Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.07.1979, Qupperneq 1

Dagblaðið - 24.07.1979, Qupperneq 1
5. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR24. JtJLl 1979 — 166. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11,—AÐALSÍMI27022. ALLT BENDIR TIL RAF- MAGNSSKÖMMTUNAR í c REYKJAVÍKIVETUR Afram- haldandi veður- blíða „Það er gert ráð fyrir, að þetta há- þrýstisvæði sem verið hefur yfir landinu haldist, engin lægð nálgast landið. Á Suður-, Vestur- og Norðurlandi verður léttskýjað og heiðskírt og hitinn getur vafalaust tkomizt i 18 stig sums staðar,” sagði Bragi Jónsson veðurfræðingur í sam- tali við DB í morgun. „Það verður sem sé bjartviðri um allt land nema kannski á Norðaustur- landi og Austfjörðum. Þar verður sennilega norðan gola. Ég á von á að þetta háþrýstisvæði haldist með tilheyr- andi veðurblíðu 1—2 næstu daga,” sagði Bragi. -GAJ- Nú er aldeilis veður á Suðurlandi til að sóla sig og fá dálítið vítamín í kroppinn. Létt er yfir mannlífinu i miðborginni. Bjarnleifur Ijósmyndari rakst á tvö á rölti i sólinni i gær. Ef okkur missýnist ekki, þá eru hér á ferð valkyrjan Birna Þórðardóttir og Guðmundur Hallvarðsson, þekkt baráttufólk úr Fylkingunni. Lokaðfyrir rafmagn til Ríkisspftalanna? — sjá bls. 9 / : Wl/ ji * % y i !■"/ BjH \ mf. Auknar efa- semdir um steypuefnið úr Saltvík „Það kæmi mér ekki á óvart ef niðurstaðan yrði sú að ég gæti ekki sætt mig við að þetta sjávarefni úr Salt- vík yrði notað,” sagði Gunnar Gunn- arsson, verkfræðingur hjá Reykja- víkurborg, í samtali við DB í morgun. Á síðasta fundi bygginganefndar Reykjavíkur lét Gunnar bóka að hann óskaði eftir tíðari prófunum á sjávar- efni því til steypugerðar sem sótt er til Saltvíkur á Kjalarnesi. Bygginganefnd samþykkti hins vegar fyrir tilmæli borgarverkfræðings að rýmka reglur um þvott þessa efnis úr 90% þvotti í 80%. Gunnar Gunnarsson kvað prófanir hingað til hafa verið teknar vikulega og þá úr malarbingjum við steypustöðv- arnar. Nú væri komið á daginn að fjórðungur prófana hefði ekki staðizt kröfur. Eins gæfu athuganir á Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins auknum efasemdum undir fótinn. Gunnar kvaðst telja að bygginga- nefnd hefði ekki heimilað rýmkun á þvotti sjávarefnisins ef þessar upplýs- ingar hefðu legið fyrir. Málið yrði því tekið upp á næsta fundi nefndarinnar á fimmtudag. - GM Dýrust símtöl til og f rá íslandi — sjá kjallaragrein ábls. 10-11 Milljónatap á Olíumöl hf. á þessu ári: 30 þúsund tonn í stað 100 I ár hillir undir milljóna króna tap á fyrirtækinu Oliumöl, eftir þvi sem framkvæmdastjórinn, Tómas Sveins- son, sagði í morgun. Til þess að fyrir- tækið kæmi slétt út fjárhagslega á þessu ári hefði það þurft að selja á milli 90 og 100 þúsund tonn af olíu- möl á árinu. í vor leit út fyrir að ekki væri markaður fyrir meira en 50 þús- und tonn og hefur Oliumöl þegar tapað nokkru af honum vegna þess að sveitarfélögin hafa dregið að greiða framlag það til fyrirtækisins sem þau eru búin að samþykkja. Salan i ár verður því aðeins 30—40 þúsund tonn og má sjá að þarna munar allmiklu. Ríkið hefur nú skipað nefnd til þess að athuga hvernig bezt megi styrkja fyrirtækið i þessum raunum þar eð afstaða hefur verið tekin til þess að það skuli lifa. - Sjá nánar KEFLAVÍK FRESTAR GREIÐSLU TIL OLÍUMALAR HF. ábls. 5. -DS Minka- slagur við Elliðaárnar — sjá bls. 9

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.