Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 05.07.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1979. 15 þróttir Iþróttir íþrótt;r íþróttir Iþróttir D igurðsson skorar fallegt mark eftir góða fyrirgjöf Sverris Herbertssonar. DB-mynd Sv. Þorm. garíbaslimeð arlið Siglfirðinga íttuna um íslandsmeistaratitilinn með slíkum leik mínútunni að KR innsiglaði sigurinn og bjargaði þar með andlitinu. En lítum á minnisþókina. Á 4. mínútu á Haukur Ottesen gott skot fyrir utan vítateig en markvörður Siglu- fjarðar ver. Mínútu síðar fær Stefán Örn knöttinn í dauðafæri en skallar framhjá. Markið virtist liggja í loftinu og á 9. mínútu kom það. Sigurður Pétursson, vinstri bak- vörður KR, brunaði upp vinstri kantinn og gaf vel fyrir mark Siglfirðinga. Sverrir Her- bertsson, bezti maður KR í leiknum, var þar fyrir. Skalli hans fór í varnarmann Siglfirð- Blikum ig saman og unnu 4—0 Sigurði hafi ekki mistekizt vítaspyrna í 10 ár eða allt frá því hann var í 5. flokki. í seinni hálfleiknum jukust yfirburðir Blikanna jafnt og þétt og tækifærin komu á færibandi. Sigurjón fékk gott færi í upphafi .s.h. og skömmu síðar fengu Heiðar, Vignir og Ólafur upplögð færi í sömu sókninni til að skora. Rétt á eftir fékk Fylkir sitt hættulegasta færi, en Sveinn markvörður varði í horn. Blikarnir fengu síðan þrjú góð færi til við- bótar áður en þeir bættu þriðja markinu við á 71. mín. Þá skoraði Sigurður Halldórsson með sinni fyrstu spyrnu í leiknum, en hann kom inn á sem varamaður. Markið kom eftir glæsilega sóknarlögu Blikanna upp hægri kantinn þar sem Hákon og Sigurjón spiluðu sig í gegn. Á 77. mínútu kom síðan fjórða markið. Þá komst Heiðar í gegn, en Ög- mundur varði skot hans vel. Knötturinn barst til Vignis Baldurssonar sem skoraði af öryggi. Rétt fyrir leikslok skaut Heiðar í þverslá og yfir af 25 m færi og yfirburðir Blikanna voru algerir. Lið Breiðabliks er vafalaust eitthvert bezt leikandi lið landsins og liðið leikur betri knattspyrnu en flest 1. deildarfélaganna. Framlínan með þá Sigurð, Sigurjón og Hákon er stórhættuleg og Sigurður eitthvert mesta efni, sem undirritaður hefur séð — aðeins 17 ára gamall. Vignir og Heiðar voru mjög góðir á miðjunni og vörnin var traust svo og Sveinn í markinu. Þór Hreiðarsson og Ingólfur Ingólfsson voru ekki með, en það kom ekki að sök. Fylkir átti aldrei möguleika gegn Blikunum, en liðið leikur oft á tíðum mjög fallega knattspyrnu úti á vellinum, en endahnútinn vantar. Ögmundur varði vel og verður ekki sakaður um mörkin, en vörn Fylkis er ekki upp á það bezta. -SSv. inga og þaðan í netið. Hafa nú flestir vafa- laust búizt við stórsigri 1. deildar liðsins en það fór á annan veg. Næsta hálftímann var leikurinn miðjuþóf þar sem fátt markvert gerðist utan það að JónOddsson, miðherji KR, meiddist á ökkla eftir samstuð við mark- vörð Siglfirðinga og var borinn af leikvelli. Á 38. minútu kom reiðarslagið fyrir KR- inga. Sigurjón Erlendsson, traustur varnar- maður Siglfirðinga, gaf þá langa sendingu fram völlinn og skyndilega var Haraldur Agnarsson