriðum í Lóni, rétt hjá Hvalnesinu þar sem Einar gamli var alltaf aö leita aö gullinu. En við Hlíðabæinn liggur gullið að minnsta kosti ekki ofan jarðar. Þar er eingöngu grjót, grjót og meira grjót. En fallegt er þar og hrika- legt. ,,Ég hef-komið undir Eyjafjöll þar sem bærinn átti að hafa staðið sam- kvæmt sögunni. En þar er ekki nærri því svona hrikalegt og fallegt,” sagði Benedikt. Hlíðabærinn er afar lágreistur og stendur undir skriðu mikilli sem endar í háum hamri. Undir skriðurótunum er bærinn ósköp lítill og einmanalegur. „Mér finnst bærinn furöulega lítill,” segir Benedikt. „Steinar bóndi var hag- leiksmaður mikill og listasmiður. Bær- inn er óeðlilega borulegur miðað við að þetta var með betri býlum í sveit. En ef til vill á að taka myndina þannig að bærinn virðist stærri.” Rafmagn og sími niður, vitinn vandamál Til þess að hægt væri að nota staðinn Hliðabærinn hinn nýi undir afar brattri skriðu. Innan veggjarins fremst á myndinni á að vera kálgarður. DB-myndir Trausti. Synir Benedikts ganga rösklega til verks við vegghleðslu. Benedikt ræðir við blm. og Guðnýju Egilsdóttur, umboðsmann DB á Höfn.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.