Dagblaðið - 11.07.1979, Side 5

Dagblaðið - 11.07.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1979. 5 r „Á ekkiaðvera hægt að bakkæra” — segja keppendurá Signýju 08 Keppendur á sjórallsbátnum Signýju 08 hættu keppni á Akureyri eins og margnefnt hefur verið í DB. Keppendumir þeir Gunnar Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson vilja koma á framfæri ástæðum til þess að þeir héldu keppninni ekki áfram. „Búið var að gefa okkur stig á Nes- kaupstað, en þá heyrðum við ávæning af því að það ætti að kæra okkur,” sagði Gunnar Gunnarsson. „Við sögum þá keppnisstjóm að við myndum segja okkur úr keppninni ef fyrri stigagjöf yrði breytt. Síðan varð það reyndin að keppnis- stjórn tók þá ákvörðun að dæma legginn frá Höfn að Neskaupstað ógildan, með 3 atkvæðum gegn 2. Þá þegar um kvöldið á Akureyri, áður en ræst var til ísafjarðar, lýstum við því yfir að Signý væri hætt keppni. Þegar einu sinni er búið að dæma í svona keppni ásádómur aðgilda. Við viljum gjarnan taka þátt i næsta sjóralli, en aliar reglur þurfa að vera betri og ekki hægt að bakkæra menn eftir duttlungum einhvers. Það þarf nánast einræðisvald einhvers á- kveðins framkvæmdastjóa. Við erum tilbúnir að miðla af okkar reynslu af sjórallinu bæði í fyrra og í ár, þannig að betur megi til takast. -JH. í olíudýrhöinni: Orkunefnd Hafnarvill fjarvarmaveitu Rólegt hjá Gæzlunni Rólegheitatímar rikja hjá Land- helgisgæzlunni. í gær lágu öll varðskipin í höfn, nema Þór, en um helgina var hann notaður í skemmti- siglingu i tengslum við hátiðahöld á Neskaupstað. Átti að nota fiskiskip í skemmtisiglinguna, en það brást og varðskip hljóp í skarðið. Bjarni Helga- son hjá Gæzlunni sagði þá ákvörðun hafa verið tekna i samráði við dóms- málaráðuneyti. Týr fer úl á mlðin í dag, en Öðinn er nýkominn inn í „venjulega inniveru” að sögn Bjarna. Ægir hefur legið við bryggju í margar vikur. Fjárhagsstaða Gæzlunnar er fremur bágborin og því hafa landlegur verið auknar á sama tíma og mannskapurinn tekur sér sumarfrí. Flugvélar Gæzlunnar voru í skýli i gær og löggæzla á miðunum þvi i lág- marki. -ARH/DB-mynd: Sveinn Þorm. Ureldingarsjóðurínn: 900 brúttólestir hafa verið eyöilagðar —meðtilstyrk sjoðsins DAEBIABIB frjálst, úháð itnyhlaH m rvrjóKN sIdiimCla il au(;lVsin(;v» oc ak.rhdsla ►vranotTi 11—auai.sImi itou. Vest- manna- eyjar: FLEYGÐIBÁTNUM Á KOSTNAÐ RÍKISINS —efír at hafa gert hann upp fyrir20 iriljdrir „Vill einhver kaupa bátinn? Hafa þeir er gagnrýna einhverja kaupendur að honum? Þessir menn hafa reynt að selja,” sagði Ingimar Einarsson, deild- arstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu en hann er starfsmaður nefndar þeirrar er veitir hina svokölluðu úreldingar- styrki. DB hafði samband við hann í framhaldi af frétt blaðsins um Bursta- fellið. Ingimar sagði, að nefndin hefði haft til ráðstöfunar 3000 milljónir úr gengismunarsjóði frá 1. september sl. Þegar væri búið að veita um 200 milljónir á 16—17 báta en alls hefðu borizt 30—35 umsóknir. Nú væri búið að eyðileggja um 900 brúttólestir með tilstyrk sjóðsins. ,,Ef bátur er orðinn gamall með gamla vél og fyrirsjáanlegt er að miklu þurfi að kosta til hans, þykir sjálfsagt að stuðla að því að hon- um sé fleygt,” sagði Ingimar. Hann sagði, að úreldingarstyrkirnir væru tímabundnir þar sem peningarnir væru að klárast og ekki væri vitað til að neitt kæmi í þeirra stað. Nefndin hefði úthlutað styrkjunum í mjög nánu sambandi við aldurslagasjóð. Sá sjóður veitti 150 þúsund krónur á brúttólest óháð ástandi bátsins. Við út- hlutun úreldingarstyrkjanna væri fyrst skoðað, hvort viðkomandi aðili hefði fengið styrk úr aldurslagasjóði og væri tekið tillit