á auðum sjó. Hann lét tækifærið sér ekki úr greipum ganga heldur skoraði ör- ugglegá framhjá Hreiðari, markverði KR. Síðari hálfleikurinn var svipaður þeim fyrr, miðjuþóf og yfirleitt gekk boltinn mót- herja á milli. Á 7. mínútu tókst Sverri að brjótast í gegn hægra megin, gaf síðan góða sendingu á Stefán Örn, sem skoraði örugg- lega með skalla. Á lokaminútu leiksins bættu KR-ingar svo þriðja markinu við. Börkur Ingvarsson skoraði markið með skalla eftir hornspyrnu frá Elíasi Guðmundssyni. Með slíkum leik sem þessum geta KR-ing- ar varla gert sér vonir um að blanda sér i bar- áttuna um íslandsmeistaratitilinn. Leikmenn liðsins léku allir langt undir getu. í liði Sigl- firðinga vakti bakvörðurinn Björn Sveinsson mesta athygli, hefur næmt auga fyrir sam- leik. Sigurjón Erlendsson var líka nokkuð traustur í vörninni þrátt fyrir að hann sé anzi þungur. Mega Siglfirðingar vel við una, að hafa veitt einu af efstu liðum 1. deildar verð- uga keppni. - GAJ Jafntefli Finnar koma enn á óvart í 6. riðli Evrópu- keppni landsliða. í gærkvöldi léku þeir við nágrannana Sovétmenn og öllum á óvart lauk leiknum með jafntefli 1-1 en leikið var í Helsinki. „Ég bjóst ekki við Finnunum svona sterkum,” sagði þjálfari Sovétmann- anna, Nikita Simonian, eftir leikinn. Rúss- arnir náðu þó forustunni i fyrri hálfleiknum með marki Khapsalis á 28. mín. en Atik Asmail jafnaði fyrir Finnana á 55. mínútu. Úrslit í þessum riðli hafa verið mjög óvænt vægast sagt og nú eru þau hlið við hlið Grikkland og Finnland. Fyrri leik liðanna, sem fram fór í Finnlandi, unnu Finnar 3-0 en i þeim síðari sem fram fór í Aþenu unnu Grikkir 8-1. Þrátt fyrir þetta hroðalega tap í Aþenu er staða Finnanna bezt í riðlinum. Staðan: Grikkland 5 2 12 12-7 5 Finnland 4 2 11 7-10 5 Sovétríkin 4 12 1 5-5 4 Ungverjaland 5 12 2 6-8 4 Heppnissigur Framara gegn KA á Akureyri —sigruðu 3—2 og sigurmarkið kom 5 mín. fyrir leikslok Framarar tryggðu sér réttinn til að ieika í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar með því að sigra KA 3-2 i leik liðanna fyrir norðan í gærkvöldi. í hálfleik var staðan 2-2 og verður að segjast eins og er að Framarar voru nokkuð heppnir að sleppa með sigurinn. Þegar liðin hlupu inn á völlinn mátti sjá að í lið Fram vantaði þá Pétur Ormslev og Kristin Atlason og munu þeir hafa verið settir út úr liðinu vegna agabrots, að því er menn bezt vita. Slæmt hjá landsliðsmiðherjanum að lenda í slíku. Hvað um það, leikurinn var nánast endurtekning á viðureign liðanna í 1. deildinni á föstudagskvöld og jafnræði var lengst af. KA átti þó meira í upphafskaflanum og strax á 3. mín. átti Gunnar Blöndal gott skot að marki. Markið iét ekki bíða lengi eftir sér og á 6. minútu náði KA forystunni með sérlega fallegu marki. Upphlaupið hófst hjá Helga bakverði. Hann gaf fram kantinn á Njál sem tók þríhyrningasendingu við Elmar áður en hann sendi vel fyrir markið. Óskar Ingimundarson kom þar á fullri ferð við vítateiginn og sendi boltann í netið með gullfallegu þrumu- skoti alveg út við stöng. Eftir markið fóru