til þess. Þá væri skilyrði, að umsækjandinn væri með skuldasúpu á bakinu. Eingöngu væri úthlutað til gamalla og úreltra báta. „Það dettur engum í hug að bjóða í þessa báta,” sagði Ingimar. Einnig benti hann á, að flotinn væri orðinn of stór. -GAJ- „Það var ekkert annað að gera” segir eigandi Burstafellsins „Vélin úr bátnum bræddi úr sér í veturogvar ekki talin viðgerðarhæf. Þaö er ramkvæmd upp á a.m.k. 30 milljónir að setja nýja vél í bátinn,” sagði Þór Vilhjáimsson, eigandi Burstafells í Vestmannaeyjum en bátnum hefur nú verið fleygt og hefur eigandinn fengið til þess styrk úr tveimur sjóðum. Eins og Dag- blaðiö greindi frá sl. laugardag hefur þetta sætt mikilli gagnrýni í Vest- mannaeyjum þar sem báturinn var nýuppgerður og í mjög góðu ástandi að öðru leyti en því að vélin var ónýt. „Mér finnst frétt Dagblaðsins af þessu máli afar ósmekkleg,” sagði Þór. „Hér var um að ræða opinberan sjóð, sem auglýsti eftir styrkjum og þar sem vélin var ónýt sótti ég um þennanstyrk.” Ekki vildi Þór upplýsa, hve háan styrk hann hefði hlotið úr þeim 'veim ur sjóðum, sem hér umræði.,. Idun, lagasjóði og úreldingarsjóðl, en sagði, að styrkurinn nægði ekki til þess, að hann „slyppi sléttur frá þessu”. Aðspurður sagði hann, að vonlaust hefði verið að selja bátinn. „Máliðer það,”sagði Þór, „aðþetta er það óhentug stærð af bát, að menn hafa engan áhuga á að kaupa hann, hvað þá ef vélina vantar. Það var því ekki um neitt annað fyrir mif að gera,” sagði Jón og bætti þvi við,~ að hann væri hættur sjómennsku, a.m.k.ibili. -GAJ- Smyrlabjargaárvirkjun er núna al- gjörlega fullnýtt. Hún sér fyrir 60% orkuþarfar staðarins en 40% koma frá olíu. Þaðhlutfall hlýtur að aukast jafnt og þétt með árunum eftir því sem bær- inn stækkar ef ekkert verður annað gert,” sögðu menn í orkunefnd Hafnar í Hornaftrði við blaðamann DB á dögunum. í nefndinni sitja Bragi Ár- sælsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Friðrik Kristjánsson rafveitustjóri sem er formaður hennar. í orkunefnd hefur undanfarið verið mikið rætt um fjarvarmaveitu á Höfn. Borgarafundur var haldinn nýlega um málið og að sögn þeirra félaganna kom ekki fram ein einasta rödd á móti veitunni þó þeir teldu að einhverjir hljóðlátir kynnu að vera á móti. Fjarvarmaveitan yrði þannig upp byggð að hiti frá dísilvélum yrði notaður til upphitunar húsa og til upphitunar drykkjarvatns. Vatnið mætti hita frekar með rafmagni eða olíu. Eftir að Austurlína er komin myndi borga sig að nota afgangsraf- magn frá henni, en þar til hún kemur, 1982—1983 verður olían líklega aðal- kyndirinn. Orkunefndin telur að þetta kerfi verði mun ódýrara en að koma upp raf- kyndingu í öllum húsum á Höfn þar eð í slíka kyndingu væri ekki hægt að nota afgangsorku heldur yrði að vera um forgangsorku og miklu dýrari að ræða. Auk þess færi núna mikil orka til spillis þar eð hitinn frá dísilstöðvunum væri ekkert nýttur. Að sögn þeirra félaganna i orku- nefnd er Iðnaðarráðuneytið mjög meö- mælt því að fjarvarmaveitunni verði komið upp og er talið líklegt að raf- magnsveitur ríkisins myndu eiga kyndistöð veitunnar sem kosta mun um 107 milljónir. Aftur myndu Hafnar- búar eiga sjálfir dreifikerfið sem talið er muni kosta 428 milljónir. Það telur orkunefnd borga sig upp á mjög skömmum tíma miðað við síhækkandi olíuverð auk þess sem ekki sé að vita hversu lengi olían fáist hreinlega. Þó að fjarvarmaveitu verðikomið upp útilokar það engan veginn að seinna yrði leitað að jarðhita. Og ef hann fyndist yrði lítið mál að tengja hann dreifikerfinu. > -DS. Austurstræti 6 — Sími 22955 NÝK0MNAR I íj Allt til Qósmyndunar

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.