Framarar að koma meira inn í myndina og á 26. mínútu jöfnuðu þeir metin með marki Trausta Haraldssonar. Verður það að skrifast á Aðalstein markvörð að nokkru leyti þar eð hann var illa staðsettur i mark- inu. Skot Trausta sigldi yfir hann og í fjærhornið. Framarar voru þó ekki lengi í paradís því strax á næstu mínútu náði KA forystunni á nýjan leik. Njáll gaf þá fyrir markið þar sem þeir Gunnar Blöndal og Guðmundur markvörður Fram stukku upp saman. Boltinn barst til Óskars, sem lagði hann vel fyrir sig og skoraði síðan af öryggi. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks — á 42. mín. — jafnaði Fram á nýjan leik. Gunnar Orrason var þar að verki og var það mark mjög keimlíkt síðara marki KA. í seinni hálfleiknum róaðist leikurinn nokkuð og tækifæri voru ekki mörg. Þó átti Gunnar Blöndal gott skot á 48. min., sem Guðmundur bjargaði í horn. Rétt á eftir fékk Gunnar Orrason svipað tækifæri en Aðalsteinn varði skot hans mjög laglega. Eftir þennan upphafssprett datt leikurinn nokkuð niður og lítt markvert gerðist fyrr en á 79. mínútu en þá átti Gunnar Blöndal mjög gott skot sem Guðmundur varði laglega. Sigurmark Framara kom síðan fimnt min. fyrir leikslok eftir herfileg varnar- mistök. Knötturinn barst fyrir markið og framhjá a.m.k. þremur varnar- mönnum KA áður en Guðmundur Steinsson skaut lausu skoti, sem sigldi óáreitt i markið. í heildina var þetta mjög jafn leikur og jafntefli hefði verið sanngjarnasta niðurslaðan. Framarar verða að teljast heppnir að hafa unnið þennan leik. Áhorfendur voru um 700 og Rafn Hjaltalín dæmdi leikinn af stakri prýði. -St.A. Sjö mörk f rá Skagamönnum —sökktu Þrótti, Nes í gærkvöld Akurnesingar þurftu ekki mikið að hafa fyrir bikarsigri sínum gegn Þrótti frá Neskaupstað i gærkvöldi. Sjö urðu mörkin hjá Skagamönnum áður en yfir lauk, án þess að Þrótti tækist nokkurn tíma að svara fyrir sig — hvað þá að skapa sér svo mikið sem eitt einasta al- mennilegt marktækifæri allan lcikinn. Staðan í hálfleik var 4-0. Leikurinn hafði ekki staðið i nema tvær mínútur þegar Skagamenn skor- uðu fyrsta mark sitt. Það skoraði Sigurður Lárusson eftir fyrirgjöf frá Sveinbirni Hákonarsyni. Hálfgerður heppnisstimpill var þó á markinu. Skagamenn fengu ótal færi í leiknum og þá einkum Sigþór, en mörg þeirra tókst ekki að nýta. T.d. fengu Akur- Einar Asbjom kom ÍBK áfram Einar Ásbjörn Ólafsson sá öðrum fremur fyrir því að ísfirðingar komast ekki lengra í bikarkeppni KSÍ þetta árið. Hann skoraði bæði mörk heima- manna á grasvellinum í Keflavik í gær- kvöld. Hið fyrra þegar um stundar- fjórðungur var liðinn af leiknum. Þórir Sigfússon sendi knöttinn inn í miðja þvögu til Einars sem tókst að skora. Hið síðara skoraði Einar skömmu áður en ágætur dómari leiksins, Óli Ólsen, flautaði til merkis um leikhlé. Aðdrag- andinn var sá, að Þórður Karlsson sendi fyrir markið úr hornspyrnu. Knötturinn kom niður á markteigs- hornið fjær þar sem Einar skoraði með því að sneiða knöttinn með jarkanum í netið — óvenjulegt mark. Einar, sem var langbeztur Keflvik- Klaus Jiirgen Hilpert inga, átti fleiri færi sem að vísu mistók- ust en hann er óðum að ná sér af meiðslum, sem hafa angrað hann þrálátlega að undanförnu. ísfirðingar fengu einpig sín tækifæri til að skora þrátt fyrir að við ofurefli væri að etja. Minnstu munaði að Gunnar Pétursson, hinn eldfljóti og stæðilegi leikmaður ísfirðinga, jafnaði metin er hann komst einn inn fyrir vörn ÍBK og átti einungis Þorstein Ólafsson eftir. Þorsteinn var hins vegar sú.hindr- un, sem honum tókst ekki að yfirstíga því Þorsteinn varði fast skot hans af markteig með snilldarbrag. Þorsteinn varði reyndar annað skot frá ísfirðing- um eftir aukaspyrnu í s.h. Leikurinn var lengst af þófkenndur og lítið um samspil. Keflvíkingar mega heldur betur herða sigef þeir ætla sér sigur í næsta leik gegn erkióvinun- um — Valsmönnum — á mánudags- kvöld. Auk Einars Ásbjörns áttu þeir Þórður Karlsson og Guðjón Guðjóns- son þolanlegan leik svo og Þórir Sigfús- son. Hjá ísfirðingum var Gunnar lang- beztur en þeir Andrés Kristjánsson og Haraldur Stefánsson áttu einnig góðan leik.______________________'emm DB með viðtal við Hilpert í Dagblaðinu á morgun verður birt heilmikið viðtal við þjálfara Akurnes- inga, Klaus Júrgen Hilpert, sem blm. tók á miðvikudag. Hilpert er einkar skemmtilegur náungi og ber viðtalið keim af því. Hann kemur víða við og ræðir opinskátt um árangur Skaga- manna i sumar. nesingar dauðafæri á 5. mínútu er Kristinn Björnsson, sem lék með á nýj- an leik og lífgaði mjög upp á framlín- una, gaf á Sigþór, sem tókst ekki að skora. Annað mark Akurnesinga kom siðan á 18. minútu. Eftir mikla þvögu rétt utan markteigs barst boltinn til Svein- bjarnar, sem afgreiddi hann i netið fy rirhaf narlít ið. Og áfram héldu mörkin. Á 31. mínútu kom það þriðja. Markvörður Þróttar hélt ekki boltanum eftir auka- spyrnu og Sigurður Halldórsson fylgdi vel eftir og skoraði. Fjórða markið kom síðan á 38. minútu og var gull- fallegt. Sigurður Lárusson lék þá upp að endamörkum og gaf vel fyrir markið þar sem Kristinn kom á fullri ferð og hamraði knöttinn í netið með glæsileg- um skalla. Bezti leikkafli Þróttar kom í upphafi seinni hálfleiks og fyrstu 15 mín. hans neyndu þeir að spila knattspyrnu og tókst sæmilega á köflum, en tækifærin voru alls engin. Á 61. mínútu kom fimmta markið. Þá skoraði Sigþór eftir að Sveinbjörn hafði átt skot á markið, sem markvörður Þróttar hélt ekki. Rétt á eflir var Sigþór í dauðafæri en Ágúst markvörður varði vel í horn. Mörkunum var þó ekki lokið og á 7,9. minútu kom 6-0. Sveinbjörn Hákonarson var þá að verki eftir fallega fyrirgjöf Jóns Áskelssonar. Sjö mínútum síðar skoraði Sigþór siðasta markið í leiknum eftir stungusendingu frá Sigurði Lárussyni. Hjá Akurnesingum var Árni Sveins- son frískastur, en þeir Sigurður Lárus- son og Jóhannes áttu einnig góðan leik, en mótstaðan var í lágmarki. Hjá Þrótti skar sig enginn úr. Áhorfendur voru á milli 7 og 8 hundruð, sem verður að telja mjög gott. -KP J.S. HELGASON HF. SKEIFAIM 3J - SÍMI 37450

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.